Morgunblaðið - 29.12.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 29.12.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 15 KAMMERSVEITIN Ísafold og Ís- lenska óperan standa fyrir Öðruvísi Vínartónleikum þriðja árið í röð á morgun, sunnudag. Að þessu sinni verður leikið eitt af meistaraverkum 20. aldarinnar, Söngvar jarðar (Das Lied von der Erde) eftir Gustav Mahler (1860-1911). Tónskáldið sjálft taldi verkið sína persónulegustu tónsmíð en náði aldr- ei að heyra það flutt því hann lést áð- ur en af því varð. Í raun er um að ræða mikilfenglega söngsinfóníu sem sameinar þær greinar sem tón- skáldið hafði mest dálæti á, sönglög og sinfóníu. Tveir söngvarar til liðs við Kammersveitina að þessu sinni Í verkinu notast hann við gömul kínversk ljóð þar sem fjallað er um hverfulleika mannlegrar tilveru, gleði, sorg og söknuð. Á tónleikunum heyrist verkið flutt í kammerútsetningu sem tónskáldið Arnold Schönberg hóf að gera en Rainer Riehn kláraði árið 1980. Út- setningin heyrðist upprunalega í Vínarborg á árunum í kringum 1920 á tónleikum „Félags um einkaflutn- ing tónverka“ (Verein für Musikal- ische Privataufführungen), sem Schönberg stofnaði ásamt fleirum í Vínarborg árið 1918. Að því er best er vitað mun þetta vera í fyrsta skipti sem þetta verk Mahlers fær að hljóma í þessari útsetningu á Íslandi. Kammersveitin Ísafold var stofn- uð árið 2003 og sérhæfir sig í flutn- ingi tónlistar 20. og 21. aldar. Sveitin hefur hlotið lof áheyrenda og gagn- rýnenda fyrir flutning sinn og var ásamt stjórnanda sínum, Daníel Bjarnasyni, tilnefnd til Íslensku tón- listarverðlaunanna 2005 sem bjart- asta vonin í flokki sígildrar og sam- tímatónlistar. Ísafold fær nú til liðs við sig tvo söngvara af yngri kynslóð- inni, þau Finn Bjarnason, tenór, og Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur, mezzósópran, til að flytja verk Mahlers, en stjórnandi á tónleik- unum er Daníel Bjarnason. Söngvar jarðar: Öðruvísi Vínartónleikar í þriðja sinn í Íslensku óperunni Hverfulleiki tilverunnar Ísafold Kammersveitin Ísafold heldur tónleika í Íslensku óperunni á morgun, sunnudag. TENGLAR .............................................. Frekari upplýsingar um flytjendur og verkið sjálft má finna á vef Íslensku óperunnar, www.opera.is, þar sem einnig má kaupa miða á tón- leikana. Bókin sú myndi ekki einastaskelfa samtíma vorn, heldurog kynslóðir næstu alda.“ Svo ritaði Bartolomé de Las Casas um útrýmingu Spánverja á indján- um Ameríku og við sem erum uppi hálfri fimmtu öld og ófáum kyn- slóðum á eftir honum skelfumst lík- lega alveg nóg af bókinni sem hann skrifaði þetta í, Örstutt frásögn af eyðingu Indíalanda, sem hann tek- ur þó fram að reki aðeins brot af þessari helför Spánverja gegn ind- jánum í Mið- og Suður-Ameríku (auk syðsta hluta Norður- Ameríku). Talið er að þegar Spánverjar komu til Ameríku hafi jarðarbúar verið um 400-500 milljónir, þar af hafi einar 80 milljónir búið í Ameríku. Af þessum 80 milljónum frumbyggja voru aðeins um tíu milljónir eftir sextíu árum síðar. Þjóðarmorð okkar tíma, jafnvel sjálf helför nasista, blikna í sam- anburði. Ástæðurnar voru margvíslegar, Spánverjar brytjuðu milljónir indj- ána niður, aðra drápu þeir öllu hægar á þrælkunarvinnu eða létu þá drepast úr hungri á meðan þeir rændu af þeim öllum mat. Evr- ópskir smitsjúkdómar voru þó einn algengasti banabiti frumbyggj- anna, en það hefur örugglega hjálpað landnámi hinna evrópsku sjúkdóma að heimamenn skyldu flestir vera aðframkomnir eftir að hafa mátt þola ofríki Evrópubúa í fjölda ára. Las Casas skrifaði raunar mun lengri frásögn síðar, en það er þessi stutta frásögn, sem áður er getið, sem kom nýverið út á íslensku í þýðingu Sigurðar Hjartarsonar sagnfræðings, sem einnig ritar ítar- legan formála og gefur bókina sjálfur út. Áður hefur Sigurður þýtt Leiðarbækur Kólumbusar, en þær eru einmitt eingöngu til í hand- ritum Las Casas.    