Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ ✝ RagnheiðurFriðrika Jónas- dóttir fæddist í Skálabrekku á Húsavík 28. apríl 1924. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsa- vík mánudaginn 9. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jónas Bjarna- son, f. á Hraunhöfða í Öxnadal 4. maí 1885, síðar vega- verkstjóri á Húsa- vík og Þórshöfn, d. 21.júlí 1968, og Kristjana Guðbjörg Þorsteins- dóttir húsfreyja og verkakona á Húsavík, f. í Engimýri í Öxnadal 18. nóvember 1886, d. 17. sept- ember 1960. Ragnheiður átti átta systkini, þau eru: Guðmundur Helgi, f. 1906, d. 1958, Svanlaug- ur, f. 1907, d. 1907, Svanlaugur, f. 1908, d. 1909, Dalrós Hulda, f. 1910, d. 2001, Sigríður Jónína, f. 1913, d 1918, Skarphéðinn, f. 1917, d. 1990, Sigríður Jónína, f. 1919, og Jónasína Eva, f. 1926, d. 1941. Ragnheiður giftist árið 1945, Olgeir Sigurgeirssyni, f. í Voladal á Tjörnesi 22. maí 1924. Foreldrar hans voru hjónin Sigurgeir Pét- ursson, f. 19. apríl 1874, d. 9. apríl 1950, og Björg Jónsdóttir, f. 31. janúar 1890, d. 18. september 1978. Olgeir og Ragnheiður eign- uðust ellefu syni. Þeir eru: 1) Sig- urður Valdimar, f. 23. maí 1942, d. 15. október 2005, maki Auður Þór- unn Hermannsdóttir, f. 25. sept- ember 1945. Börn þeirra eru: Ásta, Olgeir, Hermann Arnar og Kristján Friðrik. Sigurður og Auður eiga tíu barnabörn og tvö barnabarnabörn. 2) Hreiðar eiga eitt barnabarn. 10) Björn, f. 23. febrúar 1962, maki Rúna Björk Sigurðardóttir, f. 24. mars 1960. Börn þeirra eru: Haukur Rúnar, Nanna Dröfn, Ragnheiður, Nói og Máni. Björn og Rúna eiga eitt barnabarn. 11) Heiðar Geir, f. 18. júlí 1967, maki Brynja Björk Hall- dórsdóttir, f. 7. desember 1962. Börn þeirra eru: Brynhildur, Elías Frímann, Heiður Sif, Halldór Geir og Helga Björk. Heiðar og Brynja eiga fjögur barnabörn. Ragnheiður ólst upp á Húsavík og þar bjó hún og starfaði alla tíð. Hún gekk í barna- og unglinga- skóla á Húsavík, Hún var lengst af heimavinnandi húsmóðir, enda var heimilið stórt og oft gest- kvæmt í Skálabrekku, þó stundaði hún ýmsa vinnu með heimilinu þegar tækifæri gafst, s.s. síldar- söltun á sumrin og beitninga- vinnu. Eftir að strákarnir voru komnir á legg vann hún í allmörg ár við aðhlynningarstörf á Sjúkra- húsi Húsavíkur. Þá tók hún þátt í atvinnurekstri með eiginmanni sínum sem árið 1961 stofnaði út- gerð, ásamt sonum sínum, sem hann starfaði við þar til hann hætti störfum sökum aldurs. Ol- geir og Ragnheiður fluttu í Skála- brekku, æskuheimili Ragnheiðar, árið 1945 og bjuggu þar allan sinn búskap. Þeim hjónum var gefið mikið barnalán og er nú stór- fjölskyldan út af Olla og Rögnu í Skálabrekku orðin yfir 140 manns, þ.e. afkomendur og mak- ar. Ragnheiður var félagslynd og starfaði m.a. til fjölda ára með Kvenfélagi Húsavíkur, var í Slysa- varnadeild kvenna á Húsavík og síðustu árin í Félagi eldri borgara á Húsavík. Síðustu mánuði dvaldi Ragn- heiður á Heilbrigðisstofnun Þing- eyinga, sínum gamla vinnustað, þar sem hún naut góðrar aðhlynn- ingar í erfiðum veikindum. Útför Ragnheiðar verður gerð frá Húsavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ófeigur, f. 26. maí 1943, maki Halla Hallgrímsdóttir, f. 8. október 1945. Börn þeirra eru: Hafþór, Hallgrímur, Ragn- heiður, Olga Hrund og Anna Heba. Hreiðar og Halla eiga átta barnabörn. 