Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GUNNAR I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, sagðist vona að launa- málaráðstefnan leiddi til lausnar á kjaramálum starfsmanna sveitarfé- laganna. Hann lagði fram ákveðnar tillögur til lausnar á vandanum. Gunnar sagði málið brenna helst á skinni sveitarstjórna á höfuðborgar- svæðinu því þar sé þenslan mest og einnig hörð samkeppni við verslun og þjónustu um starfsfólkið. Engu að síður taldi hann að launabreytingar yrðu að ganga jafnt yfir öll sveitar- félög og sagði að aðrir fundarmenn hefðu verið sömu skoðunar. Gunnar leggur til að lægstu launa- töxtum sveitarfélaganna verði eytt frá og með 1. febrúar næstkomandi. Að starfsfólk fái eingreiðslur mán- aðarlega eða ársfjórðungslega og að þær fari eftir launum og hverfi við ákveðin mörk. Í greinargerð frá Gunnari kemur fram að með þessu myndu lægst launuðu starfsmenn sveitarfélag- anna, þ.e. starfsfólk í umönnun og aðrir með lægstu launin, fá um það bil 120–180 þúsund króna launa- hækkun á ársgrundvelli. Þá lagði Gunnar til við launanefnd- ina að kjaramál leikskólakennara yrðu tekin til endurskoðunar með það að markmiði að ná sátt milli leik- skólakennara og sveitarfélaganna. Gunnar kvaðst hafa legið talsvert yfir tillögum sínum og telur að með sinni nálgun verði komið í veg fyrir almennt launaskrið. „Það er ljóst að hinir lægst launuðu á almenna mark- aðinum munu krefjast þess sama. En með það eingöngu tel ég að það verði ekki mikil hreyfing á verðbólguþró- un. Ef Reykjavíkursamningarnir færu óbreyttir út þýddu þeir að verð- bólga færi úr 4% í 10%, skuldir heim- ilanna myndu hækka um 65 milljarða og afborganir á ári um 90 þúsund, lækkun kaupmáttar um 6% þannig að á einu ári myndi allur kaupmátt- araukinn fjúka út um gluggann!“ Gunnar I. Birgisson Lægstu laun hækki um 120– 180 þúsund á ári LÆGSTU laun verða hækkuð og mun launanefnd sveitarfélaga kynna niðurstöður sínar fyrir sveitarstjórn- um ekki síðar en 10. febrúar nk. Þetta er ljóst eftir að launamálaráð- stefna sveitarfélaga, sem haldin var í Reykjavík í gær, samþykkti að beina því til launanefndarinnar að fjalla um þær tillögur og hugmyndir sem fram komu á ráðstefnunni um leiðir til lausna í kjaramálum starfsmanna sveitarfélaga. Hvað eru lægstu laun? Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, for- maður launanefndarinnar, ræddi við blaðamenn eftir að ráðstefnunni lauk, en hún var lokuð blaða- og fréttamönnum. Hann sagði að það yrði vandasamt að ákveða hvar í launakerfinu hækkunin ætti að enda. „Menn geta auðvitað spurt sig að því hvað séu lægstu laun og hvað séu næstlægstu laun. Við viljum mjög gjarnan láta það gerast í þetta skipt- ið að það verði raunverulega lægstu launin sem hækka,“ sagði Gunnar. Hann taldi víst að þær aðgerðir sem gripið verður til mundu ekki opna kjarasamninga. Laun leikskólakennara voru einn- ig rædd á launamálaráðstefnunni. „Á þessari ráðstefnu datt engum í hug annað en að það yrði að taka á mál- um þeirra,“ sagði Gunnar. „Hins vegar eru menn ekki jafn sammála um leiðina sem fara á í því eins og í öðrum málum sem rædd voru.“ Hann sagði að málið yrði væntanlega rætt á fundi launanefndarinnar sem hófst skömmu eftir að ráðstefnunni lauk í gær. Gunnar sagði það grundvallarat- riði að launabreytingarnar ættu ekki að hleypa kjarasamningum í upp- nám. „Við ætlum að heimila sveit- arfélögum að greiða hærri laun en núgildandi kjarasamningar segja til um.“ Gunnar vildi ekki ræða ná- kvæmar upphæðir í þessu sambandi en sagði að um verulegar hækkanir á lægstu launum yrði að ræða. „Okkur er sagt að flýta okkur og vera búnir að þessu fyrir 10. febr- úar,“ sagði Gunnar. Það eru m.a. starfsmannafélög sveitarfélaganna og ASÍ-félögin sem semja við launa- nefndina eða rúmlega 50 félög. Gunnar sagði ljóst að sveitarfélögin vildu halda áfram miðstýringu í launamálum, hafa launanefnd og fá leiðbeiningar frá henni. Fylgja fordæmi Reykjavíkur Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, sagði að sér sýndist, miðað við umræðurnar á launamálaráðstefnunni, að almenn sátt væri að skapast þá leið sem Reykjavík ruddi og fylgja í kjölfarið varðandi laun þeirra lægstlaunuðu. „Ég er mjög ánægð með það að það sé að skapast svona almenn sátt um að skapa þjóðarsátt um hækkun lægstu launa.