Morgunblaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 1
2006  LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR BLAÐ D KÖRFUKNATTLEIKUR: BIKARBARÁTTA Í HÖLLINNI / D4 RÚSSNESKA skíðagöngukonan Olga Pyleva var í gær úrskurðuð í tveggja ára keppnisbann af Alþjóða ólympíunefndinni, IOC, en hún féll á lyfjaprófi sem tekið var sl. mánudag eftir að hún varð önnur í 15 km skíðaskotfimi. Pyleva fékk tækifæri til þess að útskýra sína hlið á málinu í Tórínó og þar sagði hún að um mistök væri að ræða en í A-og B-sýni sem tekið var eft- ir keppnina kom í ljós að hún hafði notað örv- andi lyf sem var á bannlista IOC. „Ég hef aldrei notað ólögleg lyf og hér eru um mistök að ræða. Ég hef sagt satt og vonaðist til þess að orð mín væru tekin trúanleg,“ sagði Pyleva. Læknir hennar Nina Vinogradova fékk einnig tveggja ára bann. Pyleva ætlar að höfða skaðabótamál gegn lyfjaframleiðanda en hún telur að lyf sem hún hafi tekið vegna meiðsla í ökkla hafi gert það að verkum að hún féll á lyfjaprófinu. Pyleva í tveggja ára keppnisbann B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A Anders Aukland frá Noregi end-aði í 21. sæti, Odd-Bjørn Hjelmeset varð 28. og Jens Arne Svartedal varð 45. Andrus Veerpalu frá Eistlandi sigraði í greininni, Tékkinn Lukas Bauer varð annar og Þjóðverjinn Tobias Angerer þriðji. „Ég var í miklum vafa um þann áburð sem settur var á skíðin fyrir keppnina. Eftir á að hyggja hefði ég átt að standa fastar á minni skoðun. Við vorum með áburð sem hentaði fyrir þurrt færi en aðstæður breytt- ust og ég komst lítið áfram. Ég við- urkenni að ég missti áhugann þegar á leið einfaldlega vegna þess að ég vissi að ég gat ekki rennt mér niður brekkurnar á sama hraða og aðrir og þegar ég fór upp brekku vantaði allt grip í skíðin. Ég sat bara fastur,“ sagði Estil. Terje Langli sem er yfirmaður tæknimála hjá norska skíðagöngu- landsliðinu sagði að hann bæri alfar- ið ábyrgðina á því „klúðri“ sem hafi átt sér stað. „Að þessu sinni tökum við á okkur sökina. Strákarnir eru allir það góðir að þeir áttu möguleika á verðlaunum en þeir áttu ekki möguleika vegna mistaka okkar. Það er nógu slæmt að gera mistök en það er enn verra þeg- ar það bitnar á keppendum,“ sagði Langli við norska dagblaðið Verdens Gang. Norðmenn sátu fastir LIÐSMENN norska skíðagönguliðsins eru allt annað en ánægðir með árangur sinn í 15 km göngu í gær með hefðbundinni aðferð en greinin hefur verið ein sterkasta hlið norskra skíðagöngumanna. Frode Estil náði besta árangri Norðmanna í gær er hann kom 17. mark og segir Estil að hann hafi átt að standa fastar á sinni skoðun hvað varðar val á skíðum og skíðaáburði fyrir keppnina. Estil telur að tæknimenn norska landsliðsins sem sjá um val á áburði hafi gert mistök – og yfirmaður þeirrar deildar tekur undir orð Estil. DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir hafnaði í 31. sæti í svigi í alpatvíkeppni á Ól- ympíuleikunum í Tórínó í gær. Ekki var hægt að ljúka tvíkeppninni í gær þar sem keppni í bruni var frestað vegna veðurs en brunkeppnin hefur verið sett á dagskrá fyrir hádegi í dag. Dagný Linda, sem lítið sem ekkert hef- ur æft svig í vetur, varð 11,38 sek- úndum á eftir Marles Schild frá Aust- urríki sem er í forystu, Janica Kostelic frá Króatíu er önnur og Katrin Zettel frá Austurríki þriðja. Dagný varð næstsíðust af þeim keppendum sem tókst að ljúka keppni en 32 stúlkur skiluðu sér í mark í síðari ferðinni – alls heltust 11 stúlkur úr leik. ,,Ég var nú bara ánægð að hafa tek- ist að komast niður báðar ferðirnar. Eins og ég hef áður sagt er svigið ekki mín grein og nú stefni ég bara að því að færa mig ofar í sætaröðina með því að standa mig í bruninu. Ég vona að ég endurtaki leikinn frá því í brunkeppn- inni,“ sagði Dagný Linda við Morg- unblaðið í gærkvöldi en hún verður í eldlínunni í brunkeppninni fyrir há- degi í dag og á morgun tekur hún þátt í risasvigi. Guðmundur Jakobsson, aðalfar- arstjóri íslenska ólympíuhópsins, sagði við Morgunblaðið að hann væri ekki allt of bjartsýnn á að keppni í bruni gæti farið fram í dag þar sem veð- urspáin um helgina væri frekar slæm. Reuters Dagný Linda Kristjánsdóttir á fleygiferð í svigkeppninni á ÓL í gær. Á myndinni hér til hliðar er hún komin í mark í seinni umferðinni. Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is Dagný Linda ánægð að hafa komist niður brautina JOSE Mourinho, knattspyrnu- stjóri Chelsea, vísaði í gær á bug ásökunum spænskra fjölmiðla og leikmanna Barcelona um að það væri með ráðum gert að hafa völl félagsins, Stamford Bridge, í mjög slæmu ásigkomulagi. Sjálf- ur líkir Mourinho vellinum við kartöflugarð frekar en knatt- spyrnuvöll en varla er stingandi strá eftir á vellinum. Chelsea tekur á móti Spánarmeisturum Barcelona í 16 liða úrslitum Meistaradeildinnar á miðviku- dag, í leik sem beðið er eftir með mikilli eftirvæntingu, og eins og völlurinn lítur út þá óttast menn að fátt verði um fína drætti í þeim aðstæðum sem völlurinn hefur upp á að bjóða. Það er heldur ekki til að bæta úr skák að á morgun fer fram leikur á Stamford þegar Chelsea og Col- chester eigast við í bikarnum. ,,Við vitum að völlurinn er ekki góður en að við munum hagnast á því eins og spænskir fjölmiðlar hafa haldið fram er ósanngjarnt að segja. Það er bara heimskt fólk sem heldur að jafn góðir leikmenn og skipa lið Chelsea geti verið ánægðir þeg- ar völlurinn lítur svona út,“ sagði Mourinho. Líkir Stamford Bridge við kartöflugarð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.