3) Óskírður drengur, f. 10. ágúst 1944, d. 10. ágúst 1944. 4) Pétur Sigurgeir, f. 12. október 1945, maki Ása Dagný Hólmgeirsdóttir, f. 13. júlí 1945. Börn þeirra eru: Sigurgeir, Linda og Sævar. Pétur og Ása eiga sex barnabörn. 5) Jón, f. 6. maí 1947, maki Hulda Salómonsdóttir, f. 12. febrúar 1950. Börn þeirra eru: Björg, Örvar Þór og Særún. Jón og Hulda eiga sex barnabörn. 6) Skarphéðinn Jónas, f. 6. júní 1948, maki Kristjana V. Ketilsdóttir, f. 15. nóvember 1948. Börn þeirra eru: Karólína, Róbert Ragnar, Katla Sóley og Jóna Rún. Skarp- héðinn og Kristjana eiga fimm barnabörn. 7) Egill, f. 24. ágúst 1949, maki Pálína Stefánsdóttir, f. 12. september 1949. Börn þeirra eru: Stefán Ómar, Olgeir Heiðar, Víðir Rósberg, Egill Páll og Eydís Lillý. Þau eiga fjögur barnabörn. 8) Aðalgeir, f. 2. apríl 1952, d. 6. apríl 2006, maki Sigríður Svein- björnsdóttir, f. 31. ágúst 1952. Börn þeirra eru: Þóra Ragnheið- ur, Ollý Sveinbjörg, Hjalti Már og Elvar Hrafn. Aðalgeir og Sigríður eiga fjögur barnabörn. 9) Kristján Bergmann, f. 1. júlí 1960, maki Fríða Sólrún Rúnarsdóttir, f. 24. desember 1960. Dætur þeirra eru: Kristjana María, Harpa Sóley, Sæ- unn og Sólveig. Kristján og Fríða Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við elskulega ömmu okkar hinsta sinni. Hún amma Ragna eða amma í Skálabrekku er nú komin á fallegan stað, laus við þjáningar veikindanna og aftur í stóra hlýja faðminn hans afa, sem kvaddi þessa jarðvist fyrir rúmu ári síðan ásamt því að vera umvafinn strák- unum sínum þremur. Afi og amma höfðu þá verið lífsförunautar í um 65 ár. Angrið sækir okkur heim sem erum fávís börn í þessum heim. Við skynjum fátt en skilja viljum þó að skaparinn oss eilíft líf til bjó. Að upprisan er öllum sálum vís og endurfundir vina í paradís. Amma og afi eignuðust 11 syni og yfir 100 afkomendur. Það var alltaf líf og fjör heima hjá þeim í Skálabrekku og vel tekið á móti öllum þeim er þangað komu. Minn- ingarnar um ömmu og afa eru margar í hjörtum okkar og munu þær án efa ylja okkur um ókomin ár. Amma var hress kona og alltaf stutt í húmorinn hjá henni og ófá hlátrasköllin sem hafa framkallast í félagsskap við hana. Hún þreytt- ist seint á að setjast niður með okkur lítil barnabörnin og segja okkur sögur og þar var sagan um hann Smjörbita eflaust sú vinsæl- asta. Þau afi vildu bæði hafa allan krakkaskarann sem oftast í kring- um sig og gáfu sér alltaf tíma til að spjalla við okkur um daginn og veginn. Amma talaði oft um það að græðgi og peningar væru ekki það sem gæfi lífinu gildi heldur börnin okkar og fjölskylda. Samveru- stundir með fólkinu okkar. Það væri það sem við skyldum hlúa að því börnin væru það mikilvægasta í lífinu. „Græna bókin“ er vel þekkt inn- an stórfjölskyldunnar og hefur oft verið vitnað í hana við eldhúsborðið í Skálabrekku. Þetta er sérstök bók sem amma blessunin átti en þar skráði hún samviskusamlega niður nöfn allra fjölskyldumeðlima og sér í lagi þeirra nýju, eftir röð og nöfnum sona sinna, en enginn komst á síður „grænu bókarinnar“ nema amma hefði trú á viðkom- andi. Oftar en ekki hafði hún á réttu að