Las Casas var þó fyrst um sinnrétt eins og hver annar ný- lenduherra, þótt hann væri hófsam- ari en flestir landar hans. Hann var prestlærður og var fyrst hvort tveggja í senn, hermaður og her- prestur, en gerðist svo landeigandi á suðurströnd Kúbu og fékk nokkra indjána í kaupbæti. En þegar Kúba breytist úr ósnortinni paradís í sannkallað helvíti á jörð tekur Las Casas snöggum og varanlegum sinnaskiptum, hann rís upp gegn ofríki Spánverja og ofbeldi gagn- vart frumbyggjunum og eyðir því sem eftir er ævinnar í þá baráttu. Í lok formála síns kallar Sigurður Las Casas öflugasta málsvara mannréttinda í sögunni, enda barð- ist hann lengi og hatrammlega gegn ofurefli og flestum viðteknum hugmyndum síns tíma, sem iðulega snerust um yfirburði hinnar kristnu Evrópu yfir barbörunum í suðri, sem enn áttu nokkuð í land að öðl- ast sess manneskja í augum Evr- ópubúa miðaldanna. Eins og sagan birtist í meðförum Las Casas virð- ast yfirvöld heima á Spáni einfald- lega hafa misst öll tök á villi- mennsku þegna sinna suður í Ameríku, enda erfitt að hafa eftirlit með þegnum konungsríkisins þeg- ar þeir eru í annarri heimsálfu og samskiptatæknin takmarkast við sendibréf og skipaferðir. Þó er erf- itt að ímynda sér annað en kon- ungur hefði getað stöðvað slátr- unina ef hann hefði virkilega beitt sér.    Þó er merkilegt hvernig jafnvelþeir Evrópubúar sem komu til Nýja heimsins með göfugar áætl- anir, innblásnar af boðskap Las Casas, urðu margir fljótlega að álíka villidýrum og landar þeirra sem fyrir voru. Það er auðvelt að vera með sigurvegurunum í liði og ansi erfitt að synda á móti straumn- um – sérstaklega þegar um er að ræða jafn hrikalegan blóðstraum og flæddi yfir nýja heiminn með komu þess gamla. Vissulega spyr maður sig stundum hvort Las Casas hafi aldrei spurt sig um ástæður grimmdar Spánverja, hvaðan var hún upprunnin – var jafnvel ein- hver rót þessarar grimmdar í kristninni sem hann boðaði svo ötullega eða í valdastrúktúr kon- ungdæmisins sem hann var svo trúr? En þá er rétt að muna að ólíkt flestum samtímamönnum sínum sá hann grimmdina – sem vafalaust hefur verið fullkomlega óskiljanleg þegar ekki var hægt að skoða hana í stækkunargleri aldanna, og er hún nógu illskiljanleg ennþá.    Það merkilega er þó að aðrir ný-lenduherrar áttu seinna eftir að nota bókina til þess að berja á Spánverjum. Það tók bókina aldir að öðlast hylli á Spáni en áður en þriðja útgáfan kom út á Spáni voru útgáfur í Hollandi, Englandi og Frakklandi þegar farnar að skipta tugum, enda kom ávallt ný útgáfa á markað þegar ástæða þótti til að kynda undir óvild gegn þeim Spán- verjum – og eins nýttu þessar þjóðir ritið til þess að réttlæta eigin ný- lendustefnu, sem vissulega var ekki jafn blóðug, enda mun færri eftir til að drepa. En um leið og þessi bók er eitt- hvert mesta fordæmingarrit allra tíma er hún rétt eins og aðrar skyldar frásagnir fyrst og fremst frásögn af blindu, óskiljanlegri blindu sem slær heilar þjóðir og heilar heimsálfur, jafnvel svo öld- um skiptir. Hálfu árþúsundi síðar sjáum við geðveikina sem þó hefði átt að vera öllum augljós þegar Nýi heimurinn taldist ennþá „nýr“. Kannski er heimurinn eitthvað að batna eða kannski erum við jafn blind á óréttlæti eigin samtíma og Spánverjar sextándu aldarinnar voru? Svarið fæst á 25. öldinni – ef við verðum ekki öllum gleymd þá. Örstutt frásögn af grimmd Evrópubúa » Vissulega spyr maður sig stundum hvort Las Casas hafi aldrei spurt sig um ástæður grimmdar Spánverja … Reuters Indjánar Brasilískir indjánar halda við hefðum forfeðra sinna er ofsóttir voru af Spánverjum fyrir 500 árum. asgeirhi@mbl.is AF LISTUM Ásgeir H. Ingólfsson Helför Koparstunga eftir flæmska listamanninn Theodor de Bry prýð- ir bókarkápuna. FORVERÐIR í bókasafninu Biblio- teca Ambrosiana í Mílanó hafa greint frá því að mygla hafi fundist í frægasta safni teikninga eftir meistara endurreisnarinnar Leon- ardo da Vinci. Safnið Codex Atlanticus er víð- frægt en þar gefur að líta hug- myndir um allt á milli himins og jarðar, allt frá flugvélum og vopn- um til stærðfræði og grasafræði. Hversu viðamiklar skemmdirnar eru er enn ekki ljóst en tekist hefur að hefta útbreiðslu þeirra, að söng Marco Navoni, talsmanns safnsins. Ljóst er að viðgerð á teikningunum verður mjög kostnaðarsöm og eng- ir sjóðir eru til að standa straum af þeim kostnaði. „Við þurfum að finna stuðnings- aðila til að kosta greiningu til að byggja viðgerðina á og hefjast síð- an handa,“ segir Navoni. Codex-safnið var til sýnis árið 1998 í Ambrosiana en var nýverið sýnt í Zagreb og Róm. Ógnað Teikning eftir da Vinci. Ógn steðjar að teikningum da Vinci

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.