Lesbók Morgunblaðsins - 29.07.2006, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 29.07.2006, Blaðsíða 7
eins æfingar fyrir fingur, heldur líka fyrir hug og sál. Töluvert hefur verið flutt af tónlist Liget- is hér á landi. Fyrir nokkrum árum var Fiðlukonsert hans fluttur af Sinfón- íuhljómsveitinni. Lék fiðlusnillingurinn Saschko Gawriloff þá einleik, en hann hafði flutt verkið u.þ.b. 300 sinnum! Ég missti af þessum merkisatburði, var erlendis. Áður hef ég minnst á Blásarakvintett Reykjavíkur. Kammerkonsertinn flutti Ca- puthópurinn um 1990, og Guðrún Ósk- arsdóttir lék Sjakonnu fyrir sembal. Meira man ég ekki í svipinn. Þess má geta að Horntríóið, uppáhaldsverk mitt, verður nú í ágústmánuði flutt á Kirkjubæjarklaustri. Það er landsliðið sem spilar: Sigrún Eð- valdsdóttir á fiðlu, Stefán Jón Bernarðsson á horn og Víkingur Ólafsson á píanó. Ligeti elskaði Lewis Caroll og sögu hans um Lísu í Undralandi; líka Kafka og Bor- ges. Hann var hrifinn af teiknimyndum, varð fyrir miklum áhrifum frá hollenska mynd- listarmanninum Maurits Escher, sem leikur sér að sjónblekkingum: við sjáum mann ganga upp stiga en samt fer hann sífellt niðrávið. Ligeti stúderaði fjölríþmatónlist afrískra ættbálka, sjálfspilandi píanó og miðaldatónlist Evrópu. Hann var alltaf trúr sínum ungverska uppruna, án þess að detta í rembing þjóð- lagaóperettunnar. Öll þessi áhrif, og raunar fleiri, end- urspeglast í margbrotnu og fjölbreyttu lífs- verki hans. Ligeti fór sínar eigin leiðir í tónsmíðum, eins og allir afburðamenn. Það er haft eftir honum að vissulega geti enginn endurnýjað sig endalaust, en það væri alltaf unnt að endurskoða sjálfan sig. Hann var síleitandi að nýjum tjáning- armeðulum og -formum í tónlist og staðnaði aldrei. List hans sýnir okkur nýjan heim, eitt- hvað framandi sem við þráum. Um leið fyll- umst við harmi yfir því að geta aldrei nálg- ast þennan heim, nema mjög takmarkað. llingur Höfundur er tónskáld. af mikilli skrúðmælgi, fyrir að vera með „þýzka ósvífni“. En Þjóðverji nokkur fráb- að sér slíkar staðlausar fullyrðingar, og kvað hegðun mína á engan hátt samræm- ast germönskum hugsjónum. For- stöðumaður samkomunnar gaf mér nú ekki lengur merki með hendinni, heldur skoraði hann munnlega á mig að hætta. Ég sá mig að lokum tilknúinn að grípa til krítarinnar á nýjan leik og láta hann vita að sam- kvæmt svissneska skeiðúrinu minn væri tími minn enn ekki útrunninn. En þar sem hann heimtaði samt sem áður að ég hætti samstundis neyddist ég að minna hann á það skriflega, með allri kurteisi, að sam- kvæmt loforði hans ætti ég rétt á tíu mín- útum. Þrátt fyrir þetta hélt hann fast við að meira en hálfur tími væri liðinn frá því að ég sté í stólinn. Margir hrópuðu nú í kór: Út með þann klikkaða – og áttu við mig. Á áttundu mínútu gengu svo nokkrir herramenn ógnandi á svip upp að ræðu- stólnum og drógu mig niður úr honum. Á þennan hátt var leikur þessi sem átti að standa í tíu mínútur styttur um tvær. Ég harmaði það ekki því svo mörg ógleym- anleg og glæsileg atvik höfðu þegar átt sér stað. Það hafði orðið allt að því full- komið samspil milli einsöngsradda og kórs, og þau músíkölsku form sem mynduðust voru í senn augljós, einföld, flókin og fjöl- breytileg. Þess vegna setti ég mig ekki úr færi, síðar meir, að þakka áheyrendum, þ.e.a.s. flytjendum, hjartanlega fyrir allt saman. * Ég skrifa þetta á þremur tungumálum, þýsku, ensku og frönsku, með tilliti til áheyrenda. Sama gildir um það sem síðan er skrifað. Atli Heimir Sveinsson þýddi. Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. júlí 2006 | 7 L ag Sigvalda Kaldalóns er án nokkurs efa „lagið“ við þetta ljóð, þ.e. að segja miðað við hvaða lag er oftast flutt við ljóðið. Nægir í því sambandi að benda á að af átján upp- tökum ýmissa aðila á geisladiskum sem komið hafa út á nokkurra ára tímabili er lag Sigvalda Kaldalóns leikið í sextán upptökum. Aðrar upptökur eru með lögum tónskáld- anna Björgvins Guðmundssonar og Helga Sigurðar Helgasonar. Í leit höfundar að sönglögum við ljóðið tafði það fyrir í upplýs- ingaöfluninni að þau eru ýmist nefnd Þó þú langför- ull eða Þótt þú langförull, Langförull, Úr Íslendingadagsræðu 1904 eða Íslendingadagskveðja. Að hluta má skýra þetta með því að einhverjir hafa tekið að sér að leiðrétta málvilluna í upphafi ljóðsins, þar segir „þó“ en málfarslega mun vera rétt að segja þótt eða þó að. Ljóðið Stephans, Þó þú langförull, er ort í hinum afskekktu byggðum Kanada, á býli í Alberta-fylki þar sem ljóðskáldið bjó. Lagið er samið á ekki síður afskekktum stað í Ár- múla við Ísafjarðardjúp, þar sem Sigvaldi Kaldalóns starfaði sem læknir. Lífið í land- inu var að stærstum hluta í sveitum lands, þéttbýli lítið og vanmáttugt. Búskaparhættir samfélagsins náðu ekki að skapa þau lífsskil- yrði sem vaxandi hluti þjóðarinnar vænti. Fréttir bárust af landi í vestri sem lokkaði allt að 20% þjóðarinnar á 45 ára tímabili til Vesturheims. Fargjald nokkurs hóps þeirra sem fóru var greitt af viðkomandi sveit- arsjóði til þess að létta á framfærslu þeirra – losa sig við vandamálið. Í þessu umróti var Þó þú langförull ort. Ljóðið fjallar um hlut- skipti þessa fólks og hátíðlegur og trega- fullur hljómur tónskáldsins gefur okkur inn- sýn í tilfinningalíf þeirra sem eftir voru. Í ævisögu Sigvalda Kaldalóns segir að hann hafi samið lagið 9 árum eftir að ljóðið var fyrst flutt árið 1904, eða árið 1913. Af fyrirliggjandi gögnum má ráða að lag Sig- valda sé fyrsta og elsta lagið sem flutt er við ljóðið, allavega hér á landi. Leitin að lögunum Leit að fleiri lögum við ljóðið bar þann ár- angur í fyrsta umgangi að fljótt fundust upplýsingar um að eftirtalin fimm tónskáld hefðu gert lag við þetta þekktasta ljóð Stephans G. Stephanssonar: Sigfús Ein- arsson, Helgi Helgason, Jón Laxdal, Björg- vin Guðmundsson og Þórarinn Jónsson frá Háreksstöðum. Við frekari leit í nótnasafni Lands- bókasafnsins fundust fjögur lög til viðbótar við þetta ljóð eftir jafnmörg tónskáld. Þetta eru: Jón Friðfinnsson, Steingrímur J. Hall og Elís Einar Einarsson, allt Vestur- Íslendingar, auk séra Halldórs Jónssonar frá Reynivöllum. Í æviminningum Björgvins Guðmundssonar segirað Mundi Guðmunds- son í Kanada hafi gert lag við þetta ljóð. Þess má geta að á forsíðu nótnaheftis með lagi Jóns Friðfinnssonar stendur: Tilvonandi þjóðsöngur Íslendinga. Er ef til vill komin skýring á áhuga tónskálda á að semja lag við þetta ljóð? Í ritsafninu Haugaeldum eftir Gísla Jóns- son er að finna upplýsingar um vestur- íslensk tónskáld á fyrri hluta 20. aldar og verk þeirra. Í þessari bók er einnig að finna skrár um helstu verk þessara tónskálda. Við skoðun þessarar bókar bættust í safnið tvö tónskáld til viðbótar sem samið höfðu lag við ljóðið Þó þú langförull legðir. Þetta voru Helgi Sigurður Helgason, sonur Helga Helgasonar, og Sigurbjörn Sigurðsson. Lagið eftir Halldór Jónsson í raddsetn- ingu fyrir harmóníum eða píanó er að finna í Söngvasafni fyrir alþýðu, III. Tryggvi M. Baldvinsson er yngstur þeirra er gert hefur lag fyrir rödd og píanó við ljóðið Þótt þú langförull legðir. Ekki hafa fundist