Morgunblaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR                                                                        !      "       # $%       !"# &                        '       (  "                               "              # $%  #$$ %   &&&' ' (    )*+ ),-. /01  2, 3 !3  4   5  # )    !*                    "                         !*                  *  +        !     , *  Sauðárkrókur | Brunavörnum Skagafjarðar hefur formlega verið af- hentir tveir bílar, sem stórbæta tækjakost slökkviliðsins sem aðsetur hefur á Sauðárkróki. Við athöfn, sem efnt var til af þessu tilefni, sagði Ósk- ar Stefán Óskarsson slökkviliðsstjóri að nú væru mikilvæg tímamót hjá slökkviliðinu með tilkomu þessara tveggja ágætu bíla. Lýsti Óskar nýjum Renault Kerax 412 hestafla tankbíl, sem keyptur er af Ólafi Gíslasyni & co - Eldvarnamið- stöðinni hf. en framleiddur hjá slökkvibifreiðaverskmiðjunni Wawrz- aszek í Póllandi. Bíllinn er á þremur driföxlum og ber rúma 11.000 lítra af vatni auk 200 lítra af léttvatni og get- ur dælt 4.000 lítrum á mínútu. Sagði Óskar að bíll þessi væri sá stærsti og öflugasti sem nú væri í eigu Íslend- inga, en skrifað var undir kaupsamn- ing bílsins í lok ágúst á síðasta ári. Svipaður bíll, heldur minni, frá sama framleiðanda og innflytjanda, fer til Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar. Fram kom í ræðu Óskars að kaup- verð bílsins með öllum viðbótarbúnaði væri 20,5 milljónir króna. Notaður körfubíll Þá gerði Óskar grein fyrir kaupum sveitarfélagsins á körfubíl sem feng- inn var frá Akureyri, þar sem þar þurfti á bíl að halda sem næði lengra og hærra en þessi getur, en hann hinsvegar hentaði hér mjög vel. Sagði Óskar að hér væri um gjörbyltingu að ræða sem gerði slökkviliðsmönnum kleyft að vinna af mun meira öryggi við björgun fólks úr hærri bygging- um, en körfubíll hefur ekki áður verið í tækjakosti slökkviliðsins. Um er að ræða Volvo-bíl, árgerð 1983, sem hef- ur mestu vinnsluhæð 23 metra en get- ur einnig unnið 15 metra útfrá sér. Þakkaði Óskar sveitarstjórnar- mönnum að hafa nú gert langþráðan draum að veruleika, að liðið eignaðist einn besta slökkvibíl sem völ væri á, en einnig og ekki síður að bregðast svo skjótt við þegar körfubíllinn bauðst, þar sem kaup á honum voru ekki inni á áætlunum sveitarfélagsins að þessu sinni. Tveir nýir bílar stórbæta tækjakost slökkviliðsins Morgunblaðið/Björn Björnsson Nýtt tæki Óskar Stefán Óskarsson, slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Skagafjarðar, ávarpar gesti við hlið nýja slökkvibílsins. Eftir Björn Björnsson AKUREYRI LANDIÐ SAMIÐ hefur verið við Örn Inga Gíslason, fjöllistamann, um gerð heimildarmyndar um byggingu menningarhússins við Strandgötu á Akureyri. Megin markmiðið með verkefninu er að skrá- setja vandlega í myndum og orðum undirbúning og framkvæmd Menn- ingarhúss og tónlistar- skóla. Tilgangurinn er sá að bæjarbúar og aðrir geti fylgst með fram- vindu verksins og einnig til þess að stuðla að því að góðar sögulegar heimildir verði til um framvindu verkefn- isins, skv. frásögn á heimasíðu bæjarins. „Þetta er mín hugmynd og hún var reynd- ar í tvennu lagi; mér fannst að líka ætti að fylgjast með og mynda breytingu miðbæj- arins samkvæmt verkefninu Akureyri í önd- vegi, en það er svo stórt fyrirtæki og hefði tekið svo langan tíma að ekki var hægt að festa hönd á það núna. En bæjaryfirvöld vilja hins vegar fylgjast með þessu húsi, sem á eftir að standa í margar aldir,“ sagði Örn Ingi við Morgunblaðið um samning sinn við Akureyrarbæ, vegna menningarhússins. „Ég hef aldrei fengið svona skemmtilegt verkefni.