Morgunblaðið - 21.05.2006, Blaðsíða 68
68 SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Að minnsta kosti 81 hefur
fallið í á-tökum lög-reglu og
með-lima glæpa-samtaka í
Brasilíu. Sam-tökin hafa
sprengt strætis-vagna, banka
og lögreglu-stöðvar og halda
um 300 manns í gísl-ingu í
tugum fang-elsa í landinu.
Hefndar-aðgerðir
glæpa-samtakanna hófust
þegar lög-reglan flutti 765
fél-aga sam-takanna PCC í
fang-elsi með há-marks
öryggis-gæslu. Þannig vildi
lög-reglan koma í veg fyrir að
sam-tökin gætu stjórnað
að-gerðum utan fang--
elsanna.
Luiz Inacio Lula da Silva,
for-seti Brasilíu, hefur boðið
Claudio Lembo, ríkis-stjóra
Sao Paulo-ríkis, að-stoð við
að stöðva hefndar--
aðgerðirnar. Ríkis-stjórinn
segir sína menn ráða við
á-standið.
Brasilíu-forseti boðaði
samt ríkis-stjórnina á
neyðar-fund í gær vegna
á-standsins, sem talið er
geta haft nei-kvæð á-hrif á
ferða-þjónustu landsins.
Þetta eru umfangs-mestu
og blóð-ugustu að-gerðir sem
glæpa-gengi í Brasilíu hafa
staðið fyrir.
Reuters
Ó-nýtir strætis-vagnar í Sao Paulo.
Blóð-bað í Brasilíu
Sigur og tap gegn Hollendingum
Íslenska kvennalands-liðið í
hand-knattleik tapaði gegn
Hol-lendingum á miðviku-
dags-kvöld, 25:21. Bæði liðin
léku mjög illa. Íslensku
stúlkurnar höfðu áður unnið
Hol-lendingana 29:28 í
æsi-spennandi leik.
Mót-mæli í Tyrk-landi
Tug-þúsundir manna komu á
fimmtu-daginn saman við
graf-hýsi Mustafa Kemal
Atatürks, stofnanda
tyrk-neska ríkisins. Þeir vildu
mót-mæla morði á dómara og
til-raunum til að gera Tyrk-land
að íslömsku ríki.
Da Vinci í Cannes
Kvikmynda-hátíðin í Cannes
var sett á fimmtu-daginn. Á 11
dögum verður sýndur mikill
fjöldi mynda hvaðan-æva úr
heiminum. Da Vinci lykillinn
var frum-sýndur þar og fékk
mjög slæmar við-tökur.
Stutt
Talið er að allt að 105 hafi
látið lífið í á-tökum sem komu
upp milli liðs-manna
talibana-hreyfingarinnar og
afganskra og alþjóð-legra
öryggis-sveita á miðviku-
dags-nótt í suður-hluta
Afganistans. Þetta er með
hörðustu á-tökunum frá því að
Banda-ríkin og banda-menn
þeirra steyptu stjórn tali-bana
af stóli haustið 2001.
Einn versti bar-daginn var í
Helmand-héraði þar sem
hundruð tali-bana gerðu á-rás
á bæki-stöðvar afgönsku
lög-reglunnar. Barist var í um
átta klukkustundir og féllu 40
talibanar og 13 lögreglu--
menn.
105 falla í
Afganistan
Banka-stjórn Seðla-bankans
hækkaði stýri-vexti um 0,75%
á fimmtudags-morgun, eða úr
11,5% í 12,25%. Er þetta 14.
vaxtahækkun Seðla-bankans
frá því í maí 2004, þegar
stýri-vextir voru 5,30%. Davíð
Oddsson seðlabanka-stjóri
segir að enn sé ekki hægt að
sjá að út-lán banka og
spari-sjóða hafi minnkað, eða
að minna sé að gerast á
íbúða-markaðinum.
