Morgunblaðið - 14.12.2006, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2006 51
menning
Farið ekki yfir lækinn að sækja vatn
Bækurnar að vestan eru ykkar bækur
Vestfirðingar og áhugafólk um Vestfirði
Pöntunarsími og fax 456 8181
netfang: jons@snerpa.is • veffang: thingeyri.is
Álfar og fjöll með
Friðriki Karlssyni
og Þórunni Lár-
usdóttur er fjórða
mest selda plata
vikunnar hér á
landi. Á henni eru
ýmis lög eftir ís-
lenska og erlenda
lagasmiði, þar á
meðal Friðrik og
Þórunni sjálf. Mörg þekkt lög eru á plötunni,
sem dæmi má nefna Hvert örstutt spor, Sofðu
unga ástin mín, Dagný og Ísland er land þitt.
Friðrik leikur á gítar en allur söngur og raddir
eru í höndum Þórunnar.
Álfar og fjöll er ein af fimmtán íslenskum plöt-
um sem sitja í fimmtán efstu sætunum á Tón-
listanum.
Álfar og fjöll,
Þórunn og Friðrik!
Söngkonan Sissel
Kyrkjebø er ný á
Tónlistanum í 25.
sæti með safn-
diskinn De beste
1986–2006.
Kyrkjebø söng ný-
verið í Laugardals-
höllinni á tón-
leikum Evrópsku
dívanna. „Sissel er
ein af stórstjörnum Noregs og hefur hægt og
rólega skapað sér orðspor innan tónlist-
arheimsins sem fáir geta státað af. Hún er
með afskaplega háa og tæra rödd sem hún
stjórnar af ótrúlegri færni,“ sagði m.a í dómi í
Morgunblaðinu að tónleikunum loknum.
De beste 1986–2006 er einn af fimm erlend-
um diskum á Tónlistanum þessa vikuna.
Stórstjarna
Noregs og díva!
Baggalútsmenn njóta
mikilla vinsælda um
þessar mundir. Jólaplata
þeirra Jól og blíða situr í
öðru sæti Tónlistans
aðra vikuna í röð, en
þetta er þriðja vika henn-
ar á lista.
Á Jólum og blíðu má
finna ellefu vinsæl að-
ventu- og hátíðarlög í út-
færslu Baggalúts, t.d. lögin Kósíheit par ex-
elands, Sagan af Jesúsi, Rjúpur og
Föndurstund sem eflaust margir hafa rokkað
við um leið og þeir föndruðu jólakortin.
Baggalútur situr líka neðar á Tónlistanum með
diskinn Aparnir í Eden sem er öldungur listans.
Aparnir hafa verið á Tónlistanum í nítján vikur
og falla nú úr 24. sæti í það 29. Það verður
spennandi að sjá hvort Baggalútsmenn halda
sínum tveimur diskum inni í næstu viku.
Jól og blíða
með Baggalúti!
Barnaplatan Stóra stund-
in ykkar er í þrettánda
sæti Tónlistans.
Á henni syngja hressir
krakkar tólf vinsæl ís-
lensk dægurlög, eins og
Drauminn um Nínu, Litla
tónlistarmanninn, Popp-
lag í G-dúr, Húsið og ég,
Leikskólalagið og Bíddu
pabbi. Auk þess eru öll
sömu lögin á disknum án
söngs svo allir krakkar geta sungið þau með
sínu nefi.
Diskurinn inniheldur að auki DVD-disk með
myndböndum við öll lög plötunnar.
Stóra sundin ykkar er ein af fimmtán plötum
Tónlistans, af þrjátíu, sem eru gefnar út hjá
Senu.
Popplag í G-dúr
fyrir börnin!
!" # # # #$ %&#' ( )'* #+,-&#.# / #'# #0 . &# #1 (&
#,!&# .2* &#-)#3#/ &#$#4/ 3&##!"#3#45(
(
'"<--8
@L0
9 &
6/
,7
,* #1" 3
' #8#9#:" #;)
0)#3#<3 ( " #=
6/
=2' #< *
>#/"# "
;#3?
6/
3
6/
6/
, @@
A #.
,
B #$C 3
D"2# ' #E
< ' 7#<#9# ' #B
F
+#3
-#0.
G/(3(
!3/3@
0
0@@#3#4
D"2#1 3
H #+ /
,7
6/
#. #"*
D"#3#@.'
,* � "#3#
> #3# *
0)#3#<3 (
$3IC# :"'*
>#/"# "#.##)
$ #3J#1#/
=3 . #.##)
3
, . #.##)
0" # #
3 " K, #*
;3
> "K*#< #:" '
D"2# ' #3#
<"'# //
#0
L2 / #M3M3
-#0.# #-
0#3#2#/33
B( #
#@ #
N
3 #3 #)@ '
0* '
G#32 #M (
G( #.#4
$3(( . #.##)
0
0
0
0
0
0
#"
>-0
LO#- M
0
, #- M
0
0
0
3
4-+
0
3
0
F
03P,-<
,
0
0
F
03 2/
Q3
F
</
0
Í NÝJUSTU mynd sinni, Forstjóri
heila klabbsins (Direktøren for det
hele) má segja að danski leikstjórinn
Lars von Trier snúi aftur til heima-
haganna, en undanfarin ár hefur
hann búið til myndir sem skarta al-
þjóðlegum leikurum, jafnvel stór-
stjörnum, og fjalla um Ameríku með
stóru A-i, nú eða endasendast víðs
vegar um heiminn eins og tilfellið er í
tilraunamyndinni Hindranirnar
fimm.
