Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.2008, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.2008, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 13 Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is H ann heitir John Speight, og skiljanlegt að fólk verði hissa þegar það heyrir hann ávarp- aðan: „Tony“ eftir millinafn- inu Anthony. Það er bók- staflega ekki hægt að ávarpa hann Mr. Speight að enskum sið, því hann er búinn að búa á Íslandi í vel á fjórða áratug; er rótgróinn Álftnesingur. Samt er hann Breti í húð og hár. En hér hefur hann samið öll sín stærstu verk, þau smæstu líka, sönglög, ein- leiksverk, kammerverk, óratoríu, messu, verð- launaverk, alls konar verk. Hann hefur líka samið sinfónísk verk, og það er Sinfónía nr. 4 sem verður frumflutt á tónleikum Sinfón- íuhljómsveitarinnar á fimmtudagskvöldið. „Það er tilviljun að það er sinfónían sem verð- ur flutt á tónleikunum nú. Í fyrra stóð til að frumflytja Sellókonsertinn minn. Þá veiktist Gunnar Kvaran, en konsert- inn var saminn fyrir hann. Gunnar sendi kons- ertinn til Erlings Blöndals Bengtssonar í Dan- mörku og bað hann að finna einhvern til að spila verkið. Erling sá konsertinn og ákvað að spila hann sjálfur og frumflytja á tónleikunum núna. En þá veiktist hann. Ég tek það fram að það er ekki músíkin sem veldur þessum veikindum. Þá var ákveðið að flytja fjórðu sinfóníuna en ég kláraði hana í fyrra.“ Stríðsverk í fimm þáttum Hvernig verk er sinfónían? „Hún er í fimm köflum. Reyndar eru þeir fjórir, en annar kaflinn er endurtekinn, og svo- lítið öðruvísi fluttur í seinna skiptið. Hún á það sameiginlegt með annarri sinfóníunni minni að vera um stríð. Mér finnst að frá því að stríðið í Írak byrjaði sé óöryggið í heiminum orðið mik- ið. Maður finnur fyrir undirliggjandi ofbeldi. Það er þung undiralda. Þetta finnst mér mjög óþægilegt því ég hef alltaf verið mikill stríðs- andstæðingur. Stjórnmálamenn eru stöðugt að reyna að tala okkur til og sannfæra okkur um að ástandið nú sé miklu betra en það var, en það er það ekki. Ástandið er miklu verra en það var. Og stríðið gegn hryðjuverkum – það er tómt bull að mínu mati. Ég fann fyrir mikilli löngun til að skrifa stærra verk til að tjá mig um þetta. Fyrir vikið er músíkin svolítið ofbeldisfull stundum. En hún er líka á köflum friðsæl, eins og í þriðja þættinum, sem er afskaplega róleg- ur. Undiraldan er þar samt – ógnin; hræðslan. Sinfónían var í smíðum frá 2003 til 2007. Það tók langan tíma að semja hana, en að vísu var ég að semja margt inn á milli.“ Þú nefndir að einn þáttur sinfóníunnar væri endurtekinn. Er það ekki sérstakt? „Annar kaflinn er ofbeldisfullur og ágengur. Það koma samt rólegir sprettir inn á milli. En þegar kaflinn er endurtekinn, er hann allur mjög „aggressívur“ og áreitið mikið. Það var kannski fyrst og fremst formið sem kallaði á að hann væri endurtekinn. Þetta er ekki ósvipað og risastór og afkáralegur menúett og tríó.