Morgunblaðið - 18.12.2006, Side 22
Ekki þykir ráðlegt að berareykt svínakjöt, hangikjöteða annan jólamat mann-anna fyrir gæludýrin, vilji
eigendurnir gleðja þau í mat og
drykk yfir hátíðarnar, því það getur
raskað jafnvægi í meltingarfærum
gæludýranna. Uppköst og niður-
gangur eru fylgifiskar magakveisu af
völdum svo tormelts matar og því
kemur það fyrir að jóladagarnir enda
á biðstofum dýralæknastofa.
„Gæludýraeigendur eru nú sem
betur fer að ranka við sér og hafa
minnkað það að gefa gæludýrunum
sínum reykta jólakjötið okkar enda
fer mannamaturinn ekki vel í magann
á þeim. Við dýralæknar mælum yf-
irleitt ekki með öðrum gæludýramat
á jólum en dýrin eru vön að fá, en
gleðja má þau á hinn bóginn endrum
og sinnum yfir hátíðarnar með sér-
stöku gæludýranammi, sem fæst
meðal annars í stórmörkuðum, í
dýrabúðum og hjá dýralæknum,“
segir Anna Jóhannesdóttir, dýra-
læknir á Dýralæknastofu Dagfinns.
Þurrfóður og vatn er langbest
Best er talið að ala hunda og ketti
núorðið á þurrfóðri og vatni. Þurr-
fóður hefur vissa fyrirbyggjandi eig-
inleika, m.a. þá að koma í veg fyrir
myndun tannsteins og að halda feld-
inum fallegum. Reykta kjötið fer ekki
vel í gæludýrin því almennt eru þau
ekki vön söltuðum og reyktum mat.
Mikið saltaður matur getur valdið
salteitrun, sem getur verið mjög al-
varleg og krefst dýralæknismeð-
höndlunar. Hún er þó sem betur fer
ekki algeng.
Þótt tennur gæludýra séu í reynd
ekki hannaðar fyrir blautmat breytir
það ekki þeirri staðreynd að kisum og
hundum þykir blautmaturinn af-
skaplega bragðgóður og kjamsa á
honum í tíma og ótíma sé hann á ann-
að borð í boði. Það má því gefa blaut-
matinn til hátíðarbrigða, líkt og dýra-
sælgætið, að sögn Önnu. Komi
magakveisur upp með tilheyrandi
uppköstum og niðurgangi grípa dýra-
læknar yfirleitt til þess ráðs að hafa
dýrin fastandi í 12 til 24 tíma og gefa
þeim svo til dæmis ofsoðin hrísgrjón í
mjög smáum skömmtum sem virka
stemmandi á magann. „Passlegt er að
gefa bara eina matskeið af hrís-
grjónum í einu og fylgjast svo með af-
drifum gæludýrsins. Séu hrísgrjónin
soðin of mikið er búið að brjóta öll
prótein niður í þeim þannig að það er
ekkert í þeim lengur sem pirrað get-
ur magann. Svo þarf auðvitað í of-
análag að gæta þess að litlu ferfæt-
lingarnir drekki nóg af vatni því lítil
dýr eru fljót að þorna upp.“
Litlir kroppar í kulda og trekki
Oft er mikið að gera hjá dýralækn-
um milli jóla og nýárs því þann tíma
nota dýraeigendur gjarnan í árlegar
læknisheimsóknir og reglubundið eft-
irlit hjá dýralæknum.
Í þessari árlegu skoðun er, auk
bólusetningar, framkvæmd alhliða
heilsufarsskoðun á dýrunum. Kíkt er
á tennurnar og hlustað er á hjartað til
að meta hvort grípa þurfi til ein-
hverra aðgerða. Algengt er að gælu-
dýraeigendur kaupi sérstök jólaföt á
dýrin sín eða skreyti þau með öðrum
jólalegum hætti. Þegar Anna er
spurð hvort dýrum finnist ekki
óþægilegt að láta „dressa“ sig upp
svarar hún því til að það fari eftir því
hvort dýrin séu vön að vera í fötum
eða ekki. „Svo er þetta alltaf spurning
um hvar mörkin liggja. Dýrum, sem
ekki eru vön því að vera klædd, finnst
þetta fatastúss oft bæði þvingandi og
óskemmtilegt. En til dæmis litlu
„chihuahua“-hundarnir eru margir
hverjir vanir því að vera í fötum og
má auðvitað klæða þá í jólagalla eins
og hvað annað. Þar sem þeir eru mjög
smágerðir eru þeir kulsæknir og
þurfa oft að vera í fötum til að líða vel.
