Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 70
70 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ SJÓNVARPIÐ tekur í ár þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva í nítjánda sinn en þá eru jafn- framt liðin 20 ár frá því að „Gleði- bankinn“ tók þátt í keppninni. Að þessu sinni var ákveðið að halda veg- lega forkeppni og valdi leynileg val- nefnd 24 lög úr þeim 216 lögum sem bárust í keppnina. Höfundar laganna eru 18 og því nokkrir sem eiga fleiri en eitt lag í keppninni. Lögin 24 sem keppa í undankeppn- inni verða frumflutt í beinni útsend- ingu í kvöld, 28. janúar og 4. febrúar en með því að hringja í 900- símanúmer eða senda SMS-skilaboð í 900-símanúmer (gjald 99 kr.) getur almenningur greitt ákveðnum lögum atkvæði sitt og þannig haft áhrif á hvaða fjögur lög komast áfram hvert kvöld. Úrslitakeppnin fer fram laug- ardaginn 18. febrúar en þá verða úr- slitin einnig ráðin í símakosningu. Dómnefnd, sem skipuð verður vegna forkeppninnar, verður eingöngu til vara. Lagið sem þar sigrar keppir svo fyrir Íslands hönd í forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva sem fer fram í Aþenu í Grikk- landi hinn 18. maí en aðalkeppnin fer fram 20. maí. Allar beinu útsending- arnar verða að viðstöddum áhorf- endum. Fyrirtækið BaseCamp sér um framkvæmd undankeppninnar fyrir hönd Sjónvarpsins en Síminn sér um framkvæmd símakosningar. Tíminn líður hratt Áður en Söngvakeppni Sjónvarps- ins hefst verður spurningaþáttur á léttum nótum um söngvakeppni lið- inna ára. Þjóðþekktir einstaklingar spreyta sig á spurningum þáttarins en eins og áður sagði eru 20 ár frá því að Íslendingar tóku fyrst þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva. Spyrill er Ragnheiður Eiríksdóttir, öðru nafni Heiða í Unun, og dómari er Haraldur Freyr Gíslason, betur þekktur sem Halli í Botnleðju. Höf- undur spurninga er enginn annar en Gísli Marteinn Baldursson, Evr- óvisjón-sérfræðingur með meiru. Tónlist | Fyrsta undanúrslitakvöld Söngvakeppni Sjónvarpsins Morgunblaðið/Sverrir Selma Björnsdóttir keppti fyrir Íslands hönd í fyrra en lagið komst ekki í úr- slitakeppnina. Lagið sem vinnur í ár þarf einnig að fara í gegnum forkeppni. 20 ár frá þátttöku „Gleðibankans“ Spurningakeppnin Tíminn líður hratt kl. 19.40 í Sjónvarpinu. Fyrsti hluti Söngvakeppni Sjónvarpsins 2006 kl. 20.10. BANDARÍSKA rokkabillí-bandið Kings of Hell spilar á vegum Bar 11 á Gauki á Stöng í kvöld en á morgun færa þeir sig upp holtið og leika á barnum sjálfum sem kenndur er við Laugaveg 11. Samkvæmt helstu rokkabillí-spekingum landsins er Kings of Hell eitt heitasta bandið sem leikur þessa tegund tónlistar og hefur Brian Setzer aðalsprauta hinn- ar goðsagnakenndu rokkabillí-sveitar Stray Cats kallaði þá „the new flame of rock and roll“ (nýjasta loga rokks- ins). Kings of Hell var stofnuð í sept- ember 2004 í Jacksonville Flórída eft- ir að rokkabillí-sveitin Deadmans Hand lagði upp laupana. Það skildi þá James „Fish“ Alcorn bassaleikara og Rick Nessmith gítarleikara eftir í lausu lofti en þeir voru þó ákveðnir að láta ekki deigan síga. Eftir þó nokkrar tilraunir til að mynda hljóm- sveit með innanbæjarmönnum var töfrablandan