“ Varðandi málefni leikskólakenn- ara sagði Steinunn Valdís að menn hefðu verið að setja ákveðnar hug- myndir til skoðunar hjá launanefnd- inni og að hún myndi skila fljótlega tillögum um hvernig hægt yrði að leiðrétta laun leikskólakennara án þess að það hefði ruðningsáhrif til annarra stétta. Steinunn Valdís sagðist vera búin að semja við sitt fólk og aðrir þyrftu að svara fyrir sín sveitarfélög. Miðað við það sem hún hafði heyrt á ráð- stefnunni virtust allir vera orðnir sammála um að hækka lægstu laun- in. „Þá er markmiðinu náð, alla vega af okkar hálfu. Við vildum hreyfa við þessu máli,“ sagði Steinunn Valdís. Steinunn Valdís sagði að Reykja- víkurborg hefði verið gagnrýnd á ráðstefnunni fyrir sínar aðgerðir í launamálum. Hún kvaðst hafa svar- að gagnrýninni þannig að borgin hefði sett sér ákveðin markmið í síð- ustu kjarasamningum sem lutu að því að hækka lægstu launin og sér- staklega laun kvennastétta. „Ég stend og fell með því og kippi mér ekkert sérstaklega upp við það þótt Gunnar Birgisson og Kristján Þór Júlíusson skammi mig á þessari ráð- stefnu,“ sagði Steinunn Valdís. Eitt land og launakerfi Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, sagðist hafa á tilfinning- unni að fundarmenn mætu stöðuna mjög svipað. Annars vegar væri það sem sneri að starfsmannafélögunum og mismunandi samningum við þau. Hins vegar laun leikskólakennara en það mál væri annars eðlis. Lúðvík benti á að kjarasamningar þeirra væru lausir í haust og það gæfi t.d. kost á því að taka strax upp samn- ingsviðræður, því ekkert segði að það þyrfti að bíða fram á haust. „Svo togast á ólík staða sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Menn þurfa að horfast í augu við það,“ sagði Lúðvík. „En ég heyri að menn vilja heldur haldast í hend- ur en að slíta sig í sundur. Að það sé eitt land og eitt launakerfi.“ Veldur erfiðleikum úti á landi Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, taldi að niðurstað- an myndi gera sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins erfitt fyrir. „Eins og ég skil þetta er ljóst að launanefndin verður með einhverj- um hætti að mæta áhrifum af þeim kjarasamningum sem Reykjavíkur- borg og Efling gerðu. Það mun ef- laust leiða til viðræðna stéttarfélag- anna utan Reykjavíkur við ófaglærða,“ sagði Kristján Þór. Að auka ekki þenslu „Þetta horfir þannig við okkur að hér sé fólk svolítið að fara á taugum út af tímabundnu ástandi,“ sagði Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði. „Sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu munu ráða næstu skrefum í þessu máli og öll önnur sveitarfélög verða, hvort sem þeim líkar betur eða verr, að taka þátt og fara sömu leið.“ Að mati Halldórs bera sveitar- félögin á höfuðborgarsvæðinu, mikla ábyrgð að auka ekki á þensluna. Þau þyrftu heldur að skoða hvað þau gætu gert til að draga úr þenslunni. Halldór taldi að starfsmenn sveitar- félaga úti á landi biðu átekta eftir því hvað gerðist á höfuðborgarsvæðinu. „Það á við um leikskólakennara og aðra að fólk vill sömu laun fyrir sömu vinnu, hvar sem er á landinu. Það er bara eðlileg krafa og ég get ekki ann- að en verið sammála því viðhorfi.“ Launamálaráðstefna sveitarfélaga fól launanefnd að skila niðurstöðum um kjaramál fyrir 10. febrúar Eftir Guðna Einarsson og Jón Aðalstein Bergsveinsson Lægstu laun hækki í raun Morgunblaðið/Árni Sæberg Leikskólakennarar mótmæltu við upphaf fundar launanefndar sveitarfélaga í húsnæði Orkuveitunnar í gær. SAMFLOTI bæjarstarfsmanna- félaga eru mikil vonbrigði að launamálaráðstefna sveitarfé- laga hafi ekki gefið skýr skila- boð um hvernig eigi að leysa þann hnút sem launamál sveitar- félaganna eru í, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Samflotinu í gær. Þá segir í til- kynningunni: „Gert hafði verið ráð fyrir að ákveðin niðurstaða myndi fást á ráðstefnunni þar sem sveit- arstjórnarmenn höfðu vísað er- indum og beiðnum um leiðrétt- ingar á kjörum starfsmanna- félaga þangað til úrlausnar. Miklar væntingar voru bundn- ar við þessa ráðstefnu og nið- urstöður hennar, sér í lagi þar sem aðdragandi hennar var langur. Nú er ljóst að enn er málið í bið þar sem niðurstaða Launamálaráðstefnu Sambands sveitarfélaga er á þá leið að Launanefnd sveitarfélaga var falið að fjalla um tillögur og hugmyndir sem þar komu fram. Þær niðurstöður verða ekki kynntar sveitarstjórnum fyrr en 10. febrúar n.k. en ljóst er að þolinmæði starfsmanna sveitar- félaga endist ekki svo lengi.“ Niðurstað- an olli von- brigðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.