Réttur


Réttur - 01.04.1971, Side 4

Réttur - 01.04.1971, Side 4
helgismál í Genf. Þar reyndist meirihluti þátt- takenda fylgja 12 mílna reglu, en hún fékk samt ekki þá % atkvæða sem til þarf, svo að litið sé á samþykt sem forsendu nýrrar alþjóðareglu. Ráðstefnan sannaði hins vegar að 12 mílna reglan hafði fengið svo örugg- an alþjóðlegan bakhjarl að Islendingar hlutu að taka ákvörðun um það hvort þeir ættu að hrökkva eða stökkva. Því lagði Lúðvík Jósepsson það til fyrir hönd Alþýðubanda- lagsins í maí 1958 að landhelgin yrði stækk- ug í 12 mílur. Eftir það hófst mikið tauga- stríð, og nú urðu stjórnmálaflokkarnir að sýna í verki hver heilindi byggju bak við fögur orð. Sjálfstæðisflokkurinn lagðist gegn því 21sta maí 1958 að ákvörðun yrði tekin um stækkun landhelginnar í 12 mílur. I stað- inn lagði hann til að teknir yrðu upp samn- ingar við Atlanzhafsbandalagið og einkan- lega Breta um aðgerðir sem Nató-ríkin gætu fallizt á. Jafnframt lét Sjálfstæðisflokkurinn fylgja ljóðræn orð um áhuga sinn á því að landhelgin yrði „sem stærst”. Þetta var alveg sama afstaða og sú sem nú birtist, þegar rætt er um 50 mílur: fögur almenn orð eru hvergi spöruð, en það má ekki taka ákvörðun, ekki tiltaka neina dagsetningu. Afstaða Alþýðuflokksins var mjög hlið- stæð stefnu Sjálfstæðisflokksins 1958. Einnig hann lagði til að teknir yrðu upp samningar við Nató-ríkin, en kvaðst reiðubúinn til að standa að reglugerð sem gefin yrði út mánuði síðar, 30asta júní 1958 — þá átti samning- unum við Breta og aðra semsé að vera lokið. Einnig Framsóknarflokkurinn varð deigur þegar á reyndi. Lúðvík Jósepsson hafði stjórn- lagalega heimild til þess að gefa út nýja reglu- gerð um stækkun landhelginnar, og þá reglu- gerð undirritaði hann 21sta maí 1958. Her- mann Jónsson forsætisráðherra krafðist þess hins vegar að reglugerðin yrði ekki birt lög- formlega; yrði það gert kvaðst hann mundu biðjast lausnar annaðhvort fyrir Lúðvík Júsepsson sjávarútvegsmálaráðherra einan eða fyrir allt ráðuneyti sitt. Tók nú við mjög al- varleg stjórnarkreppa. Lúðvík Jósepsson hélt fast við ákvörðun sína og kvaðst mundu birta hina nýju reglugerð 23ja maí, og sama dag boðaði Hermann Jónsson ríkisráðsfund, þar sem hann cetlaði að tilkynna stjórnarslit. Þá fyrst bognaði Alþýðuflokkurinn og féllst á að ákveða efni nýrrar reglugerðar án noklc- urra samninga við Atlanzhafsbandalagsríkin. Hins vegar hélt Sjálfstæðisflokkurinn and- stöðu sinni til streitu — leiðtogar hans voru andvígir því að tekin var upp 12 mílna land- helgi um haustið 1958. Astæðan til þess að unnt var að tryggja málinu sigur þrátt fyrir þessar alvarlegu veil- ur í forustuliði þriggja flokka var sú, að þjóðin stóð mjög einhuga að baki kröfunni um 12 mílna fiskveiðilögsögu. Þegar á reyndi þorðu leiðtogar Alþýðuflokksins ekki að leggja málstað sinn undir dóm kjósenda. í ÞÁGU „VOLDUGRA VINAÞJÓÐA11 Hvers vegna voru leiðtogar Sjálfstæðis- flokksins, Alþýðuflokksins og — að nokkru — Framsóknarflokksins svona hikandi 1958? Vafalaust hafa þeir allir gert sér grein fyrir því að það var íslendingum lífsnauðsyn að stækka landhelgina. En þeir töldu sig ekki aðeins verða að rækja trúnað við þjóð sína. Oll önnur Atlanzhafsbandalagsríki lögðust harkalega gegn því að íslendingar stækkuðu landhelgina í 12 mílur; kröfum og hómnum og bænaráköllum rigndi yfir ríkisstjórnina, og sérstaklega ráðamenn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins töldu sig skuldbundna til þess að taka tillit til „voldugra vina". Til þess að fela þá afstöðu var búin til sú kenning að Alþýðubandalagið hefði í rauninni engan 60

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.