Morgunblaðið - 18.12.2006, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2006 43
40.000
MANNS!
450 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
- Verslaðu miða á netinu
Eragon kl. 6, 8.20 og 10.40 B.i. 10 ára
Casino Royale kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 6
Hátíð í bæ / Deck the Halls kl. 5.50
Mýrin With english subtitles/M. enskum texta kl. 8 og 10.10
Borat kl. 8 og 10
Cameron
Diaz
Kate
Winslet
Jude
Law
Jack
Black
JÓLAMYNDIN Í ÁR
Aðeins
500 kr.
Frábær fjölskyldu- og gamanmynd
sem kemur öllum í gott jólaskap
eeee
S.V. MBL.
eeee
V.J.V. TOPP5.IS.
eee
S.V. MBL.
eee
MMJ, KVIKMYNDIR.COMKVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
80.000
gestir!
Now with english
subtitles in Regnboginn
-bara lúxus
Sími 553 2075
Þegar myrkrið skellur á...hefst ævintýrið!
Stórkostleg
ævintýramynd
byggð á magnaðri
metsölubók
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 B.I. 10
Sýnd kl. 6 ÍSL. TAL
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6 og 9
Sýnd kl. 8 og 10.15 Strangl. B.I. 16Sími - 551 9000
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan er opin
frá kl. 9–16.30 alla virka daga. Boccia
kl. 10. Félagsvist kl. 14 alla mánudaga.
Bókabíllinn frá kl. 13.30–14.30 alla
mánudaga. Hádegismatur alla virka
daga frá kl. 12–13. Miðdegiskaffi frá kl.
15–16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, fótaaðgerð, samverustund,
bútasaumur, blöðin liggja frammi.
Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Lítið inn, gluggið í Moggann og
hin blöðin og fáið ykkur rjúkandi kaffi
hjá Erlu og Rósu. Jólahlaðborð kl. 17
föstudag 15. des. Uppl. 588 5533.
Handverksstofa Dalbrautar 21–27 er
opin frá kl. 8 til 16 virka daga. Allir
velkomnir.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofa FEBK, Gullsmára 9, er opin
á mánudögum og miðvikudögum kl.
10–11.30. Viðtalstími FEBK í Gjábakka
á miðvikudögum kl. 15–16. Félagsvist
er spiluð í Gjábakka á miðvikudögum
kl. 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13. Kaffitár kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinna kl. 9–12. Gler- og postulíns-
málun kl. 9.30 og kl. 13. Lomber kl.
13.15. Canasta kl. 13.15.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Postulínshópur kl. 9. Handavinna kl.
13, leiðbeinandi á staðnum. Brids kl.
13. Félagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Op-
ið í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Félagsstarf eldri borgara í Mos-
fellsbæ | Jólahátíðarstund verður á
Dvalarheimilinu Hlaðhömrum þriðju-
daginn 19. des. kl. 14. Söngur, jóla-
hugvekja og hátíðarkaffi.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 11 les Eysteinn
Björnsson úr bókum sínum. Kl. 12
jólahlaðborð í hádeginu í Kaffi Bergi,
börn frá Ártúnsskóla flytja hátíð-
ardagskrá, stjórnandi Ellert Borgar
skólastjóri. Frá hádegi spilasalur op-
inn, kóræfing fellur niður, Gerðuberg-
skór syngur í Garðheimum á morgun
kl. 15.30.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall,
dagblöðin, handavinna. Kl. 10 bæna-
stund. Fótaaðgerð. Kl. 12 hádeg-
ismatur. Kl. 15 kaffi. Kl. 9 hárgreiðsla,
sími 894 6856.
Hraunbær 105 | Kl. 12.30 mun Stein-
grímur J. Sigfússon lesa upp úr bók
sinni Við öll: Íslenskt velferðarsam-
félag á tímamótum. Allir velkomnir.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Ganga frá Haukahúsinu kl. 9.30. Gafl-
arakórinn kl. 10.30. Glerbræðsla kl.
