Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Afsakaðu, háttvirtur ráðherra, það er enginn „bjarghringur“. VEÐUR Framsóknarflokkurinn er alltofupptekinn af því, að DV dreifði að því er sagt er 100 þúsund eintök- um af blaðinu í kynningarskyni skömmu fyrir kosningar. Fram- sóknarmenn upplifðu þessa útgáfu sem eina allsherjar árás á flokk þeirra daginn, sem blaðið kom út og Guðni Ágústsson, hinn nýi leiðtogi Framsóknarflokksins, er enn að tala um þessa útgáfu, nú síðast á Alþingi í fyrradag.     Mönnum erfrjálst að standa í blaða- útgáfu á Íslandi. Það er ekki hægt að halda því fram með nokkrum rökum, að með slíkri útgáfu sé verið að fara í kringum ný lög um fjármál stjórnmálaflokkanna.     Það er mjög erfitt að meta þauáhrif, sem blöð hafa með skrif- um sínum t.d. í aðdraganda kosn- inga. Það getur allt eins verið að skrif blaða hafi þveröfug áhrif mið- að við það sem að var stefnt. Þannig getur alveg eins verið að umrætt kynningarblað DV hafi þjappað framsóknarmönnum saman á loka- dögum kosningabaráttunnar.     Guðni Ágústsson vildi tengjaþessa útgáfu DV neikvæðum auglýsingum, sem beint var gegn Birni Bjarnasyni, dómsmálaráð- herra, daginn fyrir kosningarnar. Neikvæð auglýsingastarfsemi er þekkt fyrirbæri í Bandaríkjunum og þar hafa menn stundað hana með misjöfnum árangri. Reynslan hér á Íslandi er sú, að þeir, sem stunda neikvæða áróðursstarfsemi, m.a. með auglýsingum og blöð, sem aldr- ei sjá nokkuð jákvætt í umhverfi okkar, finna lítinn sem engan hljóm- grunn meðal almennings.     Hinn þjóðrækni leiðtogi Fram-sóknarflokksins á að leita skýringa á ósigri flokksins annars staðar. STAKSTEINAR Guðni Ágústsson Framsókn og DV SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                     *(!  + ,- .  & / 0    + -                       12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (    !               :  *$;< ""                                !     !     " #$ #%   &  *! $$ ; *! #$%"  "$"    & =2 =! =2 =! =2 # %"' ( )"*  + 2>         *    ;  , %" -"$".!" ) / 0 " "  " "(  - " " ""  " "  1"   &(" " ""   ( /"2 " ""$"  " "" " ""  -"   $ 1" "$ ( / /    3%"  %" /"0 "$ " 1" " $ "(-"  " " "$" $  / # " 1" " $ ( " " "   "/ 3 "" "" -""" "4"   1" " ( / 56 "" 77  ""8   "' ( 3'45 ?4 ?*=5@ AB *C./B=5@ AB ,5D0C ).B / -! !/ / / 4/ / / /    /  !/ 4/4  -4 - -! -4 - - - - - - -4 - - -            Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Matthildur B. Stefánsdóttir | 7. júní 2007 Fyrsti fundurinn Ég sagði honum í gær- kvöldi að hann mætti ekki segja eitt einasta orð á fundinum nema hann þyrfti á klósettið. Hann gerði það sem ég hélt að hann gæti ekki – þagði allan tímann. Ég var reyndar með i-pod fyrir hann til að hlusta á og Andrésar Andarbók, svo var honum líka boðið upp á bláan orkudrykk á fundinum, rosa flott (eitthvað sem hann fær aldrei heima hjá sér). Hann sagði samt þegar hann kom heim að hann vildi ekki vinna við að vera á fundum. Meira: matta.blog.is Sigurður Elvar Þórólfsson | 7. júní 2007 Eyjólfur að hressast? Ég held að vandamál íslenska landsliðsins sé það að leikmenn þess eru margir búnir að ná því markmiði að kom- ast að hjá „góðu“ liði í Evrópu. Fjárhagsleg framtíð þeirra er tryggð og sá „sölu- gluggi“ sem opnast í kringum lands- leiki Íslands er ekki eins mikilvægur og áður. Landsleikir eru ekki eins mikilvægir og þeir voru áður. Það er