Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.2008, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.2008, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ lesbók Eftir Gísla Sigurðsson gislisigurdsson@simnet.is Það er svo bágt að standa í stað og mönnunum munar annaðvort afturábak ellegar nokkuð á leið. Jónas Hallgrímsson Í Lesbókargrein hinn 12. janúar síðast- liðinn birti heimspekingurinn Stefán Snævarr eitt og annað um eigin skoð- anir og annarra á framförum og raunar var fyrirsögnin Framfarafar- aldur. Að tala um faraldur framfara er eitthvað skrýtið; flestir setja faraldra í sam- band við eitthvað neikvætt, en framfarir eru ótvírætt jákvætt hugtak. Greinarhöfundurinn kveðst vona hið bezta en óttast hið versta. Gagnrýnir hann framfara- dýrkunina harðlega og telur að framfarir hafi orðið mun minni í heiminum á síðustu ártugum en margir haldi. Ég les ævinlega greinar Stefáns, ef ég sé þær því hann er á sinn hátt að tala til allra hugsandi manna. Fyrir eitthvað um þrjátíu ár- um kom hann stundum við á Morgunblaðinu; reiður ungur maður og hafði allt á hornum sér og mér skildist þá að hann hataði íhaldið og Moggann og alla þá útgerð. En Mogginn er þó ekki verra blað en svo að þar kýs hann að birta ádrepur sínar. Alveg get ég heils hugar tekið undir ýmislegt sem Stefán Snævarr segir um svokallaðar framfarir. En annað er vafasamt, ef ekki bein- línis rangt. Hann segir réttilega að moldarkof- arnir sem Íslendingar bjuggu í forðum hafi verið litlu betri íverustaðir en húsarústir. Síðan segir hann: „Samt hafði torfkofavistin (og hin illa fortíð) sína kosti, gagnstætt því sem framfarasjúk- lingarnir halda. Margir fátækir bændur á Fróni voru glettilega fróðir og bókelskir en seint verður borið á stríðalda nútímaunglinga að þeir þjáist af lestrarást og fróðleiksfýsn.“ Voru torfkofarnir svona góðir? Hvernig ber að skilja þetta, kæri Stefán? Ertu að reyna að segja að þessir skelfilegu torfkofar hafi stuðlað að því að íslenzkir bændur voru fróðir og bókelskir? Ber að skilja þetta þannig að skárri húsakynni, með upphitun og rennandi vatni, salernum og tvöföldu gleri í gluggum hafi síðar meir orðið til þess að bændur og ugglaust flest annað fólk á Íslandi, hafi orðið minna bók- elskt og síður fróðleiksfúst? Ég er fæddur og uppalinn í sveit og tel mig sveitamann öðrum þræði. Ekki kannast ég við neina breytingu frá því sem var, eða að íslenzk- ir bændur hafi með tímanum orðið ófróðari og minna bókelskir en var til að mynda um 1940- 1950 þegar ég fór fyrst að gera mér grein fyrir mönnum og málefnum. Síðar, þegar ég var í rúma þrjá ártugi umsjónarmaður Lesbókar Morgunblaðsins, var mér alla tíð aðdáunarefni hvað oft var hægt að birta frábærar greinar eftir bændur sem tjáðu sig um hvaðeina frá höfundi Njálu til samtímans. Mér koma strax í huga menn eins og Jónas í Stardal, Sigurður í Hvítárholti og sveitungi hans, Helgi á Hrafn- kelsstöðum. Einnig Björn Egilsson frá Sveins- stöðum og Benedikt frá Hofteigi. Þeim hefði áreiðanlega komið á óvart að sjá það í Lesbók- inni að betur hefðu þeir búið áfram í torfkof- unum. En hitt sem Stefán nefnir er því miður nærri lagi, að nútímaunglingar þjást hvorki af lestr- arást né