nótur með lögum eftir Munda Guðmundsson og Sigurbjörn Sig- urðsson. Lítið er vitað frekar um aldursröð laganna en lag Sigfúsar Einarssonar kom út árið 1915 í Íslensku söngvasafni. Þess er ekki getið í ævisögu Sigfúsar hvaða ár það var samið. Lag Jóns Laxdals var gefið út árið 1917. Í ævisögu Björgvins Guðmundssonar tónskálds, Minningum, kemur fram að lag Jóns Friðfinnssonar hafi verið til á undan hans lagi. Um aldursröð annarra laga er ekki vitað, nema um yngsta lagið, lag Tryggva M. Baldvinssonar tónskálds, sem samið var árið 1994. Fjórtán lög við ljóðið Alls eru þetta 14 tónskáld, íslensk og vestur- íslensk, sem hafa gert lag við ljóðið Þó þú langförull legðir. Það er vel þekkt að fleiri en eitt tónskáld reyni sig í tónsmíðum við sama ljóðið, en að svo mörg tónskáld skuli hafa reynt að fanga þetta ljóð í lagasmíð sinni vekur vissulega athygli. Í ljósi þess að ljóðið átti 100 ára afmæli árið 2004, síðasta tónsmíð við það er 90 ár- um yngri og ljóðið er til í flutningi margra flytjenda verður ekki annað sagt en að þetta merka ljóð sé en lifandi í vitund þjóðarinnar. Átta af tónskáldunum teljast til tónskálda Vesturheims og þá er Helgi Helgason ekki talinn til þeirra þótt hann hafi dvalið þar hluta úr ævi sinni. Hann telst til hérlendra brautryðjenda á tónlistarsviðinu og starfaði lengst á Íslandi. Björgvin Guðmundsson er hins vegar talinn til tónskálda Vesturheims, þótt hann hafi starfað í á þriðja áratug á Akureyri, þar sem hann hlaut sitt tónlist- arlega uppeldi í Kanada. Sama á við um Þórarin Jónsson frá Háreksstöðum sem flutti heim og bjó á Seyðisfirði síðustu æviár sín. Í þessari skiptingu milli móðurlandsins og Vesturheims er tekið mið af bók Gísla Jónssonar, Haugaeldar. Þessi flokkun tón- skáldanna vekur upp spurningar um það hversu ónákvæm þessi skipting í Íslendinga og Vestur-Íslendinga getur verið. Hin vest- ur-íslensku tónskáldin eru Elís Einar Ein- arsson, Helgi Sigurður Helgason, Jón Frið- finnsson, Mundi Guðmundsson, Sigurbjörn Sigurðsson og Steingrímur J. Hall. Boðskapurinn Sigurður Nordal fjallar nánast ekkert um Þó þú langförull legðir í bók sinni um Stephan G. Stephansson, manninn og skáldið. Í sér- stökum kafla fjallar hann þó um afstöðu Stephans G. til heimalandsins og fóstur- landsins sem gefur okkur mikilsverðar upp- lýsingar um afstöðu skáldsins til þessara tveggja landa og þann mann sem yrkir Þó þú langförull legðir: Hið furðulega þrek til þess að skapa sér samræmi úr sundurleitni, sem Stephani var gefið, kemur fram í sambúð hans við Ísland og Ameríku. Hann var nógu víðfaðma til þess að skipta sér milli tveggja heimkynna, föðurlands og fósturlands, og vera báðum góður sonur. Ísland var honum heimalandið sem hafði óað hug hans og hjarta. „Íslands hvíta móðurhönd“ sleppti honum aldrei frá vöggu til grafar. Það er óskalandið, sem skín í minningunni, og þó léztu að fjölmörgum betur en mér. Hann þarf ekki að hugsa sér það fullkomið til þess að elska það: Kom þú blessað óskaland og lýður ljóða minna, hvernig sem þú ert. Um heimþrá sína er hann fáorður. Ættjarðarástin verður honum brýning í útlegðinni, að vera í senn landi sínu og sjálfum sér trúr, þjóð sinni til sóma …[ ] Hvað má ráða af lagaflutningi „Lag eitt og sér segir ekkert,“ sagði Jónas Ingimundarson píanóleikari á tónleikum sem hann hélt á vegum Háskóla Íslands árið 2004. „Það er ljóðið sem segir eitthvað. Þess vegna eru allflest lög samin við ljóð, því í þeim segir eitthvað. En hvaða umgjörð búa þessi tónskáld ljóðinu og hvað segja þessar umbúðir í lagaformi okkur um ljóðið?