Morgunblaðið - 18.12.2006, Side 2
2 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Yf i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Bréf 29
Staksteinar 8 Minningar 30/33
Veður 8 Menning 36/40
Úr verinu 12/13 Leikhús 38
Viðskipti 14 Myndasögur 40
Erlent 14/15 Dægradvöl 41
Listir 16 StaðurStund 42
Vesturland 17 Dagbók 44
Daglegt líf 18/23 Víkverji 44
Forystugrein 24 Velvakandi 44
Umræðan 26/29 Ljósvakamiðlar 46
* * *
Innlent
Ísland hefur fengið aðild að
Mannvirkjasjóði Atlantshafs-
bandalagsins og mun í fyrsta skipti
greiða í hann á næsta ári. Aðlög-
unartími íslenskra stjórnvalda nær
til ársins 2016 og munu fullar
greiðslur nema um 30 milljónum
króna. Nefndin á fjölda mannvirkja
hér á landi, s.s. flugbrautirnar á
Keflavíkurflugvelli og flugskýli. »4
Hugsanlegt er að Cantat-3-
sæstrengurinn komist ekki í lag fyrr
en eftir þrjár vikur en strengurinn
bilaði á laugardagskvöld. Flestir há-
skólar landsins, Landspítali – há-
skólasjúkrahús og Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri eru á meðal þeirra
stofnana sem eru netsambands-
lausar. » Forsíða
Eldur kom upp í húsnæði Ís-
félagsins í Vestmannaeyjum á laug-
ardagskvöld. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn og að sögn fjár-
málastjóra mun starfssemi félagsins
ekki raskast. Rannsóknarlög-
reglumaður segir grun leika á að um
íkveikju sé að ræða. » 6
Á fundi um möguleika framboðs
eldri borgara var samþykkt að
sérstök nefnd fái það hlutverk að
taka saman tillögur fyrir þing-
framboðið í vor. Umræður stóðu
yfir í á fjórða tíma og var fundurinn
fjölmennur. » 4
Erlent
Kosið var til sveitarstjórna og
svonefnds sérfræðingaráðs í Íran á
föstudag og benda bráðabirgðatölur
til þess að skoðanabræður Mahmo-
uds Ahmadinejads forseta hafi farið
halloka. Sérfræðingaráðið hefur eft-
irlit með helsta valdamanni landsins,
ajatollah Ali Khamenei. Hashemi
Rafsanjani, keppinautur Ahmad-
inejads í síðustu forsetakosningum,
varð langefstur í kjöri til ráðsins en
þar sitja 86 manns. » Forsíða
Hátt á þriðja hundrað manns
voru handteknir á Norðurbrú í
Kaupmannahöfn á laugardag þegar
til óeirða kom vegna þess að reka
átti hústökumenn úr félagsmiðstöð
sem þeir lögðu undir sig fyrir 24 ár-
um. Tveir særðust illa, annar þeirra
lögreglumaður. » 14
Nær 250 milljónir barna eru nú í
vinnuþrælkun að sögn Alþjóða-
vinnumálastofnunarinnar og Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna. Lang-
flest þeirra starfa við landbúnað og
um 65% þeirra búa í Asíu. » 14
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
SAMKVÆMT upplýsingum frá
Veðurstofu Íslands eru yfirgnæf-
andi líkur á að jólin verði rauð á
landinu sunnanverðu þetta árið,
þó jörð geti verið hvítflekkótt á
stöku stað norðanlands. Ekki
verður þó um nýfallinn snjó að
ræða á aðfangadag norðan heiða
heldur afgang af sköflum.
Þetta segir Óli Þór Árnason,
veðurfræðingur á Veðurstofunni.
Þar á bæ er spáð talsverðum hlý-
indum nú í vikunni, suðlægum
áttum og hita yfir tíu gráðum. Á
morgun og miðvikudag er spáð
hvassri sunnan- eða suðvestanátt
með talsverðri rigningu en úr-
komulítið norðaustan til. Gera
megi ráð fyrir að hiti verði víða 6
til 11 stig.
Að sögn Ólafs verður kólnandi
veður seinni part vikunnar.
Þannig verður á fimmtudag
minnkandi suðvestanátt og skúrir
eða él, en úrkomulítið norðaust-
antil. Á föstudag er spáð hæg-
viðri, stöku él og frost 0 til 7 stig.
Snýst í ört vaxandi suðaustanátt
síðdegis með snjókomu og síðar
slyddu eða rigningu og hlýnar í
veðri.
Aðeins tvisvar verið hvít jól
í Reykjavík síðan 1996
Á Þorláksmessu er spáð suð-
lægri átt og rigningu eða slyddu
og hita á bilinu 0 til 6 stig. Að-
spurður hvort líkur séu á að ein-
hverri snjóglætu verði vart ein-
hvern jóladaganna segir Óli það
nánast útilokað sunnanlands.
Samkvæmt snjómælingum Veð-
urstofu Íslands hefur frá árinu
1996 aðeins tvisvar verið snjór í
Reykjavík á jóladagsmorgun.
Þess má geta að Veðurstofan skil-
greinir jól sem hvít eða rauð eftir
því hvort snjór mælist eða ekki
klukkan níu á jóladagsmorgun,
þegar mælingar fara fram.