fróðleiksfýsn. „heimsaugað hreina“ Allir þrá framfarir að því er virðist, en hitt er svo annað mál að menn getur greint á um hvað horfi til framfara af því sem við tökum okkur fyrir hendur. Hér er í upphafi vitnað í ljóð eftir Jónas Hallgrímsson, sem margir eru nú sam- mála um að sé það stórskáld Íslendinga sem hvað hæst ber. Ég segi nú vegna þess að þegar ég lít aftur á bak til minnar eigin skólagöngu fyrir fimmtíu til sextíu árum finnst mér að bæði almenningur og skáldin í landinu hafi ekki haft sömu tilfinningu fyrir snilld hans og yfirburð- um og nú. Jónas var talinn afar gott skáld, á því er enginn vafi, og við lærðum Gunnarshólma utanbókar í barnaskólunum. Það reyndist afar gott veganesti. Þegar menn tala um „ástkæra, ylhýra“ og meina vitaskuld móðurmálið, þá er ekki einu sinni víst að þeir hinir sömu viti að þessi orð eru úr ljóðlínu í einu fegursta ljóði Jónasar, sem heitir Ásta. Mér finnst annað erindið í því ljóði alger perla, svohljóðandi: Veiztu það, Ásta, að ástar þig elur nú sólin? Veiztu, að heimsaugað hreina og helgasta stjarnan skín þér í andlit og innar albjört í hjarta, vekur þér orð, sem þér verða vel kunn á munni Líklega hafa ekki allir verið jafn sannfærðir um ágæti þessa ljóðs. Í vel þekktri og yfirleitt afbragðsgóðri Lestrarbók Sigurðar Nordals, sem út kom 1947 er þessu ljóði Jónasar sleppt. Í Íslenzku ljóðasafni, sem Almenna bókafélagið gaf út 1975 og Hannes Pétursson og Kristján Karlsson völdu, er það á hinn bóginn tekið með í úrvalið. Ég nefni þetta til að sýna að ef til vill líta hinir færustu menn ekki einstök ljóð sömu augum þegar liðnir eru nokkrir áratugir. Það er eiginlega að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um Jónas að nýliðnu 200 ára afmæl- isári hans. Ég get þó ekki stillt mig um að minnast þess með gleði og aðdáun þegar einn af okkar fjölhæfustu listamönnum, Hallgrímur Helgason, tók svo kirfilega af skarið að hann valdi í sjónvarpsþætti fegurstu ljóðlínu í sam- anlagðri íslenzkri ljóðagerð. Það var ljóðlína úr Gunnarshólma Jónasar: „og skógar glymja, skreyttir reynitrjám.“ Sú ljóðlína er vissulega fögur en samt ekkert fegurri en margar aðrar úr þessu sama kvæði. Í nafni framfaranna langar okkur líklega til að eitthvert nútímaskáld kæmist upp að hlið Jónasar. En því miður eru ekki miklar líkur á því, svo við skulum bara vera ánægð með að hafa eignast annan eins snilling. Íslenzk ljóða- gerð þarf ekki að vera í neinni kreppu eða aft- urför þó að það takizt ekki að skáka Jónasi. Munar ekki mest um innrætið? Um 1940 var svo komið í minni heimasveit, Biskupstungum, að örfáir torfbæir voru þar eftir. En vel man ég ísúran moldarþef þegar inn var komið. Mér fannst hann óhugnanlegur. Ekki kemur mér í hug að kalla það neitt annað en framfarir þegar fólk þarf ekki að hírast lengur í slíkum húsakynnum. Þó tel ég að mestu framfarirnar hafi átt sér stað í innræti fólks, ef satt er allt það sem skráð hefur verið. Ég á þar við þann ótrúlega níðings- skap sem margir sýndu niðursetningum allt fram á 20. öld. Þegar móðir eða faðir dóu frá stórum barnahópi var eina úrræðið að jafna þessari nýju ómegð niður á einstök heimili og venjulega voru það þeir sem eitthvað voru skár settir fjárhagslega sem