Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 31 ✝ Christel Hil-degaard Jón- asson (f. Lettau) fæddist í Königs- berg í Þýskalandi 16. október 1920. Hún andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir 16. nóvember síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna August Lettau, f. 1887, d. 1957, og Mörtu Lettau (f. Schoel), f. 1888, d. 1972. Christel var einkabarn foreldra sinna. Christel giftist 1942 Wilhelm Borst, sjóliðsforingja frá Königs- berg, d. 1945. Hinn 6. júní 1953 giftist hún Jakobi Jónassyni, lækni frá Ak- ureyri, f. 28. október 1920, d. 8. júlí 2003. Þau eignuðust tvö börn. Þau eru: 1) Hildigerður Marta, f. 21. maí 1954, gift Lars Gimstedt, f. 19. september 1946. Þau eiga tvö börn, Jakob, f. 1998, og Signýju, f. 2000. 2) Finnbogi, f. 9. desember 1956, kvæntur Elínu Fly- genring, f. 12. maí 1957. Þau eiga tvær dætur, Kristel, f. 1989, og Björgu, f. 1991. Christel ólst upp og bjó í Königsberg til ársins 1945 er hún flúði undan innrás Rússa í Kö- nigsberg til Lübeck í Þýskalandi. Hún flutti til Íslands árið 1949 og starfaði þar í fyrstu sem heimilishjálp og síðar á Landakotsspítala. Hún gerðist síðan húsmóðir og bjó í Bretlandi og Svíþjóð árin 1953- 1960 þar sem Jakob stundaði sér- nám í geðlækningum. Þau fluttu til Íslands og bjuggu lengst af í Safamýri 43. Christel dvaldist síðustu 10 árin á hjúkrunarheim- ilinu Eir. Útför Christelar fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Christel hefur nú fengið að sofna svefninum langa. Lífshlaup hennar framan af ævi var ólíkt lífshlaupi ann- arra Íslendinga og saga hennar að sumu leyti samtvinnuð sögu Evrópu og þeirrar kynslóðar sem upplifði hörmungar stríðsins. Þessi kynslóð er nú óðum að hverfa. Christel fæddist í borginni Königs- berg sem staðsett var í Austur- Prússlandi við Eystrasaltið (nú Kal- iningrad). Hún kom í heiminn ári eft- ir að Versalasamningarnir höfðu verið gerðir sem skiptu Þýskalandi í tvö svæði en borgin var vagga menn- ingar og viðskipta í Evrópu. Þrátt fyrir óstöðugleika millistríðsáranna voru uppvaxtarár Christelar ham- ingjurík. Faðir hennar var nudd- læknir en móðir hennar húsmóðir. Eftir skólagöngu starfaði Christel við skrifstofustörf. Hún kynnist Wilhelm Borst sumarið 1938 er þau störfuðu saman. Þau trúlofuðust, en í stríðs- byrjun 1939 var hann kallaður í her- inn og gerður að sjóliðsforingja. Þau hittust einungis í örfáum leyfum sem hann fékk og giftu sig árið 1942. Wil- helm féll í orrustu á Ítalíu árið 1945 nokkrum dögum eftir að stríðinu formlega lauk. Königsberg var gereyðilögð í stríð- inu. Fjölskyldur tvístruðust og hver átti fótum sínum fjör að launa. Chris- tel flúði burt úr borginni ásamt vin- konu sinni og barni hennar og kom- ust þær í skip í hafnarborginni Pillau sem sigldi með þær til Lübeck. Faðir hennar var í hernum en móðir hennar varð eftir til að sjá um aldraða móður sína. Þýskaland eftirstríðsáranna var dapurlegt og ekki mikið til bragðs að taka fyrir unga ekkju. Christel frétti af fjölskyldu Níelsar Dungal, pró- fessors í Reykjavík, sem óskaði eftir þýskri húshjálp. Hún skildi foreldra sína eftir og sigldi með togaranum Maí til Íslands árið 1949. Eftir að hafa unnið sem heimilishjálp um skeið starfaði Christel á Landakots- spítala þar sem hún kynntist Jakobi Jónassyni, aðstoðarlækni. Hann hafði þá ákveðið að hefja sérnám í geðlækningum og fluttu þau til Lond- on þar sem þau giftu sig. Tveimur ár- um seinna fluttu þau til Svíþjóðar. Þegar til Íslands var komið árið 1960 hóf Jakob störf sem geðlæknir og gerðist síðar sérfræðingur á Kleppi. Þegar ég kynntist Christel á átt- unda áratugnum kom hún mér fyrir sjónir sem ákaflega hlý kona með sterkan vilja sem fór ekki í felur með skoðanir sínar. Lítið bar á því í fari hennar að hún hefði lifað tímanna tvenna, en við nánari kynni fór það ekki á milli mála. Hún var ólík ís- lenskum konum að mörgu leyti og bar með sér ákveðinn heimsborg- arablæ. Christel veiktist af Alzheim- ers-sjúkdómnum við 75 ára aldur. Jakob eiginmaður hennar