“ Örn Ingi segir stefnt að því að myndin verði um það bil klukkustundarlöng og að hún verði frumsýnd strax í framhaldi þess að húsið verður vígt. „Mér vitanlega hefur ekkert sveitarfélag gert svona samning. Slík mynd hlýtur að verða gerð um tónlistarhúsið í Reykjavík, en við erum að minnsta kosti á undan!“ Örn Ingi gerir heimildarmynd um menn- ingarhúsið Örn Ingi Gíslason Fræðimenn | Framhaldsstofnfundur Fé- lags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi verður haldinn í Húsmæðra- skólanum gamla við Þórunnarstræti á Ak- ureyri í dag, þriðjudag, kl. 20. „ÉG er bara að drepa tímann,“ segir Aðalsteinn Vestmann, list- málari og fyrrverandi kennari, spurður um tilurð sýningar sem hann er nú með í Deiglunni í Listagilinu á Akureyri. Alli sýn- ir þar 60 verk, bæði vatnslita- og akrýlmyndir. Sýningin hófst fyrir helgi og er opin daglega kl. 14 til 18. Aðalsteinn Vestmann starfaði í áratugi sem myndmennta- kennari við Barnaskóla Ak- ureyrar en sinnti listinni jafn- framt. Eftir að hann hætti kennslu fyrir þremur árum hef- ur hann verið duglegur að mála. „Aðalatriðið er að láta sér líða vel og mér líður illa ef nokkrir daga líða án þess að ég geti sullað! Ég þarf ekki annað en að ná mér í liti og dunda í þrjá til fjóra tíma; þá er ég endurnærður.“ Aftur í abstrakt Listamaðurinn sýnir gesti sínum, blaðamanninum, vatns- litamyndirnar. „Þessar eru elst- ar,“ segir hann og bendir upp í eitt hornið. „Þarna er ég svona í og með að líkja eftir ein- hverju.“ Eftir því sem neðar dregur þekkir hvert mannsbarn á Akureyri líklega staðina á myndunum, „en svo fékk ég leið á þessu og fór alveg út í abstrakt,“ segir Alli og snýr sér í hálfhring – bendir á nýjustu myndirnar. „Þarna leyfi ég penslunum bara að ráða. Engin teikning, bara að byrja og ég er svo heppinn að ég á dálítið góða pensla!“ Á einni myndinni eru svo föl- ir hestar að þeir sjást varla. En það er engin tilviljun. „Þetta eru hestar að handan. Þegar við hjónin keyrðum einhverju sinni framhjá kirkjugarðinum varð mér litið þangað niður eft- ir og sagði við Birnu að það hlyti eitthvað að vera að þess- um hestamönnum; hvort þeir héldu að það væru reiðgötur í kirkjugarðinum? Hún svaraði því engu og þegar ég leit þang- að aftur voru auðvitað engir menn og engir hestar. Ég sá bara nýteknar grafir.“ Hann hlær og segir svo: „Margt getur vitlausum dottið í hug, eins og þar stendur.“ Nú má ég allt Alli kenndi lengi, sem fyrr segir, og segir það í raun hafa hamlað sér nokkuð sem lista- manni – börnin hafi stundum haft orð á því að myndir hans væru óskiljanlegar og þær skoðanir líklega verið ættaðar frá foreldrunum. „En eftir að ég hætti að kenna get ég gert hvað sem er. Nú kemur það engum við hvað ég geri!“ Hann vann lengi með börnum og segir þau ávallt hreinskilin. „Einu sinni spurði mig stúlka sem var að byrja hjá mér hvort ég væri nokkuð strangur. Pabbi segir það og mamma segir það! bætti hún við. Þegar ég lofaði henni að vera ekki strangur létti henni greinilega og faðm- aði mig. Blessað barnið.“ Síðasti sýningardagur Alla Vestmann í Deiglunni er næsti mánudagur, annar í hvíta- sunnu. Á nýjustu myndunum leyfi ég penslinum bara að ráða … Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Aðalsteinn Vestmann „Aðalatriðið er að láta sér líða vel og mér líður illa ef nokkrir daga líða án þess að ég geti sullað!“   

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.