13.30. Félagsvist kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–16 hjá Sigrúnu, keramik, tau-
málun og kortagerð. Jóga kl. 9–11,
Sóley Erla. Frjáls spilamennska kl. 13–
16. Fótaaðgerðir 588 2320.
Hæðargarður 31 | Það eru allir vel-
komnir í félagsstarfið. Endilega kom-
ið við, kíkið í blöðin og fáið ykkur
kaffisopa! Tilvalið að bjóða allri fjöl-
skyldunni í síðdegiskaffi undir stóra
jólatrénu okkar. Fastir liðir eins og
venjulega og auk þess alltaf eitthvað
nýtt á hverjum degi! Maður er manns
gaman! Uppl. 568 3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun kl.
9.30 er sundleikfimi í Grafarvogs-
sundlaug.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Postu-
línsmálun kl. 9. Sögustund og léttar
æfingar kl. 10.30. Handavinnustofur
kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30
handavinna. Kl. 9–10 boccia. Kl. 11–12
leikfimi. Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 13–16 kóræfing. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30. Bókband kl. 9. Handa-
vinnustofan opin kl. 9–16. Morg-
unstund kl. 9.30, hárgreiðslu- og
fótaaðgerðarstofur opnar frá kl. 9,
alla daga. Boccia kl. 10, glerbræðsla
kl. 13, frjáls spil kl. 13–16.30. Lesið úr
nýjum bókum kl. 15.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30. Bókband kl. 9, handa-
vinnustofan opin kl. 9–16, morg-
unstund kl. 9.30, hárgreiðslu- og
fótaaðgerðarstofur opnar frá kl. 9.00
alla daga, boccia kl. 10, glerbræðsla
kl. 13, frjáls spil kl. 13–16.30. Lesið úr
nýjum bókum kl. 15.30.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 9 handavinna.
Félagsráðgjafi annan hvern mánudag.
Kl. 13 opinn salur. Kl. 13.15 leikfimi. Kl.
20 rithöfundarnir Kristín Steins-
dóttir, Jón Gnarr og Sölvi Björn Sig-
urðsson lesa úr verkum sínum. Sig-
mar Guðmarsson kynnir nokkur
heimsmet úr Heimsmetabók Guin-
ness 2007. Kvartett frá Grafarholts-
sókn. Aðgangur ókeypis, allir vel-
komnir.
Kirkjustarf
Grafarvogskirkja | TTT fyrir börn 10–
12 ára í Grafarvogskirkju kl. 17–18.
TTT fyrir börn 10–12 ára í Húsaskóla
kl. 17–18. Æskulýðsfélag fyrir ung-
linga í 8.–10. bekk í Grafarvogskirkju
kl. 20.
Hjallakirkja | Tíu til tólf ára starf er í
Hjallakirkju á mánudögum kl. 16.30–
17.30.
Kristniboðssalurinn | Samkoma
verður í Kristniboðssalnum Háaleit-
isbraut 58–60 miðvikudaginn 20.
desember kl. 20. „Orðið varð hold.“
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir talar.
Bjarni Gíslason segir frá götubörnum
í Addis Abeba. Kaffi eftir samkom-
una. Allir eru velkomnir.
Spaðar heiðra hér Íslendinga með
tónlist sinni enn á ný. Þeir spila
blöndu af írskri og austurevrópskri
þjóðlagatónlist með hippísku ívafi. Ég
vil strax taka það fram að þegar ég
minnist á hippa er ég ekki að meina
að tónlistin þeirra sé langdregið
freðkubull, ég er að meina að undir
þjóðlagatónlistinni kraumar
skemmtilega slök stemming sem
meðal annars er kölluð fram með
ágætlega útsettum orgelhljómi sem
getur aðeins minnt á þann tímann í
kringum 1970. Mikið óskaplega eru
Spaðar skemmtileg hljómsveit. Þeir
eru kannski ekki það frumlegasta
sem ég hef heyrt en þeim tekst að ná
markmiði sínu einkar vel. Þeir eru
ekki að stefna á að brjóta blað í tón-
listarsögunni, enda tekst það fæstum
tónlistarmönnum, heldur er mark-
miðið að gera hressa þjóðlagaplötu
með sniðugum textum og það tekst.