Forstjóra heila klabbsins mætti á
hinn bóginn lýsa sem „lítilli og lókal“
bíómynd, sem einkennist af leik og
húmor, en kallast þó skýrt á við höf-
undarverk von Triers að því leyti að
þar eru vangaveltur um kvikmynda-
miðilinn sjálfan og lögmál sagna-
smíðar í forgrunni. Í þessu tilfelli er
gamanmyndaformið tekið fyrir í
gegnum sögu sem leikur sér m.a. með
pælingar um þjóðarvitund og valda-
strúktúra, og felur í sér einstaklega
skemmtilegt dæmi um íslenskan
„póstkólóníalisma“ eða a.m.k. ákveðið
eftirlendusamhengi. Þá notast von
Trier t.d. við tökutækni sem hann
kennir við „automavision“ en hún
stillir myndrammann á fremur tilvilj-
anakenndan hátt, sem gefur mynd-
inni aukið kómískt og ruglingslegt yf-
irbragð.
Sagan á sér mestmegnis stað innan
veggja lítils og litlauss upplýsinga-
tæknifyrirtækis í Danmörku. Stofn-
andi og stjórnandi fyrirtækisins,
Ravn (Peter Gantzler), vill vera vin-
sæll meðal starfsfólks síns, og hefur
því búið til ímyndaðan yfirmann sem
sagður er forstjóri heila klabbsins en
er því miður búsettur í Ameríku og á
því fyrst og fremst í samskiptum við
fyrirtækið í gegnum tölvupóst. Þegar
Ravn fær tækifæri til að selja fyr-
irtækið íslenskum viðskiptastórlaxi
sem Friðrik Þór Friðriksson leikur
og þörf er á nærveru og undirskrift
hins ímyndaða forstjóra í Ameríku,
ræður Ravn leikarann Kristoffer
(Jens Albinus) til þess að þykjast
vera forstjóri heila klabbsins.
Í kringum laumuspil Ravns og
Kristoffers spinnst bráðskemmti-
legur farsi, en Kristofer hefur ekki
hundsvit á viðskipta- eða markaðs-
fræðum, en þarf engu að síður að
stýra fundum fyrirtækisins í nokkurn
tíma, á meðan Ravn vinnur leynilega
að því að selja fyrirtækið íslenska
kaupsýslumanninum sem er stór upp
á sig og viðskotaillur í meira lagi,
enda fullur fyrirlitningar á Dönum og
menningu þessara fyrrum nýlendu-
herra bókmenntaþjóðarinnar í
norðri. Friðrik Þór Friðriksson leikur
viðskiptaharðstjórann með miklum
tilþrifum í frábærum gamanatriðum
þar sem Danir og Íslendingar reyna
að semja og túlkur (leikinn af Bene-
dikt Erlingssyni) túlkar orðaskiptin
dyggilega milli íslensku og dönsku.
Þá þvælist sjálfsmyndarkrísa leik-
arans Kristoffers dáldið fyrir hlut-
verkinu, en honum hefur ekki tekist
að fá útrás fyrir metnað sinn í mis-
heppnuðum leikferli og fer því fyrr en
varir að impróvísera í forstjóra-
hlutverkinu sem Ravn réð hann til að
leika. Þessi þráður gamanleiksins
tengist jafnframt sjálfsvísandi form-
pælingum von Triers í myndinni, en
þar er að finna skemmtilegar vanga-
veltur um samband leikarans og leik-
stjórans sem og samspilið við áhorf-
endur við miðlun gamanleiksins.
Forstjóri heila klabbsins er leikandi
snjallt og bráðfyndið innslag í kvik-
myndagerð von Triers, sem sýnir
glöggt hversu fjölhæfur hann er.
Von Trier og íslenska útrásin
Snjallt „[Myndin] er leikandi snjallt..innslag í kvikmyndagerð von Triers.“
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
Leikstjórn og handrit: Lars von Trier. Aða-
hlutverk: Jens Albinus, Peter Gantzler,
Iben Hjejle, Friðrik Þór Friðriksson og
Benedikt Erlingsson. Danmörk / Svíþjóð,
100 mín.
Forstjóri heila klabbsins (Direktøren for
det hele) – Heiða Jóhannsdóttir
TRÍÓ Björns Thoroddsen ásamt
Andreu Gylfadóttur leikur á Café
Rosenberg í Lækjargötu í kvöld.
Björn Thoroddsen hefur starfrækt
tríóið sitt í yfir 20 ár og gefið út
nokkrar hljómplötur. Fyrir síðustu
jól kom út diskurinn Jól, en þar
leiddu þau Björn og Kristjana Stef-
ánsdóttir söngkona saman hesta
sína og í maí síðastliðnum gaf hann
út diskinn Vorvinda, en þar skipuðu
tríóið, líkt og í kvöld, auk Björns,
þeir Jón Rafnsson bassaleikari og
Jóhann Hjörleifsson trommuleikari
og þeim til fulltingis var söngkonan
Andrea Gylfadóttir. Báðir þessir
diskar hlutu afar góðar viðtökur og
einróma lof gagnrýnenda. Þessa má
geta að Andrea Gylfadóttir er nú
tilnefnd til íslensku tónlistarverð-
launanna sem söngkona ársins.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Einbeitt Björn og félagar.
Kvartett?