Morgunblaðið - 04.12.2006, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 2006 11
FRÉTTIR
MINNKAÐU HRAÐANN!
ÞAÐ BORGAR SIG
Kynntu þér málið á www.us.is
Þann 1. desember tók gildi breyting á
reglugerð um sektir og viðurlög við umferðar-
lagabrotum. Helsta breytingin er að sektir vegna
einstakra umferðarlagabrota hækka umtalsvert,
eða um allt að 60%.
Vikmörk varðandi hámarkshraða hafa einnig
verið lækkuð. Áður voru þau miðuð við 10
km/klst. yfir hámarkshraða án þess að fá sekt en
með nýju reglugerðinni hafa mörkin verði lækkuð
niður í 5 km/klst.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
7
7
7
7
MORGUNBLAÐINU barst í gær
ósk um birtingu eftirfarandi yfirlýs-
ingar í kjölfar umfjöllunar blaðsins
um héraðsdómsmálið nr. E-10563/
2004 og þá dóma Hæstaréttar Ís-
lands sem fallið hafa um formhlið
málsins.
„Undirritaðir eru lögmenn
stefndu í héraðsdómsmálinu nr.
10563/2004, sem nú er rekið fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur. Í Morg-
unblaðinu í dag, 3. desember, er
fjallað um nefnt dómsmál og þá úr-
skurði Hæstaréttar Íslands sem fall-
ið hafa í málinu.
Umrætt dómsmál er faðernismál.
Þinghöld í slíkum málum eru háð
fyrir luktum dyrum, í samræmi við 2.
mgr. 12. gr. barnalaga nr. 76/2003,
vegna þess hve viðkvæm slík mál eru
fyrir þá sem þau varða. Umtalsverð-
ur munur er því á slíkum málum og
öðrum málum sem rekin eru fyrir
dómstólum í opnum réttarhöldum.
Óheimilt er að skýra opinberlega
frá því sem gerist í lokuðum þing-
höldum án leyfis dómara, að viðlögð-
um refsingum, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga
um meðferð einkamála nr. 91/1991.
Til að vernda friðhelgi einkalífs
þeirra sem slík mál varða eru dómar
Hæstaréttar Íslands í slíkum málum
enn fremur birtir með þeim hætti að
nöfn þeirra aðila sem málin varða
koma ekki fram.
Í þinghöldum í framangreindu
dómsmáli hefur verið fjallað um og
lögð fram gögn um verulega við-
kvæm einkamálefni sem skýrt er frá
opinberlega í framangreindri um-
fjöllun Morgunblaðsins. Þá er nöfn-
um hlutaðeigandi aðila bætt inn í út-
drætti úr Hæstaréttardómum sem
fallið hafa í málinu. Fyrir hönd um-
bjóðenda okkar er harmað að Morg-
unblaðið og viðmælandi blaðsins hafi
ákveðið að brjóta gegn framan-
greindu banni með umfjöllun sinni
um málið með þessum hætti.
Umfjöllun Morgunblaðsins er
ámælisverð enda ekki eingöngu í
andstöðu við framangreinda laga-
grein heldur einnig ósmekkleg og
óviðeigandi. Einhliða umfjöllun um
svo viðkvæm einkamálefni, þar sem
slegið er fram órökstuddum fullyrð-
ingum, er til þess eins fallin að móta
almannaróm og ýta undir sögusagn-
ir, en er hvorki upplýsandi né fræð-
andi á nokkurn hátt. Er slík umfjöll-
un fyrir neðan virðingu
Morgunblaðsins, sem til þessa hefur
viljað láta líta á sig sem óháðan,
vandaðan og hlutlausan fréttamiðil.
Tekið skal fram að umbjóðendur
okkar og við lögmenn þeirra höfum
ekki viljað tjá okkur um málið við
Morgunblaðið eða aðra fjölmiðla,
þegar eftir því hefur verið leitað.
Ástæða þess er sú að óheimilt er að
fjalla um nokkuð það sem komið hef-
ur fram í þinghöldum málsins með
vísan til greinds lagaákvæðis.
Reykjavík, 3. desember 2006.
Virðingarfyllst,
Landslög – lögfræðistofa.
Jón Sveinsson, hrl. Ívar Pálsson,
hdl.“
Yfirlýsing
ÞESSIR nemendur Suzuki-tónlistar-
skólans eru ábúðarfullir þar sem
þeir búa sig undir að flytja atriði sitt
á jólatónleikum skólans sem haldnir
voru í Grensáskirkju um helgina.
Ætla mætti að jólasveinninn væri
mættur á svæðið, svo áhugasöm sem
börnin eru um það sem þau eru að
horfa á, þó að þau séu öll tilbúin með
bogann í réttri sveiflu.
Morgunblaðið/ÞÖK
Hvað er að sjá?
GUNNHILDUR Óskarsdóttir
kennslufræðingur og lektor við
Kennaraháskóla Íslands, varði dokt-
orsritgerð sína í
uppeldis og
menntunarfræði,
21. nóvember s.l.
Ritgerðin ber tit-
ilinn „The deve-
lopment of childr-
ens’ ideas about
the body: How
these ideas
change in a teach-
ing environment –
Hugmyndir barna
um mannslíkamann. Hvernig
kennsla hefur áhrif á þróun hug-
myndanna“.