Banka-stjórar viðskipta--
bankanna segja hins vegar að
veru-lega hafi dregið úr
út-lánum bankanna undan--
farið. Halldór J. Kristjánsson,
banka-stjóri Lands-bankans,
segir að þegar að-stæður
breytist í sam-félaginu taki
það tíma fyrir áhrifin að koma
fram. Bæði stýrivaxta--
hækkanir og minni
lán-veitingar bankanna.
Stýri-vextir
hækka
Silvía Nótt komst ekki áfram í Evró-visjón,
söngva-keppni evrópskra sjónvarps-stöðva
sem haldin var í Aþenu í Grikk-landi. Þetta
er annað árið í röð sem Ísland er ekki með
í úrslita-keppninni. Löndin sem komust
áfram eru: Rúss-land, Makedónía,
Bosnía-Hersegóvína, Litháen, Finn-land,
Úkraína, Ír-land, Sví-þjóð, Tyrk-land og
Armenía.
Það var bæði púað og klappað þegar
Silvía Nótt steig á svið. Margir biðu þess
spenntir hvort Silvía myndi blóta í laginu,
en það gerði hún ekki.
Íslend-ingar tóku fyrst þátt í Evró-visjón
fyrir 20 árum, og aldrei hefur fram-lag
okkar vakið jafn-mikla at-hygli og í ár, og
mikið deilt um Silvíu Nótt, fram-komu
hennar og til-gang.
Morgunblaðið/Eggert
Glæsi-leg Silvía Nótt á sviðinu í Aþenu.
Silvía Nótt úr keppniBarcelona varð ámiðvikudags-kvöld
Evrópu-meistari í knatt--
spyrnu í annað skipti. Liðið
vann Arsenal 2:1, í
átaka-miklum úrslita-leik í
París. Barcelona varð áður
Evrópu-meistari vorið 1992
þegar liðið vann Sampdoria í
úrslita-leik.
Leik-menn Arsenal voru
mjög ó-hressir með úr-slitin.
„Við hefðum vel getað unnið
[...] og þess vegna er
virki-lega sárt að hafa ekki
náð því,“ sagði Svíinn Fredrik
Ljungberg og Thierry Henry
fyrir-liði Arsenal var mjög
reiður út í norska dómarann,
Terje Hauge, sem honum
fannst standa sig afar illa.
Mark-verði Arsenal var
vísað af leik-velli en samt
náði enska liðið for-ystunni
og hélt henni þar til 15
mínútur voru eftir af leiknum.
Þá tókst Samuel Eto’o að
jafna og Juliano Belletti
skoraði sigur-markið 4
mínútum síðar.
Reuters
Kátir leik-menn Barcelona.
Barcelona
Evrópu-
meistari
Fjöl-mennur fundur um
þjóðar-átak í málum
aldraðra var haldinn á
þriðjudags-kvöld í
Háskólabíói. Um þúsund
manns komu á fundinn,
sem Lands-samband eldri
borgara og Aðstandenda--
félag aldraðra stóð fyrir.
Siv Friðleifsdóttir
heilbrigðis-ráðherra tók við
undir-skriftum 12.806
ör-yrkja og eldri borgara.
Voru undir-skriftirnar
á-skorun um að bæta kjör
þeirra og af-nema
tekju-tengingu við maka.
Stefán Ólafsson
prófessor flutti erindi á
fundinum um lífs-kjör
aldraðra á Íslandi.
Niður-staða hans var að
hags-munir eldri borgara og
ör-yrkja hefðu gleymst í
góð-ærinu sem ríkt hefði hér
á landi frá 1995.
Tók Stefán dæmi um
aukna skatt-byrði eldri
borgara og lág-tekjufólks á
þessu tímabili. Sagði hann
líka að kaup-máttur þessa
fólks hefði aukist minna en
tekju-hærri hópa í
þjóð-félaginu.
Í pallborðs-umræðunum
eftir á voru þátt-takendur
sam-mála um að mál-efni
aldraðra færu yfir til
sveitar-félaga.
Einnig að ein-falda þyrfti
bóta-kerfi almanna--
trygginga, draga úr
tekju-skerðingu vegna
atvinnu-tekna aldraðra og
gera á-tak í búsetu-málum.
Þjóðar-átak í mál-efnum aldraðra