tóku það að sér. Ótrú- lega margir niðursetningar mættu engu öðru en illsku; þeir voru niðurlægðir eins og hægt var og fengu varla að éta. En jafnframt var þeim ætlað ómælt erfði. Raunar þurftu börn ekki að vera opinberir niðursetningar til að lenda í þessari stöðu. Í nýrri bók sinni um merkiskonuna Bíbí segir Vigdís Grímsdóttir frá því að kornungri var móður Bíbíar komið fyrir á bæ í Eyjafirði til skamms tíma vegna þess að amman hafði látizt. En þarna var barn- ið látið borða með hundunum og að flestu leyti komið fram við það eins og hund. Lengst virðist hafa lifað í glæðum mann- vonzkunnar á unglingaheimilum eins og Breiðavík, en ég vona að minnsta kosti að eitt- hvað hliðstætt eigi sér ekki stað á Íslandi leng- ur og það er þá mikil framför. Ljóðin og leikhúsið Stefáni Snævarr finnst slæmt hversu mjög skák- og ljóðaáhugi hefur minnkað á Íslandi. Hann segir: Frá mínu sjónarhorni er það aft- urför af verri gerðinni. Ef þetta væri staðreynd mætti vissulega taka undir það. En varla telst það merki um minnkandi áhuga á ljóðum að ei- mitt á nýliðinni jólabókavertíð voru gefnar út fleiri ljóðabækur en í áraraðir á undan. Ekki nóg með það, heldur fengu margar ljóðabækur feikilega góða gagnrýni. Þegar bókmennta- spekingar gerðu upp árið í sjónvarpsþætti, virtust þeir álíta að heildin væri í meðallagi, en að ljóðabókaútgáfan skæri sig úr. Þetta væri ár ljóðsins. Sjálfur hef ég lesið margar af nýjustu ljóðabókunum og tek undir að þar er margt eft- ir unga höfunda sem lofar góðu. En mér kom á óvart að það bezta sem ég hef enn fundið eru nokkur ljóð í ljóðabók eftir miðaldra lækni, Ara Jóhannsson. Yrkisefni hans er meðal annars daglegt starf hans þar sem barizt er við að halda lífi í dauðvona fólki. Mitt mat er að hvaða merkisskáld sem er gæti verið fullsæmt af ljóði eins og þessu: Stofa 4: Áður reið hann fífilbleikum hesti til móts við veislur undir haustfjöllum. Nú þolir biðukollurinn ekki að opnaður sé guggi í suðvestanátt. Hann hefur lagt söðul sinn á nef tímans sem reynist ekki hafa söðulnef. Allt rennur því fram með vaxandi hraða. Áin fyrir neðan er hálfþornuð heilaslagæð í djúpu gili. Blóðtappi lokaði spjallrásinni í síðustu viku. Hann skortir því svo margt, til dæmis sum orð. Sum orð eru torskilin leikmönnum svo sem acetylkólín og serótónín. Gegnum röntgengeisla grillir í fyrri æviskeið. Yfir holtin berst ómur af söng í náttstað undir veðruðum fjöllum. Enn er sungið á haustkvöldum en lögin sitja föst í höfðinu, tónarnir eru sem brak í illa stilltu útvarpstæki og allar nótur á sama striki eins og hópur fugla á símalínu, þeir nema engin orð, bara stöðugan sóninn … Um meintan dauða hámenningar Um endalok leikhússins og og menningarinnar yfirleitt segir Stefán: „Ennfremur er talað um endalok leikhússins og dauða sígildrar tónlistar. Menningin drukknar í drullupolli gláps, glamurs og glam- úrs. Er dauði hámenningarinnar enn eitt dæm- ið um framfarir?