Morgunblaðið - 30.04.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.04.2008, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Björgvin Jóns-son prentari fæddist á Patreks- firði 26. ágúst 1929. Hann lést á Land- spítala í Fossvogi 20. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Jón Indriðason skósmiður, f. 20.5. 1884, d. 17.2. 1974, og Jónína Guðrún Jónsdóttir, f. 3.10.1885, d. 20.3. 1961. Systkina- hópurinn var stór eða 14 talsins en 12 komust á legg og var Björgvin yngstur af þeim. Öll eru nú látin. Björgvin kvæntist 31. ágúst 1957 Kristínu Guð- mundsdóttur, f. í Reykjavík 26. sept. 1934. Fyrstu búskaparárin bjuggu þau í Reykjavík en fluttust í Kópavog 1963 og voru búsett í Holtagerði 48 þar í bæ þegar hann lést. Börn þeirra voru 6, þau eru: Stúlka andvana fædd 18. júlí 1956; Guðmundur, f. 4. júlí 1958, maki Karen Valdimarsdóttir; Hrafnhildur, f. 5. mars 1960, maki Davíð Friðriksson; Þorgeir, f. 19. mars 1964, maki Klara Guðrún Hafsteins- dóttir; Jón Óttar, f. 19. mars 1964, d. 1 nóvember 1986; og Kolbeinn, f. 11. sept- ember maki Unnur Þóra Valsdóttir Proppé. Barnabörn- in eru 11 og barna- barnabörnin þrjú. Björgvin ólst upp á Patreksfirði en fór til Reykja- víkur og hóf nám í Ísafoldarprent- smiðju 10. ágúst 1945, lauk þar námi og tók sveinspróf í setningu 2. apríl 1950. Vann í Ísafold- arprentsmiðju, Prentsmiðju Þjóð- viljans, Prentsmiðjunni Hólum, Prentsmiðju Alþýðublaðsins og síðast í Prentsmiðjunni Odda, til 1. maí 1993. Útför Björgvins fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Nú hefurðu kvatt þennan heim með miklum söknuði, elsku afi. Margar góðar minningar á ég um þig. Má þar nefna að allar heimsóknirnar til þín og ömmu í Holtagerðið allt frá því ég var lítil stelpa eru mér mjög minni- stæðar. Sérstaklega um stólinn þinn góða sem þú sast alltaf í þegar ég kom í heimsókn og garðinn ykkar sem ég lék mér svo mikið í. Þú varst alltaf að leika við mig og sýna mér eitthvað sniðugt. Alltaf varstu að búa eitthvað til eða bæta einhverja hluti og minnist ég þess með bros á vör. Sérstakur varstu og góður. Alltaf heilsaðirðu og kvaddir með kossi. Fyrir aðeins nokkrum árum fékk ég svo að búa hjá þér og ömmu í rúmt ár. Það var góður tími og áttum við margar stundir saman, meðal annars nokkra daga bara við tvö, ég og þú, þegar amma fór í eina af jólaferðunum sínum út. Ég þakka guði fyrir allan þann tíma sem ég hef átt með þér í gegnum lífið og allar yndislegu minningarnar sem ég mun ávallt eiga og geyma vel í hjarta mínu, afi minn. Ég veit að þú ert á góðum stað og ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera hjá þér síðustu dagana þína, allt til enda. Ég og Nadía munum ávallt hugsa til þín, elsku afi, og minningin um þig mun lifa með okkur. Guð geymi þig, afi minn. Við elskum þig og söknum þín mikið. Ömmu munum við passa vel fyrir þig. Nú kveðjum við þig að sinni með þessum orðum. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Hvíl í friði, elsku afi. Þín Eva María og Nadía Mist. Til afa. Mig langar til þess að minnast afa sem hefur lagt upp í ferðina miklu. Ég var svo heppin að fá að kynnast afa og ömmu svo vel er ég bjó hjá þeim í Kópavoginum á menntaskóla- árunum. Mér er það líka ómetanlegt að hafa fengið að halda stúdentsveisl- una mína heima hjá afa og ömmu. Afi var alveg einstakur maður og það eru svo margar minningar sem renna í gegnum huga mér. Afi var alltaf að bralla eitthvað. Ég man svo eftir því þegar að ég minntist á það við afa að ég ætlaði að fá mér fatastand sem honum hefur náttúrulega fundist algjör óþarfi að fara að eyða pening í þannig að hann bjó hann bara til fyrir mig úr hinu og þessu. Svona var afi, vildi engu henda og allt átti að nýtast. Afi vaknaði oft snemma og suma morgna þegar ég var að fara í skólann var hann búinn að setja bílinn í gang fyrir mig og skafa hann. Svona er endalaust hægt að telja upp, afi var alltaf að dunda eitthvað. Elsku afi minn, ég elska þig svo mikið og mér finnst svo skrítið að þú sért farinn. Ég á eftir að leggja við hlustir þegar ég er hjá ömmu og ég er viss um að ef ég hlusta vel á ég eftir að heyra „já bless“ eins og þú kallaðir alltaf þegar ég var að fara út. Hvíl í friði afi minn. Þín sonardóttir, Kristín. Björgvin Jónsson Elskuleg frænka mín, heiðurskonan Ingibjörg Bjarnadótt- ir, er látin. Þær eru margar minningarnar sem koma upp í hugann á kveðju- stund. Samverustundirnar með Imbu allt frá liðnum æskudögum eru ljúfar og kærar. Mamma og Imba voru tvíburasystur og samband þeirra mjög náið. Samheldni þeirra Skeiðflatarsystkina allra, Þóru, Laugu, Sigrúnar, Helgu, Imbu og Sveina, var líka mikil. Þau vildu allt- af vita hvert af öðru og koma til hjálpar ef þurfti. Imba og Ási fóru Guðný Ingibjörg Bjarnadóttir ✝ Guðný IngibjörgBjarnadóttir fæddist á Skeiðflöt í Sandgerði 21. apríl 1927. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 17. mars síðastliðinn og var jarðsungin frá Safn- aðarheimilinu í Sandgerði 28. mars. margar helgarferðir austur á Selfoss og í Hrunamanna- hreppinn til að heim- sækja þær systur Sig- rúnu og Þóru og þeirra fjölskyldur. Þá var glatt á hjalla eins og alltaf þegar Skeið- flatarsystkinin og þeirra fjölskyldur komu saman. Svo sterk voru tengsl þeirra að þau höfðu símasamband flesta daga ekki síst eftir að árin færðust yfir. Oft fór ég í heim- sókn á Vallargötuna en þangað var alltaf jafn-gaman að koma. Móttök- urnar voru ávallt hlýjar hjá þeim Imbu og Ása. Alltaf var boðið upp á rjúkandi kaffi og ósjaldan pönnukök- urnar góðu að hætti húsfreyjunnar eða annað heimabakað góðgæti. Þau voru einstaklega gestrisin og sam- hent hjón. Þau höfðu bæði mjög gaman af að ferðast um landið okkar og það var skemmtilegt að ferðast með þeim, en þess fékk ég að njóta í æsku, þá buðu þau mér gjarnan með í helgarferðir. Þau voru iðinn við að rækta fallega garðinn sinn og sinntu honum vel meðan heilsan leyfði. Imba naut þess að lesa góðar bæk- ur og var fróð um menn og málefni. Hún var mjög flink saumakona og margar fallegar flíkur saumaði hún á mig, sérstaklega á unglingsárum mínum þegar fatadellan var í há- marki og dressin urðu að slá í gegn en það gerðu sannarlega þau heima- saumuðu frá Imbu. Ég minnist þess líka hvað Imba var alltaf skilningsrík og talaði alltaf við okkur krakkana á jafningjagrunni. Alltaf fór ég glöð og sátt af hennar fundi Það var yndis- legt að fá þau í heimsókn til okkar í sveitina, alltaf færandi gleði og gjaf- ir. Ási lést fyrir 5 mánuðum og Imba saknaði hans sárt. Hún ákvað þrátt fyrir lélega heilsu að búa ein á fal- lega heimilinu þeirra á Vallargötu 7. Þar fann hún sig vera næst honum og minningarnar vera sterkastar. Börnin hennar virtu þessa ákvörðun og önnuðust hana af alúð og kær- leika, eins og þeim var einum lagið. Alltaf