standa þar því ekki stöldr- uðu allir lengi við. Ein af okkar bestu minningum með afa og ömmu var frábær ferð og heimsókn sem við áttum með þeim um jól og áramót 1994 til Nýja Sjálands í brúðkaups Sigur- geirs. Sú ferð á eftir að verða í minningu okkar um aldur og ævi enda dásamlegt að fá að njóta svona dýrmæts tíma með þeim. Í þessari ferð kom væntumþykja þeirra beggja, gleði og glettni vel í ljós. Amma lék á als oddi og mikið var hlegið og enn þann dag í dag rifjum við upp þessar gleðistundir með bros á vör. Amma var aldrei rög við að tala við fólk, jafnvel á er- lendri grundu, þrátt fyrir að vera einungis talandi á ylhýra móður- málið. Hún átti oft í löngum sam- ræðum við fólk og náði til þess með brosi sínu og líkamstjáningu, það var nú ekki vandamálið. Við systk- inin sáum ömmu einn daginn í hrókasamræðum við nágranna Sig- urgeirs á Nýja Sjálandi, nágrann- inn talandi ensku og amma ís- lensku á móti. Það lýsir hugrekki hennar og viðmóti til lífsins vel. Við látum hér staðar numið því hægt væri að vitna í samveru- stundir með ömmu og afa og fylla nokkrar bækur. Elsku amma, við söknum þín nú þegar en erum ævarandi þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og eiga þig sem ömmu og lang- ömmu. Við trúum að þú sért komin til Paradísar og munir vaka yfir okk- ur sem eftir erum og er það okkur huggun harmi gegn. Skarðið sem er nú í hjörtum okkur eftir að þið afi eruð bæði farin til himna, verð- ur aldrei fyllt. Blessuð sé minning þín. Sigurgeir, Linda og Sævar Pétursbörn og fjölskyldur. Elsku amma Ragna! Nú hefur þú kvatt þetta jarð- neska líf og ert komin yfir til afa Olla og strákanna þinna. Þetta er alltaf svo sárt og erfitt, en við vit- um að þú ert komin á góðan stað og þú ert ánægð. Þegar litið er til baka þá eigum við svo margar góð- ar minningar saman, það var alltaf svo yndislegt að koma í Skála- brekkuna til ykkar afa. Efst í huga eru öll spilin okkar við eldhúsborð- ið, söngurinn við orgelið og Smjör- bitasagan góða. Við erum svo heppin að hafa átt ykkur afa alltaf að, alltaf stóðu dyrnar í Skála- brekkunni opnar fyrir okkur. Þú hefur verið okkur mikil fyrirmynd, elsku amma, allt sem þú hefur gengið í gegnum hefur sýnt okkur hversu sterk og frábær kona þú varst og þú gafst aldrei upp, hvað sem á gekk. Við eigum eftir að sakna þín svo mikið, þú munt alltaf lifa í minningunni. Elsku amma, í okkar augum varst þú einstök hetja og við viljum kveðja þig með sálmi sem við sung- um svo oft saman: Í bljúgri bæn og þökk til þín sem þekkir mig og verkin mína Ég leita þín, Guð, leiddu mig og lýstu mér um ævistig. Ástarkveðja Heiður Sif, Helga Björk og Halldór Geir. Ég ætla að kveðja ömmu Rögnu með fáum orðum. Ég trúi ekki enn að þú sért farin, amma mín. Ég sakna ykkar afa svo mikið að það er eiginlega óbærilegt. En lífið er ekki alltaf sanngjarnt, því höfum við kynnst í þessari fjölskyldu síð- asta eina og hálfa árið. Það hefur verið tekið vel á móti þér og nú er friður yfir þér amma mín og það var það sem ég óskaði þegar ég sá þig síðasta dag þinn á lífi. Þú varst orðin svo veik. En þetta er samt svo erfitt. Ég var alltaf svo mikil afa- og ömmustelpa og kom oft til ykkar í Skálabrekku. Þið voruð alltaf svo