Morgunblaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 217. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is SUNNUDAGUR AF HÁTTVÍSI HALLDÓR ÞORSTEINSSON MENNINGARLÍF >> 26 LEIK- STJÓRINN SAGA FANGA- VARÐAR MANDELAS BILLE AUGUST Í VIÐTALI >> 70 RÓIÐ Á NÝ MIÐ NÚTÍMA- SÍLDARSTELPA FATAHÖNNUN >> 24 Eftir Oddnýju Helgadóttur oddnyh@mbl.is ÍBÚAR á Kársnesi hafa undanfarið mótmælt skipulagstillögum Kópavogsbæjar fyrir nesið. Í rammaskipulagi sem kynnt var í desember var gert ráð fyrir landfyllingu sem er tæpir 5 hektarar, til viðbótar við eldri landfyllingar. Þá var fyrirhugað að byggja 845 íbúðir og stækka höfn og atvinnusvæði við höfnina. Skipulags- svæðinu hefur verið skipt niður í 10 reiti, sem verða deiliskipulagðir hver í sínu lagi. Þegar hafa tveir reitir verið afgreiddir, annar á bæj- arstjórnarfundi sem kallaður var saman með litlum fyrirvara á fimmtudaginn. Skipulag at- vinnu- og hafnarsvæðisins er nú í auglýsingu og hafa íbúar frest til 21. ágúst til að skila inn athugasemdum. Íbúasamtök á Kársnesinu eru mjög ósátt við skipulagsáformin. Þau beita sér einkum gegn stækkun hafnarinnar, uppbygg- ingu atvinnusvæðis á landfyllingum, mikilli íbúafjölgun og umferðaraukningu. Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segist vilja vinna að skipulagsmálum í sátt við íbúa. Í vikunni sem leið sagði hann að ekki yrði ráðist í stækkun hafnarinnar væri hún íbúum mjög á móti skapi. Hann hefur auk þess fullyrt að ekki verði byggðar fleiri en 300 til 400 íbúðir yst á Kársnesinu á þessu kjörtímabili. Hann segir ýmsa möguleika vera til að létta umferð á Kársnesbrautinni ef umferð eykst mikið. Að hans mati er það raunhæfur mögu- leiki að leggja hluta Kársnesbrautarinnar í stokk. Þá sé hugsanlegt að gera göng undir Fossvoginn, yfir til Reykjavíkur. Tekin verður ákvörðun um skipulag hafn- arsvæðisins á Kársnesinu eftir að frestur til at- hugasemda rennur út.| 10-18 Vilja vera í sátt við bæjarbúa  Bæjaryfirvöld í Kópavogsbæ segjast taka mark á mótmælum íbúa á Kársnesinu gegn breyttu skipulagi  Á annað hundrað mótmælaborða hafa verið hengdir upp á Kársnesinu síðan í júní Í HNOTSKURN »Hugmyndir um breytt skipulag í Kárs-nesi komu fyrst fram árið 2000. »Nú er gert ráð fyrir að heildarfjöldiíbúða sem bætist við verði 845, íbúum fjölgi um 2.000-3.000 og athafnasvæði verði 54 þúsund fermetrar. » Íbúi við Kársnesbraut setti fyrsta mót-mælaborðann upp í júní. Nú hafa á annað hundrað mótmælaborða verið hengdir upp í Kársnesinu. Eftir Arnþór Helgason arnthorh@mbl.is „OKKUR dreymir um að stofnaður verði sér- skóli eða þekkingarsetur fyrir einhverf börn,“ segir Margrét Dagmar Ericsdóttir, móðir ein- hverfs drengs, en fyrirtæki hennar vinnur nú að gerð heimildarmyndar um málefni ein- hverfra. Brenda J. Terzich, annar stofnenda ABC- skólans í Sacramento, Kaliforníu, kom hingað til lands í tengslum við töku myndarinnar. „Í skólanum okkar vinnum við eingöngu eftir svokallaðri atferlisþjálfun, sem byggist á hag- nýtri atferlismótun, en sú aðferð er vel þekkt hér á landi,“ segir Brenda. „Börnin eru sjaldan lengur en 3-4 ár í skólanum en þá eru þau send í almenna skóla eftir því sem kostur er.“ Skortur á starfsfólki Margrét Dagmar segir að hér á landi fari þjálfun einhverfra barna fram í leikskólum en undir hælinn sé lagt hvaða aðferðir séu notaðar við þjálfun þeirra. Hún segir að ástandið snar- versni þegar börnin komast á grunnskólastig en víða sé þjálfun þeirra mjög ábótavant. Fagfólk fáist ekki til starfa vegna lágra launa og erfiðra starfsskilyrða og mikill tími fari í að þjálfa nýtt starfsfólk vegna tíðra mannaskipta. Hún segir það hafa vakið athygli sína að í ABC-skólanum hafi sama fólkið unnið mjög lengi og skilað miklum árangri. Sérhannað húsnæði Margrét segir að hér á landi vanti aðstöðu til þess að þjálfa einhverf börn en til þess þurfi sérhannað húsnæði. Nefnir hún að einhverfir þoli oft illa sterka lýsingu og skæra liti auk þess sem gera verði umhverfið þannig úr garði að sem minnst hætta sé á því að þeir skaði sig. Tel- ur hún nauðsynlegt að stofna hið fyrsta sérskóla eða þekkingarsetur vegna þess hve sérhæfð kennsla einhverfra er. Þörf á sérskóla einhverfra Þjálfun einhverfra barna er sérhæfð og kennsla í sérskóla skilar miklum árangri Morgunblaðið/Frikki Skólaganga einhverfra Brenda J. Terzich, sálfræðingur og stofnandi skóla fyrir einhverfa í Sacramento í Kaliforníu, situr og fylgist með Þorkeli Skúla Þorsteinssyni, sem er einhverfur og gengur í Barnaskóla Hjallastefnunnar. Hann hefur verið í atferlismeðferð hjá Terzich.  Skóli fyrir einhverfa | 30 Borgaryfirvöld í New York hyggj- ast leggja gjald á ökumenn vegna umferðarþunga og hvetja borgar- búa til að nota almenningssam- göngur. Græn bylting í New York-borg Julie Christie var eitt sinn tákn- mynd ungu kynslóðarinnar. Nú hlýtur hún einróma lof fyrir túlkun á Alzheimers-sjúklingi í kvikmynd- inni Away from Her. Leikkonan baráttuglaða Fréttir af 400 sprungum í helfarar- minnisvarða, plötusafni Hitlers og landvinningum sléttumúsa á Spáni vöktu hugleiðingar um hvort eitt- hvað væri í aðsigi. Furðufréttir og fyrirboðar? VIKUSPEGILL Átök um skipulag Kársness í Kópavogi VEFVARP mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.