“ Þú segir að sinfónían sé um stríðið. Er þetta einhvers konar saga? „Nei. Nema ef væri tilfinningalega. Sinfónía á að vera einhvers konar skáldsaga, í yfirfærðri merkingu. Ef ég vildi skrifa skáldsögu myndi ég gera það. Sinfónían er tilfinningalegur skáld- skapur, sem þarf ekki að vera saga eða pró- gramm. Ég held að fólk skynji óöryggið og ónotalegheitin. Sérstaklega þegar við erum að fara til útlanda. Þá erum við stöðugt að hugsa um hvort við séum búin að setja réttu hlutina í plastpoka, finna vegabréfið, þetta er orðið mjög óþægilegt. Kannski að annar kaflinn sé eins og lífið á Íslandi, fyrir utan pólitík.“ Eða kannski í kyrrðinni hér á Álftanesinu? „Já, eða á Álftanesinu. Annars getur nú allt farið í háaloft í pólitíkinni hér líka.“ Óviðjafnanlegt að semja fyrir hljómveit Er það skylda tónskálds að semja sinfóníu? Mér finnst það freistandi að semja stórt hljómsveitarverk. Sinfóníuhljómsveit er ein af stærstu uppgötvunum mannsins. Hún er fyr- irbæri. Að fá áttatíu, hundrað eða jafnvel enn fleiri til að spila saman verk eftir sig, og til- brigðin og möguleikarnir í útfærslu óendanleg, það er auðvitað óviðjafnanlegt. Þegar ég byrjaði í Guildhall-skólanum í London 1964 var umræð- an svona: „ljóðlistin er dauð, málverkið er dautt; það gerir enginn svona núna; skáldsagan er al- veg búin er að vera; sinfóníur oj“. Það var pró- fessor sem sagði við mig að eftir fimmtán til tuttugu ár yrði ekkert nema tölvutónlist. Sem betur fer hafði hann rangt fyrir sér. Sinfón- íuhljómsveit býður upp á óendanlega mögu- leika. Ef maður skoðar sinfóníska formið; Moz- art, Beethoven, Mahler, Penderecki. Þetta form er óendanlega breytilegt. Það er bókstaflega eins og lifandi vera, sem ummyndast til þess að lifa af. Hans Werner Henze samdi fullt af sin- fóníum. Jafnvel avant-gardisti eins Luciano Berio samdi sinfóníur, og Penderecki. Það eina sem sinfóníunni stafar hætta af eru prógramm- nefndir hljómsveitanna – verkefnavalsnefnd- irnar og listrænir stjórnendur sem þora ekki að setja ný verk á efnisskrá hljómsveitanna. Á sjö- unda og áttunda áratugnum fór að bera á mjög sérkennilegri hugmynd. Það var eins og fólk í þessum nefndum þyrfti að gera eitthvað til þess að rétta hlut nýrrar tónlistar. Þá var farið að flytja stutt verk, ekki lengri en tíu mínútur, eins og það væri ekki hægt að bjóða hlustendum upp á meira af svoleiðis „óhljóðum“. Þetta var ekki rétt. Fólki er einfaldlega ekki gefið tækifæri til að hlusta á lengri verk. Ef maður sýnir verk- efnavalsnefnd verk sem er lengra en fjörutíu mínútur, þá er sagt „Ó, ó, ó, þetta á eftir að kosta mikið“. Einn og hálfur tími af Mahler er hins vegar í lagi, því hann er samþykktur. Sin- fónískum verkum og sinfóníuhljómsveitinni stafar mest hætta af þessu. Ég segi fyrir sjálfan mig að ég fer æ sjaldnar á sinfóníutónleika. Ég er búinn að heyra þetta allt ótal sinnum. Hvað er hægt að hlusta oft á fimmtu sinfóníu Beethovens? Hún er flott, en ég er búinn að hlusta hana í fimmtíu ár. Mér finnst að það verði að vera meira af nýjum verkum á efnisskrám sinfóníuhljómsveita, og þá ekki bara tíu mínútna verk, flutt af skyldurækni. Svona finnst mér staða sinfóníunnar í dag. En það er nú samt ótrúlega freistandi og gaman að hafa 40 mínútur til að tjá sig með þessu frábæra hljóð- ræri sem sinfóníuhljómsveit er.