Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.11.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 29 ÞAÐ er athyglisvert hvernig ein- stakir alþingismenn og embætt- ismenn geta staðið í vegi fyrir að mikið hagsmunamál fyrir almenning fái brautargengi. Þetta á m.a. við um margfluttar tillögur til þingsályktunar um að koma á skipulegri leit að krabbameini í ristli. Mikið hefur verið skrifað af fagaðilum og áhugamönnum til stuðnings málinu og hillti undir lausn fyrir ári þegar þingsálykt- unartillaga var lögð fram af þingmönnum úr öllum þingflokkum. Fyrsti flutnings- maður, Drífa Hjart- ardóttir, hefur fylgt þessu máli eftir síðan upphafsmaður málsins á Alþingi, Árni Ragnar Árnason, lést úr sjúk- dómnum fyrir tveimur árum. Meðal flutnings- manna á síðasta þingi var Siv Friðleifsdóttir sem síðan var skipuð heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra í mars sl. Mátti þá ætla að málið fengi brautargengi eftir margra ára þóf. Sú von brást og verður að ætla að ráðherra gefi skýringar á sinnaskiptum sínum. Árlega greinast um 115 Íslend- ingar að meðaltali með krabbamein í ristli og endaþarmi og árlega deyja um 50–55 af völdum þeirra. Þetta er önnur algengasta dánarorsök af völdum krabbameina á Íslandi. Sam- kvæmt rannsóknum helst nýgengi nokkuð stöðugt hjá körlum, eykst hjá konum en tilfellum fjölgar vegna hækkandi aldurssamsetningar. Tal- ið er að í þremur af hverjum fjórum tilvikum megi ná góðum bata með markvissri meðferð ef sjúkdómurinn er greindur á forstigum. Þetta er orðin 20 ára saga. Árin 1985–1987 var gerð tilraun á vegum Krabbameinsfélagsins, undir umsjá Ásgeirs Theódórs læknis til að kanna notagildi hópleitar að krabba- meini í ristli og endaþarmi með skimun á blóði í hægð- um. Mikið vatn er runnið til sjávar síðan og rann- sóknum og aðferðum við skimun fleygt fram. Fyrir 5 árum gerði nefnd á vegum land- læknis klínískar leið- beiningar um skimun fyrir krabbameinum í ristli og endaþarmi. Um þessar leiðbeiningar varð almenn fagleg samstaða en nokkrir aðilar halda því fram að jafn vel rökstudd for- varnaraðgerð falli undir það sem nefnt er „sjúk- dómsvæðing“. Getur verið að það minni- hlutasjónarmið eigi að ráða úrslitum í þessu máli? Sú spurning vaknar líka hvort leiðbeiningar landlæknis séu ekki til ógagns fyrir ábyrga lækna þar sem ráðuneytið hafnar að skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi sé forgangsmál í heil- brigðisþjónustunni. Ég vænti þess að þeir alþing- ismenn sem fylgja því að fjármunum sé varið til að skipuleg leit að krabbameini í ristli hefjist taki á sig rögg, flytji um það tillögu og fylgi henni fast eftir. Það verður fylgst grannt með því á kosningavetri hvaða flokkar og þingmenn sýna það í verki að jafn brýn forvarnaraðgerð verði boðin tilteknum aldurshópum. Leit að krabba- meini í ristli – Hvað tefur? Almar Grímsson skrifar um forvarnir með skipulegri leit að krabbameini í ristli Almar Grímsson »Krabbameiní ristli og endaþarmi er önnur algeng- asta dánarorsök af völdum krabbameina á Íslandi. Höfundur er bæjarfulltrúi í Hafn- arfirði og á sæti í heiðursráði Krabba- meinsfélags Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.