Það er því ekki beint um tískubylgju
að ræða þegar litlu greyin eru klædd í
föt, heldur er bara verið að verja litla
kroppa fyrir kulda og trekki,“ segir
Anna dýralæknir.
Nammibitarnir
gleðja gæludýrin
Morgunblaðið/G. Rúnar
Jólaheimsóknin Anna Jóhannesdóttir dýralæknir er hérna með kettling-
inn Freyju en hún er komin í sinn jólabúning.
Morgunblaðið/Ásdís
Hlýtt Þeir eru varðir fyrir kulda.
Morgunblaðið/Ásdís
Krútt Margir litlir hundar eru kulsæknir og finnst gott að vera í fötum.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
gæludýr
22 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is Eftir Sigrúnu Söndru Ólafsdóttur
ÞEGAR kemur að jólum má ekki
gleyma gæludýrunum á heim-
ilinu. Í dýraverslunum er nú
hægt að fá úrval gjafa og góm-
sætt nammi sem er sérstaklega
gert fyrir dýrin. Ganga verður úr
skugga um að dýrin nái ekki í
mat og góðgæti sem er ætlað
mannfólki, því þau geta orðið
veik af því. Þess í stað má nálg-
ast dýranammi og dót í gælu-
dýraverslunum. Samt sem áður
þarf að gæta hófs þegar dýrunum
er gefið, því rétt eins og við
mega þau ekki éta of mikið af
sætindum, jafnvel þótt það sé
dýragotterí. Fyrir þá sem vilja
kaupa gjafir fyrir dýravini sína
eru hér nokkur sýnishorn af því
sem er í boði fyrir dýrin, bæði
hunda, ketti, fugla og nagdýr.
Fyrir glitglaða Skrautól eins og þessi, fyrir meðal-
stóran hund, kostar 1.450 kr. Þessar ólar eru líka til
fyrir stóra hunda og litla, en minni gerðin hentar líka
fyrir ketti. Dýraland, Kringlunni.
Morgunblaðið/Ásdís
Hó, hó, hó Jólasveinaskór til að tuskast með
kostar 1.200 kr. og fæst í Dýralandi, Kringlunni.
Góðgæti Hunda- og katta-
nami í fallegum umbúðum fæst í
Dýraríkinu við Grensásveg.
Stór kassi af hundanammi kost-
ar 513 kr. og lítill pakki af
kattanammi kostar 341 kr.
Nammidagatal Það eru ekki bara
börnin sem fá jóladagatal, því nú er
hægt að fá dagatöl fyrir hunda, ketti
og nagdýr. Hér er eitt slíkt sem er fyr-
ir nagdýr. Í gluggunum er góðgæti fyr-
ir dýrið. Dagatalið kostar 767 kr. og
fæst í Dýraríkinu við Grensásveg.
Snæfinnur Hér má sjá skemmti-
legt hundaleikfang sem er tilvalið í
jólapakka ferfætlingsins. Snjókall-
inn kostar 930 kr. og fæst í Dýra-
ríkinu við Grensásveg.
Jólasokkur Sumstaðar eru til til-
búnir jólapakkar fyrir dýrin, þar
sem búið er að setja ýmislegt dót og
nammi saman í pakka. Þessir pakk-
ar eru til fyrir hunda, ketti, fugla,
nagdýr og kanínur. Hér má sjá slík-
an pakka fyrir ketti sem fæst í
Dýralandi, Kringlunni, og kostar
1.200 kr. Þessir pakkar fást í ýms-
um stærðum.
Dekrað
við dýrin
á jólunum
Mjúkt undir
tönn Stór flísbolti
fyrir hunda, 950
kr., Dýraland,
Kringlunni.