“ Finnst þér hljómsveitir haldnar ótta við nýj- ungar – er þetta bara íhaldssemi? „Ja, það er sagt að fólk vilji ekki hlusta á nýja tónlist. Ég veit ekki hver ákvað það. Það er sagt að það mæti engir á slíka tónleika, og þá sé tapið svo stórt. Eiga tónskáld að hafa áhyggjur af því? Hljómsveitir eru bara ekki tilbúnar til að leggja peninga í það að flytja nýja tónlist. Ég skil ekki hvernig hægt er að óttast tónlist. Ef það er eitthvað á tónleikum sem mér líkar ekki eða mér finnst leiðinlegt fæ ég mér einfaldlega bara dagdraum eða fer að hugsa um eitthvað allt annað. Oftast er það nú samt þannig að það er skemmtilegt að heyra eitthvað nýtt.“ Ég vil taka hlustandann með mér Nú hefur verið sagt um verkin þín að þau séu aðgengileg og auðvelt að hlusta á þau. Hugs- arðu um hlustandann meðan þú ert að semja? „Ég sem ekki í dúr og moll en ég byggi efni- viðinn svolítið eins og með legókubbum. Græni kubburinn lítur allt öðruvísi út ef þú ert með blátt í kringum hann en ef þú ert með rautt í kringum hann. Þetta er samt ennþá græni kubburinn þótt hann fái nýja merkingu. Ég reyni mitt besta við að setja verkin mín saman þannig að þau séu skiljanleg. Ég gæti verið að tjá mjög flóknar hugsanir en maður verður samt að reyna að tjá þær á þann hátt að þær séu skiljanlegar. Ég sé ekki neinn tilgang með því að segja eitthvað sem er óskiljanlegt. Ég tjái mig með tónlist, skáld tjáir sig í skrifum. Stór sinfónía er einhvers konar ferðalag sem maður fer í gegnum. Ég vil taka áheyrendur með mér í þetta ferðalag. Mitt verk er að sýna þeim veginn sem við ætlum að fara. Tónlistin er minn tján- ingarmáti. Ég get ekki skrifað bækur og ég get ekki málað myndir, en ég held að ég geti eitt- hvað í tónlist. Þar fæ ég útrás fyrir mína sköp- unarþörf en ég vil hafa fólk með mér í þessu ferðalagi. Þess vegna legg ég hart að mér að gera mig skiljanlegan.“ Hugsarðu um hefðina meðan þú semur? „Nei. En fólk sem týnir sambandi sínu við það sem á undan er gengið er sjálft týnt. Það sem ég tek frá hefðinni er formið. Ekki form eins og sónötuformið heldur form í sjálfu sér. Það þarf að vera form í tónlist. Bygging- arramminn skiptir miklu máli. Mér finnst form- laus tónlist leiðinleg. Formið er mér vegvísir, eitthvað til að grípa í. Fyrsta sinfónían mín er í þremur köflum, og undir áhrifum frá altaristöfl- unni í Bessastaðakirkju eftir Mugg. Hún er þrí- skipt. Sú næsta var í tveimur köflum, með mikl- um andstæðum. Sú þriðja var í einum kafla. Þessi er í fimm köflum, og ég vona að hlust- endur skynji formið og skilji hvað ég er að fara.“ Sinfónían er ferðalag Árvakur/Árni Sæberg John Speight „Mér finnst formlaus tónlist leiðinleg. Formið er mér vegvísir, eitthvað til að grípa í.“ » Sinfóníuhljómsveit býður upp á óendanlega mögu- leika. Ef maður skoðar sinfón- íska formið; Mozart, Beetho- ven, Mahler, Penderecki, það er óendanlega breytilegt, bók- staflega eins og lifandi vera, sem ummyndast til að lifa af. Sinfóníuhljómsveit Íslands frumflytur Sinfóníu nr. 4 eftir John Speight á tónleikunum á fimmtudags- kvöldið. Tónskáldið segir sinfóníuna fjalla um stríð og þann óróleika og óöryggi sem það skapar okkur. Og jafnvel í friðsældinni liggur undiralda ógnarinnar undir yfirborðinu. John Speight segir sinfóníuna t ilfinningalegan skáldskap; ferðalag sem hann vill bjóða áheyrendum með sér í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.