sá um hana fyrstu árin þar til hún fékk vist á hjúkrunarheimilinu Eir þar sem hún dvaldist til dauðadags. Þar naut hún einstakrar hlýju og umhyggju- semi. Öllum þeim er komu að umönn- un Christelar þökkum við aðstand- endur hennar af alhug og biðjum þeim blessunar. Í eitt af þeim síðustu skiptum sem Christel kom heim til okkar var hún óróleg og vildi fljótlega fara. „Pabbi og mamma bíða eftir mér,“ sagði hún. Nú hefur Christel horfið á vit þeirra og fengið hina eilífu hvíld. Blessuð sé minning hennar. Elín Flygenring. Meira: www.mbl.is/minningar Christel Hildegaard Jónasson erfiða baráttu við krabbamein. Við viljum ekki ennþá trúa því hversu fljótt þetta tók enda hjá þér. Við höf- um átt yndislegar stundir saman þrátt fyrir okkar unga aldur. Í minn- ingu okkar lifir þú sem hressi, skemmtilegi, fyndni frændi okkar sem alltaf var svo gaman að vera ná- lægt. Hugsandi um engla ég hugsa til þín. Með hárið þitt eldrautt og heilbrigða sýn. Er lát þitt ég frétti brást lífstrúin mín. Hugsandi um engla ég hugsa til þín. Guð fylgi þér engill þá ferð sem þér ber. Þótt farin þú sért, þá veistu sem er. Að sorg okkar hjörtu nístir og sker. Við sjáumst á ný þegar kemur að mér. (KK – þýð. ÓGK) Elsku Linda, Þorsteinn Rúnar, Kristófer, Viktoria og fjölskylda. Við færum ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum góðan guð að vernda okk- ur öll á þessum erfiðu tímum þegar við kveðjum elsku Ása frænda, með miklum söknuði. Elísabet Inga, Berglind, Arnar Páll og Ingvar Þór. Elsku vinur, ekki óraði mig fyrir þessari stundu þegar leiðir okkar lágu fyrst saman fyrir rúmum tutt- ugu árum. Kristinn kynnti mig fyrir bræðrum sínum, ungum töffurum sem áttu alla framtíðina fyrir sér. Því er brottför þín frá okkur svo ótímabær og ósanngjörn. Stórt skarð hefur verið höggvið í fjölskyld- una okkar. Eftir sitjum við sár og leyfum huganum að reika um allar samverustundirnar, stundum með bros á vör en þó oftar með tárvot augu af söknuði. Þær eru okkur allar jafn verðmætar en dýrmætustu stundirnar mínar með þér voru und- ir lokin. Á sunnudeginum fyrir and- látið lástu og raulaðir með danska laginu hress og kátur, en það hlýjaði okkur Kristni mikið að sjá þig ágæt- lega hressan. Síðan þegar við sátum bara tvö nokkrum andartökum fyrir brottför þína og ég gat sagt þér hversu óendanlega vænt mér þætti um þig en ég trúi að það hafirðu allt- af vitað. Bara að sitja hjá þér og vera í návist þinni var yndislegt, það þarf ekki alltaf orð til að njóta stundar- innar og greypa hana í hjarta og huga að eilífu. Ási minn, ég veit þú vakir yfir englunum þínum og leiðbeinir þeim á þinn hátt frá æðri tilveru. Það er huggun harmi gegn að eiga minning- arnar um samveru okkar. Elsku Linda, Kristófer, Viktoría, Þorsteinn Rúnar, Einar, Brynjar og Kristinn minn. Missir okkar og harmur er mikill. Megi Guð styðja okkur í gegnum þessar erfiðu stund- ir. Margrét (Gréta). Undanfarna daga og vikur hef ég haldið á vit minninganna og rifjað upp góðar stundir sl. 17-18 ár. Hann dyravörður, hún bardama, og bæði unnu þau á skemmtistaðnum Breið- vangi. Við Ásgeir hittumst fyrst í áramótagleði í Kópavoginum þegar við Linda Björk vinkona mín, fögn- uðum nýjum áratug ásamt starfs- fólki staðarins og öðrum góðum gestum. Ég vissi ekki hver þessi myndarlegi strákur var sem stóð inni í eldhúsinu, í dyravarðarstell- ingunni góðu, en eftir snörp orða- skipti okkar á milli birtist skyndilega í loftinu svífandi blaut borðtuska og lenti, beint á andliti mínu. Ásgeiri þótti vel við hæfi að lækka aðeins rostann í þessari trítilóðu stelpu sem æsti sig óþarflega mikið að hans mati. Handboltakappinn missti ekki marks. Ekki var ég alveg tilbúin að fyrirgefa honum strax, það tók nú reyndar hálft ár og sættir náðust á bjartri júnínóttu á Laugarvatni þar sem við ræddum saman í margar klukkustundir fram undir morgun. Ég hafði þá gert mér grein fyrir að ég yrði að kyngja stolti mínu, því þarna hafði vinkona mín hitt sálu- félaga sinn. Oft höfum við nú hlegið að þessum fyrstu kynnum. Óteljandi