fundin upp og innan tíð- ar má búast við fyrstu plötu sveit- arinnar. Með Kings of Hell í kvöld leika Ha- irdoctor, Jan Mayen og Úlpa en Krummi í Mínus mun einnig koma til með að spila nokkur lög með Kings of Hell. Á morgun sunnudag verður það hljómsveitin Langi Seli og Skugg- arnir sem leikur með Kings of Hell. Tónlist | Langi Seli og Skuggarnir hita upp fyrir Kings of Hell á Bar 11 Rokkabillí-sveitin Kings of Hell er stödd á landinu. Rokka- billíkóngar helvítis Kings of Hell verða á Gauki á Stöng í kvöld. Forsala er hafin í Ósóma Laugavegi 28. Miðaverð er 500 krónur. Á sunnudagskvöldið spilar sveitin á Bar 11. Ókeypis aðgangur. María – Gunnar Ólason Lag: Roland Hartwell, texti: Birgir S. Klingenberg Ég sé – Íris Kristinsdóttir Lag og texti: Íris Kristinsdóttir Þér við hlið – Regína Ósk Lag: Trausti Bjarnason, texti: Magnús Þ. Sigmundsson Sést það ekki á mér? – Matthías Matthíasson Lag og texti: Sigurður Örn Jónsson, texti: on Það sem verður – Friðrik Ómar Lag: Hallgrímur Óskarsson, texti: Lára Unnur Ægisdóttir Stundin, staðurinn – Þóra Gísladóttir og Edgard S. Atlason Lag og texti: Ómar Þ. Ragnarsson Í faðmi þér – Maríanna Másdóttir Lag: Ingvi Þór Kormáksson, texti: Valgeir Skagfjörð Strengjadans – Davíð Þ. Olgeirsson Lag og texti: Davíð Þ. Olgeirsson Lögin sem flutt verða í kvöld VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM**** THE FOG Stranglega bönnuð innan 16 ára eeee Ó.Ö.H. / DV A.G. / BLAÐIÐ eee D.Ö.J. / Kvikmyndir.com eeee “…mikið og skem- mtilegt sjónarspil...” H.J. / MBL FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! Þegar þokan skellur á…er enginn óhultur! Mögnuð hrollvekja sem fær hárin til að rísa! 4Golden Globe verðlaun m.a. besta mynd, besti leikstjóri og besta handrit eeee MMJ Kvikmyndir.com „... ástarsaga eins og þær gerast bestar - hreinskilin, margbrotin og tilfinningarík...“ eeeee L.I.B. - Topp5.is „…langbesta mynd Ang Lee til þessa og sennilega besta mynd sem gerð var á síðasta ári.“ eeeee S.K. - DV „Mannbætandi Gullmoli“ „…Mynd sem þú verður að sjá [...] Magnþrungið listaverk sem mun fylgja áhorfandanum um ókomin ár“ eeeee S.V. MBL STÓRKOSTLEG SAGA UM ÁSTIR OG ÁTÖK BYGGÐ Á HINNI ÓGLEYMANLEGU METSÖLUBÓK EFTIR ARTHUR GOLDEN 2GOLDEN GLOBE TILNEFNINGARBESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI: ZIYI ZHANGBESTA KVIKMYNDATÓNLIST: JOHN WILLIAMS FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNA- LEIKSTJÓRA "CHICAGO" BESTA TÓNLISTIN, JOHN WILLIAMS GOLDEN GLOBE VERÐLAUN THE FOG kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA BROKEBACK MOUNTAIN kl. 2, 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA BROKEBACK MOUNTAIN Í LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 10.45 MEMOIRS OF A GEISHA kl. 5 og 10 CHEAPER BY THE DOZEN 2 kl. 2, 4, og 6 HOSTEL kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 6, og 8 B.I. 14 ÁRA DRAUMALANDIÐ kl. 2 og 4 BROTHERS GRIMM kl. 2 B.I. 12 ÁRA THE FOG kl. 8 B.I. 16 ÁRA HOSTEL kl. 10 B.I. 16 ÁRA CHEAPER BY THE DOZEN 2 kl. 2, 4, 6 og 8 JUST FRIENDS kl. 4 DRAUMALANDIÐ kl. 2 ÍSL. TAL Epískt meist Sími - 564 0000Sími - 462 3500 N ý t t í b í ó
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.