“ Ennfremur segir Jónas Ingimundarson í viðtali við Morgunblaðið fyrr á þessu ári.: „Náttúran er uppspretta tónlistarinnar að mínu mati, og þá tilfinningin og hugsunin. Þess vegna er ég mjög hændur að ljóða- söngvum. Ef gott ljóðskáld framkallar hugs- anir sínar í því knappa formi sem ljóðið er, og síðan kemur ekki síðra tónskáld og nær að ljá ljóðinu vængi – þar finnst mér tónlist- in kvikna. Tónninn er handan við orðið, hann tekur við af því.“ Margir hafa orðið til þess að túlka þetta ljóð síðastliðin 100 ár. Það fer ekki milli mála að langflestir gera það með lagi Sig- valda Kaldalóns. En það þýðir ekki að önnur lög verðskuldi að falla í gleymskunnar dá vegna þess. Í þeim mörgum felast fagrir tónar sem áhugavert verður að fylgjast með hvort nái auknum hljómgrunni. Hvað þýðir ljóðið fyrir mig? Hvað er það sem fær mann til að setjast niður og taka saman upplýsingar af þessu tagi? Líklega er einfaldasta svarið: hughrif. Hvað þýða ljóðið og lögin fyrir þig, kann einhver að spyrja. Það var venjuleg forvitni, tilviljun að festast við þetta ljóð vegna vest- urfarar með Rótarý-félögum árið 2004. Til- viljun sem leiðir til uppgötvunar, sem leiðir til leitar – og lærdómsferðar. Ævintýraferð sem maður veit ekki fyrirfram hvar endar. Eru það ekki svoleiðis ferðir sem okkur dreymir helst um í lífinu? Það er ekki auðvelt að læra þetta ljóð. Það situr ekki eftir fyrsta og annan lestur. Ljóðið ávarpar einstaklinginn þig og mig. Það segir okkur eitthvað um okkur sjálf, hvernig er að vera Íslendingur fjarri heima- landinu. Það speglar okkur sem einstaklinga og þjóð. Það hjálpar okkur að læra að þekkja okkur sjálf. Maður þarf ekki að hafa verið fjarri heimahögum til þess að skilja hvert skáldið er að fara í ljóðinu. Það auðveldar mönnum þó örugglega að skilja þennan boðskap ljóðs- ins, því þeir deila að hluta til reynsluheimi skáldsins í því að vera fjarri uppeldisslóðum sínum. Ekki er þar með sagt að þetta sé hinn eini boðskapur ljóðsins. Það getur sagt og verið öðrum eitthvað allt annað. En síð- ast en ekki síst hjálpa tónskáldin með tónum sínum við að klæða ljóðið í búning sem gefur vel til kynna mismunandi hughrif ljóðsins. Þess vegna þarf að koma fleiri lögum við ljóðið á framfæri. Lögin við Þó þú langförull legðir Íslendingadagurinn er haldinn hátíðlegur báðum megin landamæranna í Gimli í Manitoba, í Kanada og Mountain í Norður-Dakota í Bandaríkjunum í byrjun ágúst ár hvert. Íslendingadagurinn mun vera næstelsti þjóðræknidagurinn í Norður-Ameríku sem haldinn hefur verið samfellt. Aðeins Írar hafa haldið upp á slíkan hátíðardag lengur en Íslendingar og munar þó aðeins nokkrum árum. Ár hvert er tilnefndur ræðumaður á Íslendingadeginum í Kanada. Árið 1904 hélt Stephan G. Stephansson stutta ræðu til þess að ná athygli hátíðargesta. Í bókinni Andvökuskáld segir svo frá þessum atburði: „Á Íslendingadaginn 1904 hélt Stephan stutta setningarræðu, eiginlega til að þagga niður hátíðaskvaldrið og kynna þá sem fyrir minnum skyldu mæla. Þeir muni rifja upp æskuminn- ingar og breiða út framtíðarvonir á kjarnyrtri íslensku.“ “… takmarkalaust breiðablik af þús- und ára þjóðminningum,“ segir hann. Þó ræðan sé stutt er hún engu að síður merkileg þar sem skáldið lauk henni á tveimur kvæðum. Hið fyrra varð á síðari tímum langþekktasta kvæði hans, Þó þú langförull legðir. Eftir Svein Hjört Hjartarson sveinn@liu.is Höfundur er rekstrarhagfræðingur Langförull Ljóð Stephans G. var ort í afskekktum byggðum í Alberta í Kanada.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.