Morgunblaðið - 06.02.2006, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 F 63
Bæjar l ind 6 • 201 Kópavogur • S ími : 575 8800 • Fax : 575 8801 • www.nethus. is
Laufrimi 112 Rvík
Sérinngangur
Vel skipulögð og falleg endaíbúð með
sérinngangi á efstu hæð með góðu út-
sýni. Gólfefni og innréttingar eru vand-
aðar. Stutt í þjónustukjarna. Verð 21,9
millj.
3ja herbergja
Elín D.W. Guðmundsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Skógarás 110 Rvík
Falleg 3ja herbergja, 65,7 fm íbúð á
jarðhæð með verönd. Sameign snyrtileg
með þurrkherbergi, sérgeymslu í kjall-
ara, vagna-og hjólageymslu. Örstutt í
skóla og leikskóla, svo og alla almenna
þjónustu. Gott útsýni. Verð 15,9 millj.
3ja herbergja
Hrísmóar 210 Gbæ
Ný á sölu: 2ja-3ja herbergja 77 fm íbúð
á fyrstu hæð í Garðabæ. Íbúðin er sér-
staklega vel skipulögð. Stofa er rúmgóð.
Útgengt á svalir frá svefnherbergi og
stofu. Baðherbergi er flísalagt á veggj-
um og dúkur á gólfi. Þvottahús er innan
íbúðar.
2ja til 3ja herb.
Drekavellir 221
Hfj.
Vel skipulögð 105,4 fm íbúð. Gólfefni er
eikarparket og eru allar innréttingar og
hurðir úr eik. Baðherbergi er rúmgott
m/flísum og upphengdu salerni.
Þvottah. og geymsla m/flísum innan
íbúðar. Íbúðin er fullkláruð. Verð 24,9
millj.
4ra herbergja
Ljósavík 112 Rvík
Falleg 3ja-4ra herbergja, 104,7 fm end-
aíbúð með sérinngangi á eftirsóttum
stað í Grafarvogi. Innréttingar eru sér-
smíðaðar úr eik. Hurðar og dyrakarmar
úr eik. Gólfefni íbúðar er gegnheilt olíu-
borið eikarparket og gráar flísar. Glæsi-
legt útsýni til norðurs. Íbúð í snyrtilegu,
litlu fjölbýli í rólegu hverfi. Verð 24,7
millj.
4ra herbergja
Bergstaðastræti
101 Rvík
Mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð
ásamt viðbyggingu, samtals um 90 fm.
Búið er að endurnýja rafmagn-, vatns-
og skolplagnir. Ný eldhúsinnrétting. Nýj-
ar hurðir. Náttúrusteinn og parket á
gólfum. Sérgarður. Mjög falleg eign á
þessum eftirsótta stað. Verð 18,5 millj
4ra herbergja
Ástún 200 Kóp.
Rúmgóð 3ja herbergja 78 fm íbúð á
efstu hæð með fallegu útsýni. Eldhús
með ágætri innréttingu og góðum borð-
krók. Tvö svefnherbergi m/skápum.
Tvennar svalir. Eignin er laus við kaup-
samning. Verð 16,5 millj.
3ja herbergja
Sléttahraun 220
Hfj. m/bílskúr
NÝ Á SÖLU: 2ja herbergja 57 fm íbúð
ásamt 27 fm bílskúr. Forstofa og eldhús
eru flísalögð á gólfi en parket er á stofu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf.
Eldhúsinnrétting er nýleg með góðum
háfi. Borðkrókur er við eldhúsglugga.
2ja herbergja
Laufengi 112 Rvík
- sérinngangur
Vorum að fá í sölu mjög fallega og
góða 3ja herbergja 85,6 fm íbúð með
sérinngangi. Íbúðin skiptist í tvö svefn-
herbergi, eldhús með borðkrók, rúm-
góða stofu og stórt baðherbergi. Björt
og falleg eign á eftirsóttum stað, stutt í
alla þjónustu. Verð 17,9 millj.
3ja herbergja
Kristnibraut 113
Rvík
Falleg og vel skipulögð 93 fm íbúð á
jarðhæð. Tvö rúmgóð svefnh. m/skáp-
um. Gólfefni íbúðar er eikarparket og
flísar. Allar innréttingar úr birki (spón).
Fallegt eldhús, rúmgott og bjart með
AEG tækjum. Mjög stutt í barnaskóla.
Verð 23,4 millj.
