Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 60
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 159. DAGUR ÁRSINS 2007 Málamiðlun á G8-fundi  Samkomulag hefur náðst um að stefna að umtalsverðri minnkun á útblæstri gróðurhúsalofttegunda á leiðtogafundi G8-ríkjanna. » 16 Bjargað með harðfylgi  Ungum pilti var bjargað úr Krossá fyrir mikið snarræði skála- varðar í Þórsmörk, Helgu Garð- arsdóttur. Hún elti piltinn á drátt- arvél og náði honum úti í ánni með miklu harðfylgi. » Forsíða Í fimm ára fangelsi  Hæstiréttur hefur dæmt 33 ára konu í fimm ára fangelsi fyrir aðild að innflutningi á nær tveimur kílóum af kókaíni. » 2 Um 50% lægri álagning  Álagning á lyf hefur lækkað um 50% frá því að einkaleyfi í lyfsölu var afnumið fyrir tíu árum. » 4 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» SKOÐANIR» Staksteinar: Framsókn og DV Forystugreinar: Innihaldslausar umbúðir | Á að malbika Kjöl? Ljósvakinn: Tyra og lærisveinarnir UMRÆÐAN» Ríkiskvótabankinn í Bolungarvík Ragga er með hálfbrostna rödd Föðurland vort hálft er hafið Biblían, guðfræði og staðreynd Stílhreinn hátæknijeppi Hamilton dregur að áhorfendur Gamlir bílar og gljáfægðir Brotinn sveifarás og freistandi verð BÍLAR» 3 (9"#+ "' ( : "" /";" -! 4- - - 4-  - 4-! ! -  -  4- - - 4-   - 4- !- *< 7 # -!! - 4- -! - 4-4  -! 4- !- =>00,?@ #AB?0@C:#DEC= <,C,=,=>00,?@ =FC#<"<?GC, C>?#<"<?GC, #HC#<"<?GC, #8@##C/"2?,C<@ I,D,C#<A"IBC #=? B8?, :BC:@#8'#@A,0, Heitast 18 °C | Kaldast 10 °C  Fremur hæg aust- læg eða breytileg átt. Væta með köflum S til. Víða bjart í inn- sveitum nyrðra. » 10 Sex verk verða sýnd í dansleikhúskeppni Borgarleikhússins og Íslenska dans- flokksins sem fer fram í kvöld. » 52 DANSLEIKHÚS» Dansleik- húskeppni TÓNLIST» Lag Úlpu notað í auglýs- ingaherferð MTV. » 50 Kvikmyndirnar Hostel 2 og The Hoax fjalla með ólík- um hætti um myrk- ari hliðar mann- skepnunnar. » 57 KVIKMYNDIR» Hrottaskap- ur og lygar HÖNNUN» Hönnun merkis og aug- lýsingar umdeild. » 50 FÓLK» Samkvæmisljónið fært í stofufangelsi. » 59 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. París Hilton laus úr prísundinni 2. Unglingspilts enn leitað 3. Látin laus samkvæmt læknisráði 4. Hulunni svipt af kærasta Aniston Ostasneiðar eru ómissandi í ferðalagið Nú er 20% afsláttur af Samlokuosti í sneiðum í sérmerktum umbúðum í næstu verslun. www.ostur.is Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is Fjölmiðlamað- urinn Egill Helgason er byrj- aður að blogga á Moggablogginu Blog.is. Eins og kunnugt er hefur staðið nokkur styr um starfslok Egils á Stöð 2 og í kjölfarið var lok- að fyrir aðgang hans að bloggi sem hann hélt úti á Vísi.is. Hann ákvað því að skipta yfir á Blog.is. „Ég er nú ekki búinn að skrifa neitt nema smá- prufu inn á þetta,“ sagði Egill í gær- kvöldi. „En ég mun setja eitthvað inn ef andinn býður og það verður ábyggilega ekki neitt um einhver leiðindadeilumál sem hafa verið að dynja á mér,“ sagði Egill sem er á leið í frí til Englands, Þýskalands og Grikklands og mun því lítið blogga á næstu dögum. Meira: silfrid.blog.is Bloggar hjá Mogganum Egill Helgason Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÉG má þakka fyrir að vera á lífi,“ segir Þráinn Arnar Þráinsson flug- maður, sem slapp heill á húfi eftir að hafa neyðst til að nauðlenda Cessna 152-vél sinni á þýfðu túni á Daytona- strönd í Flórída