“ Ég skal játa að ég varð svolítið hissa að lesa þetta og hefði helzt viljað láta segja mér það þrívegis eins og Njáll. Ekki hef ég hugmynd um hvort þetta gæti átt við norsk leikhús, en það er af og frá að það eigi við um leikhúsin hér og frammistöðu þeirra. Ekki þarf annað en að opna dagblað og virða fyrir sér lista yfir leik- húsin í landinu nú í ársbyrjun til að sjá að fram- boðið er ótrúlegt. Á skránni hjá Þjóðleikhús- inu, Íslenzku óperunni, Iðnó, Draumasmiðjunni, Borgarleikhúsinu, Íslenzka dansflokknum, Hafnarfjarðarleikhúsinu, Leik- félagi Akureyrar, Landnámssetrinu í Borg- arnesi, Möguleikhúsinu, Stopp-leikhópnum og Silfurtunglinu eru hvorki meira né minna en 36 verk á fjölunum. Vitanlega er það misgott sem boðið er upp á en eitt er víst; við eigum fjölda af úrvals leikurum og nokkra frábæra leikstjóra. Af þessu verður að draga þá ályktun að þessi niðurstaða prófessorsins um skort á fram- förum sé sérlega óheppileg. Um meintan dauða sígildrar tónlistar er það að segja að ekkert er svo sígilt að það standi til eilífðar. Nýlega birt- ist fróðlegt viðtal í Lesbók um ungt tónlist- arfólk, sem eftir langt framhaldsnám í útlönd- um var að gæla við þá hugmynd að snúa sér að popptónlist, eða öllu heldur einhverskonar sambræðingi, og töldu þau margt benda til þess að það yrði ofan á í músíkheiminum. Um hvað munar mest? Þegar litið er yfir sviðið síðastliðna hálfa öld og reynt að gera sér grein fyrir framförum og hugsanlegri afturför einhvers staðar er dag- ljóst að okkur hefur munað nokkuð á leið, svo enn sé vitnað í Jónas. Hvað af öllu þessu sem við njótum í daglegu lífi mundi mest muna um ef það væri farið og horfið? Ég hef reynt að íhuga svar við þessari spurn- ingu og komizt að þeirri niðurstöðu að mest mundi muna um rafmagnið. Ímyndið ykkur bara hvernig allt lamaðist væri rafmagnið horfð að fullu og öllu. Í annan stað vil ég nefna samgöngur almennt og einkum þó vegakerfið. Ekki þarf að fara ýkja langt aftur í tímann til að sjá fyrir sér þá ömurlegu vegi sem lands- menn urðu að gera sér að góðu, löngu eftir að bílar urðu almenningseign. Miklar og góðar framfarir hafa orðið í heilbrigðiskerfinu og sjúkdómar sem áður voru banvænir reynast nú fremur auðveldir viðfangs. Af því leiðir meðal annars að íslenzkir karlar ná nú einna hæstum aldri í veröldinni. Nú heyri ég að einhverjir segja: Hann ætlar þó ekki að gleyma tölvunum? Rétt er það að vísu að tölvur hafa breytt mörgu í daglegu lífi. En í grundvallaratriðum breyttu þær ekki neinu og við sem munum veröldina tölvulausa getum staðfest að öll þessi kerfi gengu án þeirra. Ekki er ég nærri því eins viss um framfarir í fræðslukerfinu og ýmsu öðru, sérstaklega á grunnskólastiginu, og frammistaða íslenzkra nemenda er yfirleitt heldur dapurleg á al- þjóðavísu. Þar er um að kenna sífellt minnk- andi aga, segja kennarar, svo þar verð ég að segja að okkur miði ekki áfram, heldur aftur- ábak. Enn þá stærra skref aftur á bak og þyngra en tárum taki er mjög vaxandi eitur- lyfjaneyzla og allt það ofbeldi sem henni fylgir. Áfram eða afturábak Ljósmynd/Gísli Sigurðsson Jónas Hallgrimsson 200 ára afmælismynd eftir greinarhöfundinn. STEFÁN Snævarr skrifaði grein í Lesbók fyrir skömmu um meintan framfarafaraldur. Greinarhöfundur telur að niðurstaða Stefáns um skort á framförum sé sérlega óheppileg. Um margt hafi okkur miðað áfram en um sumt afturábak, eins og skáldið sagði. Höfundur er blaðamaður og myndlistarmaður.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.