Á síðustu 45 árum hafa verið
hvít jól í 47% tilvika í Reykjavík.
Á sama tímabili hefur á Akureyri
verið alhvítt í 65% tilvika á jóla-
dag.
Allt útlit fyrir að
jólin verði rauð í ár
Von á suðlægum
áttum og rigningu
Morgunblaðið/Ásdís
Fjörið búið Unga kynslóðin hefur undanfarið getað skemmt sér í snjónum,
líkt og þessi stúlka í Langholtsskóla, en veðurspár binda nú endi á þá gleði.
AF ÞEIM um 800 hundruð manns
sem misstu vinnuna þegar banda-
ríski herinn hélt af landi brott hafa
um 700 manns fundið sér nýja
vinnu. Aðeins hafa um 100 starfs-
menn skráð sig á atvinnuleysisskrá.
Þetta segir Guðjón H. Arngríms-
son, varaformaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur. Að-
spurður segist Guðjón ekki vita á
hvaða aldri þeir sem skráð hafi sig
á atvinnuleysisskrá séu, en tekur
fram að hann hafi af því fregnir að
hlutfall stjórnenda í hópnum sé
nokkuð hátt.
Spurður hvort stór hluti hópsins,
sem missti vinnuna þegar herinn
fór, hafi þurft að leita út fyrir
byggðarlagið eftir atvinnu segist
Guðjón ekki telja að svo hafi verið.
Bendir hann á að hluti hópsins hafi
búið í Reykjavík þótt hann hafi sótt
vinnu til Keflavíkur og hafi flestir
úr þeim hópi fengið vinnu í Reykja-
vík. Einnig bendir hann á að um
150 manns hafi farið yfir til Flug-
málastjórnar á Keflavíkurflugvelli
þegar hún tók við verkefnum af
bandaríska hernum.
Spurður hvort staðan í dag sé
viðunandi svarar Guðjón því neit-
andi og segir aldrei viðunandi þeg-
ar svo mikill fjöldi þurfi að skrá sig
á atvinnuleysisskrá.
„Hins vegar hefði ástandið getað
orðið miklu verra en það varð,“ seg-
ir Guðjón og tekur fram að hann
vonist til þess að það rætist úr
ástandinu á næstu mánuðum. Tek-
ur hann í því sambandi fram að
miklar væntingar séu bundnar við
Þróunarfélagið og að menn vonist
til þess að sú starfsemi sem komi á
Keflavíkurflugvöll kalli á aukinn
mannafla.
Hundrað enn á
atvinnuleysisskrá
Suðurnesjamenn binda vonir við fyrir-
hugaða starfsemi Þróunarfélagsins
Í HNOTSKURN
»Um 800 manns misstu vinn-una þegar Bandaríkjaher fór
af landi brott.
»Af þeim hafa 100 ein-staklingar skráð sig á at-
vinnuleysisskrá. Fyrrverandi
stjórnendum virðist ganga verr
að finna sér nýtt starf.
LOKA varð Hafnarfjarðarvegi við
Kópavogslæk upp úr miðnætti í
nótt, eftir nokkuð harðan árekstur
fólksbíls og strætisvagns, sem voru
á suðurleið.
Að sögn lögreglunnar í Kópavogi
voru tildrög slyssins þau að fólks-
bíllinn snerist á veginum og hafnaði
á strætisvagninum. Ökumaður
fólksbílsins var einn á ferð og var
fluttur á slysadeild. Er Morgun-
blaðið fór í prentun lá ekki fyrir
hve meiðsl ökumannsins voru alvar-
leg. Bílstjóra strætisvagnsins og
farþega hans, sem voru fáir, sakaði
ekki.
Hafnarfjarðarvegi lokað
eftir harðan árekstur
MAÐURINN sem lést í umferðar-
slysi á Álftanesvegi aðfaranótt laug-
ardags hét Guðmundur Eiður Guð-
mundsson, til heimilis á Skólatúni 4 á
Álftanesi. Guðmundur Eiður var
fæddur 20. ágúst 1982, hann var
ókvæntur og barnlaus.
Lést í um-
ferðarslysi
Guðmundur Eiður
Guðmundsson
TVÖ vinnuslys voru á framkvæmda-
svæðinu við Kárahnjúka um helgina
en bæði reyndust minniháttar. Ann-
að slysið átti sér stað í aðrennslis-
göngum þar sem unnið var við
steypusprautun. Kínverskur starfs-
maður fékk ofan á sig steypuklump
og var fluttur á sjúkrahús til að-
hlynningar. Þá féll starfsmaður úr
stiga og var honum einnig komið
undir læknishendur.
Ekki er langt síðan verkamaður
lamaðist fyrir neðan mitti í alvarlegu
vinnuslysi á framkvæmdasvæðinu
auk þess sem kínverskum starfs-
manni Impregilo er haldið sofandi á
gjörgæsludeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss.
Impregilo hefur þegar tilkynnt
um aðgerðir til að sporna við slysum,
s.s. öryggisnámskeið fyrir verk-
stjóra og fjölgun öryggisvarða.
Enn fjölgar
vinnuslysum
♦♦♦