sl. miðvikudag. Þrá- inn hefur dvalist í Bandaríkjunum síðustu vikur til þess að safna sér flugtímum, en hann útskrifaðist sem atvinnuflugmaður frá Oxford avia- tion training nú í vor. Spurður um atvikið segist Þráinn hafa verið á heimleið. „Samkvæmt öllu hefði ég átt að hafa flugþol til að komast til baka og báðir mælar sýndu að ég hefði nægt bensín, en skyndilega byrjaði vélin að hiksta og ég fór að missa hæð. Ég hafði sam- band við Daytona-aðflug því ég sá ekki fram á að ná á neinn flugvöll í tíma. Þeir bentu mér á nærliggjandi tún, þar sem ég lenti,“ segir Þráinn, sem slapp án skrámu auk þess sem ekki sér á flugvélinni. Góð þjálfun í bland við heppni Svo skemmtilega vill til að í tún- jaðrinum búa tveir rosknir flug- menn, sem komu strax á móti Þráni. „Þeir klöppuðu mér á öxlina og spurðu mig hvernig í ósköpunum mér hefði tekist að lenda vélinni án þess að velta henni við þessar að- stæður,“ segir Þráinn og tekur fram að túnið sé afar þýft og því erfitt yf- irferðar. „Mér skilst að það sé mjög vandasamt að velta ekki flug- vél við slíkar að- stæður,“ segir hann og bendir á að fyrir ári hafi flugkennari og nemandi hans lát- ist þarna skammt frá þegar þeir þurftu að lenda við sams konar að- stæður. Spurður hverju Þráinn þakkar farsæla lendingu sína segir hann það vafalítið vera blöndu af annars vegar heppni og hins vegar góðri þjálfun sem hann hafi hlotið í flugskólanum. Að sögn Þráins mun hann dvelja í Bandaríkjunum í um þrjár vikur til viðbótar til að safna flugtímum. Seg- ist hann vonast til þess að komast í loftið aftur strax í dag. Spurður hvort hann sé ekkert smeykur að fara aftur á loft svarar hann því neit- andi um hæl. „Ég vil bara komast í loftið aftur sem fyrst.“ Aðspurður segir Þráinn ekki enn ljóst hvað hafi verið að vélinni. Segir hann ljóst að einhver bilun hafi orðið í búnaði, því á flugi sýndu mælar að jafn mikið bensín væri í báðum tönk- um, en eftir lendingu hefði komið í ljós að í öðrum tankinum var bensín en hinn var tómur. Undir venjuleg- um kringumstæðum á vélin að taka jafnt úr báðum tönkum. „Þakka fyrir að vera á lífi“  Íslenskur flugmaður neyddist til að nauðlenda vél sinni vegna bilunar  Lenti vélinni á ósléttu landi  Telst heppinn að hafa sloppið algjörlega ómeiddur Þráinn Arnar Þráinsson SUMARIÐ er tíminn fyrir jarðarber. Um þessar mundir berst um tonn af ís- lenskum jarðarberjum frá Silfur- berinu á markað, en aðaluppskerutím- inn hófst fyrir viku og mun standa út júní. Að sögn Eiríks Ágústssonar, eig- anda Silfurbersins, eru berin ræktuð í gróðurhúsum en án raflýsingar. Segir hann sprettuna góða, enda hafi birtan þetta vorið verið með besta móti. Undir þetta taka aðrir garð- yrkjubændur. Hjá Helgu Hauks- dóttur, framkvæmdastjóra Sambands garðyrkjubænda, fengust þær upplýs- ingar að bændur sem rækta kál séu himinlifandi með núverandi hitafar og segir hún það bæta mikið fyrir rok, þurrk og lágt hitastig í maí. Segir hún svalt veðurfar ekki hafa skemmt neitt í gulrótaræktuninni, enda sé aðal- sprettutími gulróta seinni hluta sum- ars. Hún segir ekki hægt að segja að vorið hafi verið hagstætt kartöflu- bændum, en uppsprettan ræðst fyrst og fremst af hita- og rakastigi í ágúst og september. Kalt vor hefur ekki haft neikvæð áhrif á sprettu Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Garðyrkjubændur bjartsýnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.