Lögin eru engar tímamótasmíðar
en samt sem áður svo lifandi og mel-
ódísk. Mig langar til að kunna þau og
syngja með þeim. Þeir skila spilagleð-
inni vel til hlustandans og sýna vel
hvers megnugir þeir eru. Stundum
eru það þeir sem síst ætla sér að vera
frábærir sem eru það. Spaðar eru að
gera tónlistina fyrir sjálfa sig og það
heyrist í gegn. Enginn pressa frá út-
gefanda, engar ódýrar sölubrellur
heldur tónlist, tónlistarinnar vegna.
Útsetningarnar eru frábærar, sam-
spil Spaða er fullkomið. Hrikalega
flottar bassalínur er víða að finna og
það sama má segja um fiðluleik. Þeir
vita upp á hár hvert þeir ætla sér með
þessari plötu og tekst það. Mig langar
líka að taka það fram að mér finnst
Guðmundur Andri Thorsson ferlega
fínn söngvari, hann er með þýða og
fallega rödd.
Það besta við plötuna er andrúms-
loft hennar. Hér eru á ferð hressir
strákar sem hafa gaman af því að
gera tónlist og þar af leiðandi fær af-
slöppun þeirra og húmor að streyma í
gegn til hlustandans.
Spaðar – tónlistarinnar vegna
TÓNLIST
Geisladiskur
Spaðar – Stundaglasaglaumur
Geisladiskur Spaða sem nefndur er
Stundaglasaglaumur. Spaðar eru Að-
algeir Arason – mandólín og raddir, Guð-
mundur Ingólfsson – bassi og raddir, Guð-
mundur Pálsson – fiðla, píanó og raddir,
Guðmundur Andri Thorsson – söngur, gít-
ar og raddir, Gunnar Helgi Kristinsson –
harmónikka og hljómborð, Magnús Har-
aldsson – gítar, söngur og raddir og Sig-
urður G. Valgeirsson – trommur og áslátt-
ur. Einnig koma fram Helgi Guðmundsson
á munnhörpu, Samúel Samúelsson á bás-
únu og Axel Árnason með áslátt og harm-
oníumleik. Axel Árnason tók upp ásamt
Guðmundi Ingólfssyni og Aðalgeir Ara-
syni í Sýrlandi og Kyrrþey. Axel Árnason
sá um hljóðblöndun. Lokavinnsla var í
höndum Haffa Tempó í Írak. Spaði gefur
út og 12 Tónar dreifa.
Helga Þórey Jónsdóttir
Morgunblaðið/Sverrir
Stundaglasaglaumur „Það besta við plötuna er andrúmsloft hennar,“ segir meðal annars í dómi.
Söngkonan Beyoncé Knowles hef-ur gefið í skyn að kærastinn
hennar, rapparinn Jay-Z, sé ekki
tilbúinn til þess að ganga í hjóna-
band. Talið var að
hjónaleysin
myndu jafnvel
ganga í það heil-
aga um helgina,
en fregnir herma
að ekkert hafi
orðið af því.
Knowles segist
verða frekar pirr-
uð á mönnum sem óttast skuldbind-
ingar. „Það er ekki hægt að ýta karl-
mönnum út í neitt, ekki samband,
ekki hjónaband og ekki barneignir.
Það er ekki fyrr en hann er tilbúinn
til þess og lætur þig vita,“ sagði
söngkonan í samtali við tímaritið
Style. Þá sagði hún að hún hafi eng-
an áhuga á risastóru brúðkaupi
heldur vilji hún litla athöfn á lítilli
eyju. „Ég var aldrei ein af þessum
stelpum sem dreymdi um risastórt
brúðakaup. Kannski förum við bara
á einhverja eyju til þess að láta
pússa okkur saman.“ Knowles segist
gera sér miklar vonir um hjónaband-
ið því foreldrar hennar eru enn gift.
„Foreldrar mínir eru enn saman eft-
ir 27 ára hjónaband, og þau eru enn
ástfangin. Þau gefa gott fordæmi,“
sagði söngkonan.
Fólk folk@mbl.is