3ja herbergja
Dofraborgir 112
Rvík
Glæsilegt 201 fm einbýlis hús á einni
hæð með innbyggðum bílskúr. Skjólsæl,
stór verönd með heitum potti. Hiti í bíl-
aplani og stéttum. Undir öllu húsinu er
ósamþykktur kjallari. Vandað nýlegt hús
sem stendur neðan við götu með góðu
útsýni. Fallegar gönguleiðir með strönd-
inni. Verð 49,9 millj.
Einbýlishús
Veghús 113 Rvík
Vel skipulögð 140 fm íbúð á tveimur
hæðum. Eldhús og rúmgóð borðstofa,
útgengt þaðan út á stórar suðursvalir.
Parket og flísar á neðri hæð korkur og
flísar á þeirri efri. Gestasnyrting á neðri
hæð og mjög stórt baðherbergi á efri
hæð.
5 til 7 herbergja
LAUS
LAUS
FLJÓT
LEGA
Mosfellsbær – Fasteignasala Mos-
fellsbæjar er nú með í sölu par-
húsið Blikahöfða 14. „Þetta er mjög
fallegt og vel skipulagt 184,7 ferm.
parhús á einni hæð, þar af er rúm-
góður 39,3 ferm. innfelldur bíl-
skúr,“ segir Einar Páll Kjærnested
hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar.
Komið er inn í forstofu með flís-
um á gólfi og forstofuskáp úr beyki.
Úr forstofu er innangengt í rúm-
góðan bílskúr með góðu geymslu-
plássi og millilofti. Úr forstofu er
komið inn í hol með flísum á gólfi.
Þar á hægri hönd er opið inn í flísa-
lagt eldhús með góðum borðkrók.
Í eldhúsi er glæsileg U-laga
beykiinnrétting með harð-
plastlagðri borðplötu. Í eldhús-
innréttingu er hvítur Siemens
blástursofn í borðhæð, keramik
helluborð og vifta og auk þess
fylgir uppþvottavél í innréttingu.
Flísar eru á milli efri skápa og
borðplötu og góð lýsing undir efri
skápum.
Við hlið eldhúss er flísalagt
þvottahús með góðu geymsluplássi
og sérútgangi út í garð. Á móti eld-
húsi er gestasalerni, flísalagt í hólf
og gólf, með beykiinnréttingu. Úr
holi er opið inn í stóra stofu og
borðstofu með flísum og beyki-
parketi á gólfi, í borðstofu er sér-
smíðað borðstofuborð, sem hægt er
að fella upp á vegg.
Þar á vinstri hönd er glæsilegt
baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf
með sturtuklefa og baðkari, beyki
innréttingu og handklæðaofni. Yfir
baðherbergi hefur verið innréttað
lesherbergi undir súð, um 8 ferm.
gólfflötur (ósamþykkt).
Úr stofu er gengið út á um 50
ferm. afgirta timburverönd í suð-
vestur, með heitum potti. Við hlið
þvottahúss er gott hjónaherbergi
með beykiparketi á gólfi og einföld-
um fataskáp. Úr stofu er lítill
svefnherbergisgangur með plastp-
arketi á gólfi. Þar er gengið inn í
þrjú svefnherbergi með plast-
parketi á gólfi.
Mikil lofthæð er í íbúðinni og loft
eru klædd með þiljum í viðarlíki.
Húsið er hlaðið með einangr-
unarkubbum og múrað, en aluzink
bárujárn er á þaki. Mjög stórt
hellulagt bílaplan er fyrir framan
húsið, með snjóbræðslu. Gott
geymslurými er á lóðinni að aust-
anverðu og stór timburverönd að
suðvestanverðu.
„Húsið stendur á frábærum
stað,“ sagði Einar Páll Kjærnested
að lokum. „Það er mjög stutt í nýj-
an skóla og leikskóla, auk þess sem
sundlaug er í byggingu. Golfvöllur
Mosfellsbæjar er í tveggja mínútna
göngufæri og margar gönguleiðir í
næsta nágrenni.“ Ásett verð er 45,6
millj. kr.
Blikahöfði 14
„Þetta er mjög fallegt og vel skipulagt 184,7 ferm. parhús á einni hæð, þar af rúmgóður 39,3 ferm. inn-
felldur bílskúr,“ segir Einar Páll Kjærnested hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar, þar sem húsið er í sölu. Ásett
verð er 45,6 millj. kr.