var Imba stolt af afkomendum sínum og tengdafólki. Ömmu og langömmubörnunum var hún sér- lega góð. Það er einstaklega ánægjulegt hvað þau öll hafa erft og þroskað með sér marga af þeim mannkostum sem heiðurshjónin Imba og Ási höfðu til að bera.Verði öllum þeim góðu gildum miðlað til komandi kyn- slóða gegnum afkomendurna þá er hvað best heiðruð minning þeirra Ása og Imbu. Nú hafa þau kæru hjón sameinast á ný í veröld þar sem við trúum því að léttleiki og glaðværð umlyki þau eins og alltaf í lífinu. Þegar ég nú minnist þeirra er mér efst í huga þakklæti. Ég er þakklát fyrir allt sem þau voru mér og minni fjöl- skyldu Blessuð sé minning þeirra beggja. Bjarnveig. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HJALTI ÞÓRARINSSON fyrrverandi yfirlæknir og prófessor, Laugarásvegi 36, Reykjavík, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni að kvöldi miðvikudagsins 23. apríl, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju, mánudaginn 5. maí kl. 15.00. Alma Anna Þórarinsson (Thorarensen), Þórarinn Hjaltason, Halla Halldórsdóttir, Oddur Carl Hjaltason, Ingibjörg Jakobsdóttir, Sigríður Hjaltadóttir, Þórir Ragnarsson, Gunnlaug Hjaltadóttir, Hrólfur Hjaltason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Konan mín, móðir okkar og tengdamóðir, ANNA MARGRÉT ÞORKELSDÓTTIR, sem andaðist á Sjúkrahúsinu á Seyðisfirði mánudaginn 21. apríl, verður jarðsungin frá Mjóafjarðarkirkju laugardaginn 3. maí kl. 14.00. Vilhjálmur Hjálmarsson, Hjálmar Vilhjálmsson, Kolbrún Sigurðardóttir, Páll Vilhjálmsson, Kristín Gissurardóttir, Sigfús Vilhjálmsson, Jóhanna Lárusdóttir, Stefán Vilhjálmsson, Helga Frímannsdóttir, Anna Vilhjálmsdóttir, Garðar Eiríksson. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐLAUGS STEFÁNS JAKOBSSONAR, Víðilundi 20, Akureyri. Þorgerður J. Guðlaugsdóttir, Valgerður K. Guðlaugsdóttir, Kristján Davíðsson og afabörn. ✝ Hjartkæri maðurinn minn, faðir okkar og afi, EINAR WERNER ÍPSEN, Marteinslaug 7, andaðist á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 18. apríl. Útför hans fer fram frá Fossvogskapellu í dag, miðvikudaginn 30. apríl kl. 13.00. Íris Þórarinsdóttir, Jón Rúnar, Karl Ágúst, Halldór Bjarki og barnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LUKKA INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, Höfðavegi 5, áður Vallanesi, Höfn í Hornafirði, sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands þriðjudaginn 22. apríl, verður jarðsungin frá Hafnarkirkju laugardaginn 3. maí kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs. Sigurður Eymundsson, Olga Óla Bjarnadóttir, Anna Margrét Eymundsdóttir, Guðjón Davíðsson, Agnes Eymundsdóttir, Grétar Geir Guðmundsson, Eygló Eymundsdóttir, Jakob Ólason, Albert Eymundsson, Ásta Ásgeirsdóttir, Ragnar Hilmar Eymundsson, Rannveig Sverrisdóttir, Brynjar Eymundsson, Guðbjörg Elsa Guðmundsdóttir, Benedikt Þór Eymundsson, Halldóra Eymundsdóttir, Óðinn Eymundsson, Elísabet Jóhannesdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORKELL PÁLL PÁLSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. maí kl. 13.00. Þórhildur Lilja Þorkelsdóttir, Jón Gunnar Þorkelsson, Sigrún Haraldsdóttir, Herdís Þorkelsdóttir, Einar Einarsson, Ágústa Þorkelsdóttir, Ólafur H. Óskarsson, Páll Vikar Þorkelsson, Lilja Þorkelsdóttir, Garpur Dagsson, afabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.