Aðalleiðbeinendur í verkefninu
voru dr. Jón Torfi Jónasson prófess-
or og dr. Michael Reiss prófessor.
Andmælendur eru dr. Gustav Hell-
dén, prófessor við háskólann í Kristi-
anstad í Svíþjóð, sérfræðingur í
kennslufræði náttúrufræðigreina og
dr. Robert Lock, dósent við Birm-
inghamháskóla á Englandi, sérfræð-
ingur í kennslufræði náttúrufræði-
greina.
Rannsóknin fjallar um hvernig og
við hvaða aðstæður hugmyndir barna
um mannslíkamann breytast á tveim-
ur fyrstu árum grunnskólans. Varpað
er ljósi á hugmyndir barna um útlit,
staðsetningu og hlutverk beina og líf-
færa mannslíkamans og hvaða áhrif
kennslan, kennsluaðferðir, námsefni,
námsgögn og samskiptin í kennslu-
stofunni hafa á þróun hugmyndanna.
Skoðaður er sérstaklega munurinn á
hæglátum börnum í bekknum og hin-
um, sem gjarnan vilja hafa frum-
kvæði og tjá sig, með tilliti til breyt-
inga á hugmyndum og áhrifum
kennslunnar og samskiptanna.
Fræðilegur bakgrunnur rannsókn-
arinnar á sér rætur í kenningum hug-
smíðahyggju um nám og kennslu
með áherslu á hvers konar virkni og
samskipti eru forsendur náms. Nið-
urstöður leiddu í ljós að við lok rann-
sóknarinnar þekktu börnin frekar út-
lit, staðsetningu og hlutverk hinna
ýmsu líffæra en síður hvernig þau
tengjast, vinna saman og mynda líf-
færakerfi. Meltingarfærin voru eina
líffærakerfið sem börnin almennt
þekktu. Jafnframt sýndi rannsóknin
hve mikilvægt er að nota fjölþætta
mælikvarða til að meta þekkingu
barnanna. Ólíkar kennsluaðferðir
höfðu mismunandi áhrif á börnin sem
undirstrikar mikilvægi þess að nota
fjölbreyttar aðferðir í blönduðum
bekk til að allir fái eitthvað við sitt
hæfi. Rannsóknin sýnir einnig hve
virkni nemendahópsins er mikilvæg
og jafnframt að sýnileg virkni ein-
staklingsins er ekki góður mæli-
kvarði á námsárangur. Hljóðlátu
börnin sem tóku ekki þátt í um-
ræðum og tjáðu ekki hugmyndir sín-
ar munnlega lærðu ekki minna en
þau sem tóku þátt í umræðum og
voru sýnilega virkari.
Í doktorsnefnd eru: dr. Jón Torfi
Jónasson, prófessor við Háskóla Ís-
lands, dr. Michael Reiss, prófessor
við Institute of Education, Lund-
únaháskóla og dr. M. Allyson Mac-
donald, prófessor við Kennarahá-
skóla Íslands.
Rannsóknin var styrkt af Rann-
sóknarnámssjóði Rannís og Rann-
sóknarsjóði Kennaraháskóla Íslands.
Gunnhildur Óskarsdóttir er fædd
1959. Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð jólin
1978. B.Ed. prófi frá Kennaraháskóla
Íslands 1982. M.Ed. prófi frá Háskól-
anum í Aberdeen, Skotlandi 1989.
Foreldrar Gunnhildar eru Unnur
Agnarsdóttir, (látin ) og Óskar H.
Gunnarsson
Maki, dr. Arnór Þ. Sigfússon,
fuglafræðingur og börn Óskar Örn,
Ragnhildur Erna og Snorri Már.
Doktor í uppeldis-
og menntunarfræði
Gunnhildur
Óskarsdóttir
Ólafsvík | Áhyggjufullir bæjarbúar
höfðu samband við fréttaritara
Morgunblaðsins í Ólafsvík og bentu
á að stórvirkar vinnuvélar væru að
róta í hlíðum Ólafsvíkurennis. Höfðu
menn áhyggjur af því að nú væri ver-
ið að stækka sárið sem varð eftir að
efni var tekið þarna til hafnargerðar
í Ólafsvík á árunum 1958–1964. Hið
rétta er hinsvegar að Framfara-
félagið, Ólafsvíkurdeild, í samstarfi
við Hafnarsjóð, hefur unnið að því
undanfarin misseri að fjármagn fáist
til að laga sárið í Enninu.
Það fjármagn hefur nú fengist og
var verktakafyrirtækið Stafnafell
fengið til að laga til ummerki eftir
efnistökuna. Næsta vor verða svo
gerðar ráðstafanir til að auka gróður
á svæðinu svo að það falli sem best
að umhverfinu. Framfarafélagið er
einnig að láta útbúa sjónskífu sem
sett verður upp á Bekknum og um
leið verður aðgengi bætt og komið
upp aðstöðu svo að hægt sé að njóta
útsýnis og umhverfis.
Endurbæta
Ennið
Mogunblaðið /Alfons