ánægð að sjá mann, ef ég kom ekki í nokkra daga þá sagði afi ,,Nei, ert þú komin, ég hélt að þú værir flutt til Noregs“ og lét mig þannig vita að það væri orðið held- ur langt síðan síðast. Ósjaldan sát- uð þið afi og horfðuð á Leiðarljós þegar ég kom og þá átti ég helst að horfa með ykkur. Á örstuttum tíma komuð þið mér inn í atburðarásina því ykkur fannst ég fara á mis við svo mikið í lífinu með því að horfa ekki. Svo komum við Simmi oft og spiluðum Kana við ykkur. Simma fannst alltaf svo gaman að segja hærra en þú og helst falla með það því það tók þig alveg á taugum. Afa þótti líka gaman að segja hærra en þú, sérstaklega þegar þú sagðir háa sögn. Þetta voru yndisleg kvöld sem ég mun alltaf muna vel eftir. Síðustu árin ykkar voru sér- staklega skemmtileg, þið voruð farin að gleyma oft í miðju spili með hverjum þið væruð að spila og tókuð slagi af mótherja. Síðustu fimm ár bökuðum við saman smákökur fyrir jólin. Þetta voru gullstundir. Afi fylgdist með og setti svo með mér kremið á mömmukökurnar. Það var líka til þess að tryggja að það færi nóg krem á kökurnar, okkur fannst það svo gott. Afi var svo mikið jólabarn og tók marga daga í að setja upp seríur. Enda var Skálabrekka allt- af svo jólaleg. Ég hef alltaf verið mikið jólabarn og á næstu jólum mun ég sakna ykkar afa alveg of- boðslega mikið, mér fannst hræði- legt að hafa ekki afa með okkur síðustu jól. En ég fékk að hafa þig og fyrir það er ég þakklát. Það var líka gaman hjá okkur þegar við vorum saman tvær í her- bergi á Spáni. Þá spiluðum við á hverju kvöldi. Svo fórum við saman á tískusýningu og þú keyptir græna dressið. Ég fékk svo kaup- bæti fyrir það sem þú keyptir, það var sjávarperla og mér fannst ég hafa eignast gull. Flott varstu í græna dressinu. Þú varst alltaf svo stolt af stóra barnahópnum þínum, alltaf að segja okkur sögur. Ég er svo glöð að Rebekka fékk að kynnast þér, þú varst alltaf svo ánægð þegar ég kom með hana til þín, sem var svo oft þegar þú bjóst heima hjá mömmu og pabba. En þetta er bara brot af öllum góðu minningunum, elsku amma mín, hinar geymi ég. Mér þótti svo vænt um ykkur afa að því fá engin orð lýst. Nú veit ég að þið eruð aft- ur saman með drengjunum ykkar tveimur sem fóru of snemma frá okkur. Þið vakið yfir okkur og verndið. Ég verð ykkur afa æv- inlega þakklát fyrir allt sem við áttum saman og allt sem þið gerð- uð fyrir mig. Ég kveð þig nú með söknuði, amma mín, og bið góðan guð að styrkja okkur öll í sorginni. Þín Kristjana María. Elsku amma Ragna, nú ertu far- in frá okkur en ert komin til afa Olla, Sigga og Alla. Mig dreymdi draum nóttina eftir að þú lést, mig dreymdi þig og afa á pallinum í Skálabrekkunni, afi sat og raulaði lag eins og hann gerði alltaf en þú varst að laga til bakkelsi, greini- lega að koma gestir. Það var svo gott veður og svo bjart og fallegt í kringum ykkur, þá vissi ég að þú værir komin til afa og þér liði vel. Margar eru góðar minningarnar úr Skálabrekku, þegar við stelpurnar spiluðum rommí og olsen við ykkur afa og sumir voru tapsárir, allar kleinurnar sem maður renndi niður með mjólk, svo var það nú ekki verra að ég bjó við hliðina á ykkur þangað til ég var tíu ára og því ekki langt að fara. Þegar