Réttur


Réttur - 01.10.1974, Side 23

Réttur - 01.10.1974, Side 23
innar á síðari hluta 19- aldar eftir ensku og aði ég þetta, en bandarísk heimsvaldastefna frönsku borgarabyltingarnar. (Eitt sinn von- megnaði að hindra þá þróun í 30 ár).0) VII. Úr álögum umsáturs Þegar byltingin í Rússlandi var gerð 1917 litu kommúnistar svo á að hún væri upp- haf sósíalistískrar byltingar í Evrópu og ef- uðust um að hún gæti staðið lengi, ef sú bylting dragist. Lenín minnti jafnvel á það á þriðja afmælisdegi rússnesku byltingarinn- ar í ræðu 6. nóv. 1920: „. . . . við höfum alltaf lagt áherslu á að við dæmum um bylt- inguna frá alþjóðlegum sjónarhól og að maður gemr ekki fullkomnað slíkt stórvirki sem sósíalistíska byldngu í einu einstöku landi".7) Og síðar í sömu ræðu sagði hann: „Við vissum alltaf og munum ekki gleyma því að málstaður okkar er alþjóðlegur og meðan umbyltingin hefur ekki orðið í öllum ríkjum, — einnig í þeim ríkusm og mennt- uðustu, — þá er sigur vor aðeins hálfur, ef til vill ekki einu sinni það." Verklýðsbyltingin rúsneska hófst ekki að- eins með bjartsýni og hetjumóð. Víðsýni og umburðarlyndi voru einnig ein helsm ein- kenni hennar: Hinar róttækustu listastefnur blómguðust, Chagall var mikils metinn frömuður málaralistar. Alexandra Kollantay og Ines Armand rimðu um frjálsar ástir og frelsi konunnar o. s. frv. En verkalýður Vesmr-Evrópu brást vonum byltingarfrömuðunna. Vonirnar um að vera aðeins upphafsmenn byltingar, sem aðrir gerðu bemr, dóu út. Draumsýn glæsilegs framtíðarþjóðfélags sósíalismans þokaði fyrir gráum hversdagsleika óskaplega erfiðrar og fórnfrekrar uppbyggingar á efnahagslegum frumskilyrðum sósíalismans í frumstæðu landi. Árásarstríð auðvaldsins, áramga ein- angrun og umsámr skópu þá hörðu skel, sem eigi aðeins var vörn veiku fræi bylting- arinnar, heldur marði og oft sjálfa braut- ryðjendur byltingarinnar til bana. Hin mjúka kvika hugsjónarinnar varð oft illa úti í storm- um ofstækis og greipum valds, en á úrslita- smndum varð þó sú harða skel og sú mjúka kvika bjargvætmr byltingarríkisins. Og bylt- ingarríkið varð vald, annað mesta ríkisvald veraldar: bylting í álögum þeirrar hörku, er umsámrsástandið skóp. „Seint koma sumir, en koma þó." Ef til vill kemur alþýða Vesmrlanda sextíu árum síðar en vonað var og leysir rússnesku byltinguna úr álögum umsámrsins. Byltingin í vestri, langþráð af sovéskri alþýðu, myndi létta af henni ofurþunga vígbúnaðarkapphlaupsins. Sú „þýða", sem aldrei varð að vori, — það „vor", sem aldrei varð að sumri, — myndi nú brjóta af sér ísfjötrana í „yfirbygging- unni," frelsið og umburðarlyndið frá frum- herjum byltingarinnar halda sína innreið í föðurland byltingarinnar að nýju eftir hálfrar aldar hetjudáðir og harmleiki þjóðar þess. Auðvitað munu þöngulhausar rétttrúnað- arins og einangrunarstefnunnar, — þeir, sem kunna ekki að sannfæra, en kjósa heldur að reyna að kúga félaga til fylgis við sig, — berjast af alefli gegn því nýja vori sósíal- ismans sem „vestrænni" „endurskoðunar- stefnu" og „gagnbyltingu". En Bucharin mun 215

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.