Réttur


Réttur - 01.07.1937, Qupperneq 19

Réttur - 01.07.1937, Qupperneq 19
fólkið. Þetta skilja hin róttæku skáld og þessvegna helga þau starf sitt alþýðunni. Þau líta á það sem sitt mikla hlutverk, að skapa íslenzku alþýðunni, íslenzku þjóðinni menntun og frelsi, menntun til að vinna sér fullt frelsi, frelsi til að hefja menningu sína á nýtt og hærra stig. Hinir róttæku rithöfundar líta á stofnun hins nýja bókmenntafélags sem stórt sögulegt spor í þessa átt, en þó aðeins sem einn áfanga á leiðinni að því marki, að taka forustuna á öllum sviðum menning- armálanna, vinna að nýrri skipun á menningarstarfi íslenzku þjóðarinnar í heild, svo að það ástand haldist ekki til lengdar, sem nú er. Eni að þessu sinni heita rithöfundarnir á íslenzka al- þýðu, að veita sér öflugt fulltingi við sköpun hins nýja bókmenntafélags. Hún getur á afarmargan hátt létt þeim starfið, fyrst og fremst með því að skipa sér í fé- lagið og að fá aðra til þess. Það er mjög nauðsynlegt að vöxtur félagsins verði ör strax, að það þegar á þessu ári nái sem allra hæstri meðlimatölu, því meiri getur starfsemi þess orðið þegar á næsta ári. Það flýtir mjög fyrir öllu starfi og afgreiðslu, að menn sendi umsóknir sínar og árgjald í tíma, dragi það ekki fram á haust að innrita sig, Er nú sérstaklega heitið á kaupendur Rétt- ar að vinna ótrautt að eflingu hins nýja bókmenntafé- lags, að gera „Mál og menning“ að voldugri menningar- stofnun fyrir íslenzku þjóðina. Landbúnaðaimálin á Alþingi. (frá 1874 fram yfir aldamót). Úr inngangi að sögu Framsóknarflokksins. Eftir Gunnar Benediktsson. Um leið og þjóðin hafði fengið fjárráð í eigin hend- ur, þá fer Alþingi að veita styrk atvinnuvegunum. Til 17cí

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.