Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 41 ÓPERUPERLUR WWW.OPERA.IS MIÐASALA 511 4200 Í KVÖLD, 23. NÓVEMBER, KL. 20 ANNAÐ KVÖLD, 24. NÓVEMBER, KL. 20 Föstudagur 23. nóvember kl. 20:00 Sungið frá hjartanu Jón Þorsteinsson tenór og Hörður Áskelsson orgelleikari flytja sálma af nýútkomnum geisladiski ásamt annarri tónlist. Miðaverð 1.000 kr. Sunnudagur 25. nóvember kl. 17:00 Passionale Tríó skipað Pamelu De Sensi flautuleikara, Martin Frewer fiðluleikara og Sophie Schoonjans hörpu- leikara flytur ástríðufulla tónlist ættaða frá Frakklandi og Spáni. Miðaverð 1.000 kr. Miðasala við innganginn Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Á NÆTURVAFRI um netheima rakst ég á upplýsingar sem fengu mig til að hnykla brýrnar, þó ég yrði kannski ekki sérstaklega hvumsa við fréttirnar. Ég hafði verið að skrifa eilítið um hina vinsælu sveit Weezer og var kominn einu sinni sem oftar inn á Wikipedia.org, hið anarkíska undraverk sem netið var gert til að þjóna finnst manni. Ég fór að rann- saka aðeins fyrrum meðlimi Weezer, en einn bassaleikarinn, Mikey Welsh, staldraði stutt við í sveitinni, þurfti að hætta þar sem hann fékk taugaáfall og fór inn á hæli í kjölfar- ið. Það var nett drama í kringum þetta á sínum tíma, fréttaskrif og slíkt, en Welsh naut þó nokkurra vinsælda á meðal aðdáenda Weezer. Hann kom inn í sveitina 1998 en hætti 2001 en var nógu lengi um borð til að taka þátt í þriðju breið- skífu Weezer, sem heitir bara Wee- zer en er iðulega kölluð græna plat- an. Sú plata þótti reisa Weezer við á nýjan leik vinsældalega og inniheld- ur smellinn „Hash Pipe“. En ég fer semsagt inn á Wikkipe- díuvefsíðuna hans Mikey Welsh og þar stendur efst „Mikey Welsh (Ap- ril 20, 1971 - November 19, 2007) was an outsider artist and former bassist of the band Weezer“. Sam- kvæmt þessu er hann semsagt lát- inn, lést á mánudaginn síðasta. Það er hins vegar ekkert meira sagt um þetta. Ég var ekki hissa, en líf Welsh hefur verið plagað af geðsjúkdóm- um, en ég ákvað nú að leita mér frekari staðfestingar áður en ég myndi skrifa frétt um málið, enda Wikipedia opinn vefur þar sem hver sem er getur skrifað inn upplýsingar og hagrætt greinum á fremur auð- veldan hátt, eitthvað sem er helsti styrkur en um leið helsti veikleiki síðunnar. Eftir þó nokkra rannsóknarvinnu hef ég ekkert fundið og málið því allt hið grunsamlegasta. Miðað við um- ferðina um Wikkipedíuna, og vin- sældir Weezer, væri þá ekki einhver búinn að minnast á þetta? Ég fór á aðdáendatöfluna, sem er vistuð á weezer.com og ekkert var þar. Mig grunar helst að Welsh hafi sett þetta þarna inn sjálfur, í einhverju kasti. Þetta mál opnar fyrir aðra og víð- feðmari umræðu sem er ekki hægt að klára hér og nú; þ.e. um heimild- argildi Wikkipedíunnar. Í raun er það rýrt vegna eðli síðunnar, og alla hluti sem þar er að finna ætti að tví- tékka séu menn að notast við Wik- kipedíuna í greinaskrifum. En viðbúið er að á þeim hraða sem fjöl- miðlaheimurinn vinnur sjái menn í gegnum fingur sér með það. Síð- urnar verða hins vegar traustari, eftir því sem málin eru stærri. T.a.m. er vel haldið utan um síður Pink Floyd og U2, einfaldlega vegna þess að úti um allan heim eru trúf- astir aðdáendur sem passa upp á að hlutirnir séu í lagi og réttir. Þessar vangaveltur breyta því þó ekki að enn er það á huldu hvort Mi- key Welsh er allur eður ei. Ef ein- hver veit eitthvað má hann senda mér línu … eða bara setja það sem hann veit beint inn á Wikkipedíuna! Skrítið Mikey Welsh var/er ólíkindatól en það á nú líka við Wikkipedíuna. Lífs eða liðinn? Wikipedia segir bassaleikara Weezer látinn Fréttir á SMS - kemur þér við Íslendingar afkasta litlu í vinnunni Nemendur beita kennara ofbeldi Tölvusjúkir foreldrar vakna ekki til barnanna Ólafur Ragnar verður ríkari Herra Ísland var plataður til að vinna Það besta í bænum um helgina Hvað ætlar þú að lesa í dag?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.