ég gekk með Öglu Pálu óraði mig ekki fyrir því að þú myndir lifa það að sjá hana, en annað kom nú á daginn. Áttum við yndislegar stundir allar saman og það var svo gaman af því hvað þú hafðir mikinn áhuga á því hvernig við mæðgur hefðum það, þessar stundir eru mér ómetanleg- ar í minningunni. Elsku amma Ragna, ég mun sakna þín en um leið veit ég að þú ert hjá Olla afa í góðum félagskap, vakandi yfir okkur öllum. Blessuð sé minning þín að eilífu. Eydís Lillý. Ragnheiður Friðrika Jónasdóttir ✝ Óskar IngiÞórsson fædd- ist á Blönduósi 10. júlí 1975. Hann lést fimmtudaginn 5. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans eru Rósa Björg Högna- dóttir, f. 23.6. 1958, sambýlis- maður Heiðar Sigurbjörnsson, og Þór Ingi Árdal, f. 31.12. 1957, sam- býliskona Sigrún Wiencke. Systkini Óskars eru Steinþór Ingi Þórs- son, f. 26.4. 1977, Hafsteinn Auðunn Björnsson, f. 31.5. 1982, Lilja Nótt Sævarsdóttir, f. 20.8. 1985, Hafdís Gréta Þórsdóttir, f. 16.12. 1986, og Jóhanna Lilja Þórsdóttir, f. 3.6. 1988. Óskar var í sambúð með Dagbjörtu Magnúsdóttur. Þau slitu sam- vistir árið 2005. Þau eiga þrjár dætur, þær eru: Victoría Rós, f. 23. nóvember 1999, Ástrós Anita, f. 11. apríl 2001, og Arn- rún Mist, f. 12. september 2002. Árið 2005 hóf Óskar sambúð með Huldu Björk Mar- teinsdóttur, sonur þeirra er Óðinn Þór, f. 19. febrúar 2006. Dóttir Huldu er Ragnheiður Diljá Káradóttir, f. 4.11. 1999. Óskar og Hulda slitu sam- vistir árið 2007. Óskar starfaði lengst af sem sjómaður. Árið 2006 tók Óskar sig upp og fór í Framhaldsskóla Húsavíkur. Stefndi hann á garð- yrkjufræðinginn. Óskar var heitur ásatrúarmaður og starf- aði mikið á vegum félagsins. Útför Óskars fer fram frá Fellsborg á Skagaströnd í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Það var núna í byrjun janúar sem Byr-hópurinn settist á skólabekk í Framhaldsskóla Húsavíkur. Öll vor- um við bjartsýn á skóagöngu okkar, en pínulítið kvíðin. Það kostar jú smá átak að stíga yfir skólatröppurnar eftir öll þess ár. Þetta var samheld- inn hópur karla og kvenna sem sam- an bjó til vönd af skrautfjöðrum. Ein skrautfjöðrin var hann Óskar. Elsku Óskar. Það er svo margt sem fer í gegn- um huga okkar, þegar við kveðjum þig, eftir alltof stutta samveru. Það var oft gaman með þér, og hlegið mikið, eins og þegar þú tókst nokkur dansspor við beinagrindina í leik- fimisalnum okkar. Eða skaust inn lúmsku bröndurunum þínum í ís- lenskutímum. Hæfileikar þínir virt- ust vera óendanlegir, þó þeir fengu ekki allir að njóta sín meðal okkar. Þú varst líka svo tilfinningaríkur og næmur á allt og alla og það sannaði sig kannski best með hvernig þú rissaðir upp fallegu listaverkin þín í tímum, án þess að þurfa að hafa nokkuð fyrir því. En þú áttir líka þín- ar erfiðu stundir og gast verið svo dulur og hljóður. Það var höggvið stórt skarð í hóp- inn þegar sjúkdómurinn tók þig svo skyndilega frá okkur, án þess að við gætum kvatt þig. Okkur er líka hugsað til barnanna þinna, fjölskyldu og vina, um leið og við sendum þeim okkar innilegustu samúðarkveðjur. Bekkjarfélagar Framhaldsskól- ans á Húsavík, Byr-hópurinn, Húsavík. Óskar Ingi Þórsson MINNINGAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.