minningar koma í hug- ann, Ási að baka upp sósu í sum- arbústaðaferðum, Þórsmörk í svarta Blazernum, spilakvöld í Breiðholt- inu, Gullteignum og Kleppsveginum, milljón trilljón notalegum stundum við spjall og annað, partí aldarinnar áður en þau hjón héldu til Danaveld- is í nám. Það kom fljótt í ljós að Ásgeir var liðtækur í heimilishaldi þeirra og gaman að sjá hann taka til hendinni þegar þess þurfti. Linda var sú fyrsta af okkur vinkonunum sem hófu sambúð og það var alveg frá- bært hvað hann var ætíð þolinmóður við okkur stelpurnar að hlusta á okk- ur röfla um okkar strákavesen og tilbúinn að hjálpa til þyrfti þess með. Ási var mikill húmoristi og glaðvær maður sem gaman var að þekkja. Þetta voru góðir og glaðværir tímar, sem ylja manni um hjartaræturnar. En lífið er hverfult og enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Eina stundina er allt bjart og gott en þá næstu dynur yfir hræði- legt áfall og skyndilega er allt breytt. Ég hef á hverjum degi beðið um kraftaverk og að Ásgeir myndi ná sér af veikindum sínum og allt yrði gott á ný. Ég vildi geta tekið sorgina og sársaukann í burtu og veitt þér gleðina á ný, elsku hjartans Linda mín. Ég vildi geta fært þér aftur það sem þú þráir heitast, en það er því miður ekki í mannlegu valdi að breyta því sem komið er. En við stelpurnar munum hjálpa þér af okkar fremsta megni að takast á við þann erfiða tíma sem framundan er. Fyrir hönd fjölskyldu minnar vil ég votta þeim Lindu Björk, Viktoríu, Kristófer, Þorsteini Rúnari, Einari, Fríði og Hávarði, bræðrum Ása og Lindu, og fjölskyldum þeirra og ást- vinum öllum, djúpa og innilega sam- úð og bið almáttugan Guð að veita þeim styrk í sorginni. Mikill er miss- ir ykkar. Með þessum orðum vil ég kveðja þig, Ásgeir, og þakka þér fyrir allt og allt, líka borðtuskuna. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar. Hvíl í friði. Anna Rudolfsdóttir og fjölskylda. Meira: mbl.is/minningar  Fleiri minningargreinar um Ás- geir Einarsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, LILJU INGIMARSDÓTTUR, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Auðbjörg Díana Árnadóttir, Jón Hermannsson, Ingimundur Árnason, Jónína Þórarinsdóttir, Ingvi Jens Árnason, Ása Helga Halldórsdóttir, Ingimar Arndal Árnason, Dace Rumba, Rakel Árnadóttir, Bjarni Vestmann og ömmubörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur stuðning og veittu styrk við andlát og útför kærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, PETREU GUÐNÝJAR KONRÁÐSDÓTTUR ljósmóður, Hjallalundi 13b, Akureyri. l Helgi Tryggvason, Janice Tryggvason, Guðlaug Inga Tryggvadóttir, Valur Fannar, Svandís Tryggvadóttir, Sigurjón Már Manfreðsson, Tryggvi Pétur Tryggvason, Ingveldur Tryggvadóttir, Sigmundur Björnsson og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, MARTEINN VIGFÚSSON, Hafnarbyggð 35, Vopnafirði, verður jarðsunginn frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 24. nóvember kl 14.00. Bergþóra Friðbjörnsdóttir, Friðbjörn Marteinsson, Þórunn Björnsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN LÁRUS ÁRNASON múrari, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þann 22. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Kristín Haraldsdóttir, Stella K. Stefánsdóttir, Stefán Valdimarsson, Sigrún M. Stefánsdóttir, Erla D. Stefánsdóttir, Helga Stefánsdóttir, Leifur Þórsson, Halla Björk Stefánsdóttir, barnabörn og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elsku- legs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, bróður, mágs og afa, ERLINGS BERTELSSONAR, Unnarbraut 13b, Seltjarnarnesi. Marga Thome, Katrín Erlingsdóttir, Kristján Freyr Einarsson, Erlingur Snær Kristjánsson, Sigríður Bertelsdóttir, Alfons Thome, Agathe Hahn og aðrir aðstandendur. ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, STEINGERÐAR JÚLÍÖNU JÓSAVINSDÓTTUR, Brakanda, Hörgárbyggð. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun og alúð. Börn hennar og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.