því lítið um tæklingar, olnbogaskot og skallaeinvígi út við hornfánann. Það rennur varla blóðið í sumum leikmanna íslenska liðsins … Meira: seth.blog.is Egill Helgason | 7. júní 2007 Hættir Steingrímur? Þingmenn sem ég hitti á röltinu í góða veðrinu í bænum í dag voru flestir á því að tími Steingríms J. Sigfús- sonar í pólitíkinni væri að líða. Það voru mikil vonbrigði að komast ekki í rík- isstjórn. Hans bíður fjögurra ára hark í afar sundurleitri stjórnarand- stöðu. Vandinn er sá að Steingrímur hefur ekki alið upp neinn arftaka í flokknum. Svo er spurning hvað Steingrímur á að gera. Varla verður búin til sendiherrastaða fyrir hann? Meira: silfrid.blog.is Rósa Guðrún Erlingsdóttir | 7. júní 2007 Er þjónusta við fæðandi konur ásættanleg? Hefi lengi spurt mig hvort íslenskar konur séu ánægðar með skort á valkostum á sviði fæðingarþjónustu á Ís- landi. Flestar fæðingar á Íslandi fara fram á kvennadeild LSH en á höfuðborgarsvæðinu er jú ekki í önnur hús að venda þar sem ekkert er fæðingarheimilið. MFS-einingunni (Meðganga, fæð- ing, sængurlega) var lokað fyrir tæpu ári síðan með þeim rökum að teymið hefði verið svo vinsælt að ekki hefði verið unnt að anna eft- irspurn!?! Á kvennadeildinni er mik- ið álag á starfsfólki. Þar vinna marg- ar konur með skammarleg laun þrátt fyrir mikla og langa menntun. Með stjórn fara læknar sem hafa margir annað viðhorf til fæðing- arhjálpar en ljósmæður.* Mér kæmi ekki á óvart ef hátt hlutfall inngripa allt frá spang- arskurðum til keisaraskurða megi að hluta rekja til álags á starfsfólki sem ekki getur sinnt konunum sem skyldi. Miðstöð mæðraverndar var síðan lokað á síðasta ári og aðeins þær örfáu konur sem ákveða að fæða heima njóta samfellu í þjónustu mæðraverndar, þ.e. á meðgöngu, fæðingu og sængurlegu, þrátt fyrir að Alþjóða heilbrigðismálastofnunin mæli með öðru. Í Keflavík er ástandið þannig að suma daga eru ekki ákveðnir sér- fræðingar á vakt og þá daga getur verið vont að fæða þar sem vantað gæti svæfingalækni eða sérfræðinga í teymi sem framkvæmir keis- araskurði. Ég á litla frænku sem fæddist eft- ir mikla þrautagöngu fæðandi móð- ur. Fæðingin hófst á spítalanum í Keflavík og lauk í Reykjavík þar sem hún gat fengið þá þjónustu sem þurfti til að ljúka fæðingunni. Hvað ætla íslenskar konur að láta bjóða sér þetta lengi? Rósin *Þessari setningu var breytt eftir að mér barst athugasemd frá Hildi Harðardóttur, sviðsstjóra lækninga á Kvennadeild LSH. Læknarnir eru ekki flestir karlkyns eins og þarna stóð áður. Meira: rosin.blog.is BLOG.IS PARKET & GÓLF • ÁRMÚLA 23 SÍMI: 568 1888 • FAX: 568 1866 WWW.PARKETGOLF.IS PARKET@PARKETGOLF.IS ÁRATUGA ÞEKKING, ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF ClickBoard BYLTINGARKENNDAR VEGG- OG LOFTPLÖTUR Parket & Gólf býður einstaka lausn fyrir vegg- og loftplötur frá þýska framleiðandanum Parador HDF plöturnar frá Parador hafa nær engin sýnileg samskeyti og eru einstaklega auðveldar í uppsetningu. KOSTIRNIR ERU AUGLJÓSIR Hagkvæm og ódýr lausn • einföld uppsetning - 50% fljótlegra höggþolið • auðvelt að þrífa • lítil eða engin sparslvinna losnar við allt ryk • 50 kg. burðarþol á skrúfu stílhreint og nútímalegt útlit • 10 ára ábyrgð Komdu við í verslun okkar og kynntu þér þessa einstöku lausn - við tökum vel á móti þér ka ld al jó s 20 06
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.