Morgunblaðið - 30.04.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 30.04.2008, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Lára J. Sigurð-ardóttir fæddist á Skammbeins- stöðum í Holtum 16. júní 1910. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 24. apríl síðastliðinn. For- eldrar hennar voru þau Guðríður Þor- steinsdóttir frá Holtsmúla f. 1877, d. 1947, og Sigurður Jakobsson frá Neðra-Seli f. 1877, d. 1911. Systkini Láru voru: Margrét, Ágústa, Dag- mar, Elísabet, Elínborg og Sig- urður og eru þau öll látin. Eftirlif- andi eru hálfbróðir hennar sammæðra, Guðmundur Árnason, og Benedikt Björnsson uppeld- isbróðir. 1947, börn þeirra eru a) Lára f. 1972, börn hennar eru Oliver og Yasmin f. 2001 b) Þórdís f. 1976, maki Jónas B. Hallsson f. 1975, barn þeirra er Gabríel f. 2005. Son- ur Jónasar frá fyrra sambandi er Axel Þór. c) Unnur f. 1986, í sam- búð með Sverri Gunnarssyni f. 1981. 4) Hólmfríður Kristín f. 1952, fyrrverandi maki Gunnar M. Sand- holt, börn þeirra eru a) Anna Sig- ríður f. 1976, maki Hjalti Guð- mundsson f. 1974, börn þeirra eru: Lena Björk f. 1996, Aníta f. 2004 og Kamilla f. 2006. b) Karl Magnús f. 1981. Seinni maki Hólmfríðar er Friðrik Sigurgeirsson f. 1949 og á hann þrjú börn frá fyrra hjóna- bandi. Lára ólst upp á Skammbeins- stöðum, en flutti til Reykjavíkur um tvítugt og starfaði þar við ýmis störf þangað til hún giftist og helg- aði líf sitt heimili og fjölskyldu. Útför Láru verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 11. Lára giftist 15. október 1938 Karli Vilhjálmssyni verka- manni frá Vogsósum f. 19.9. 1910. For- eldrar hans voru þau Hólmfríður S. Snorradóttir f. 1873, d. 1944 og Vilhjálmur K. Ásmundsson f. 1873, d. 1944. Börn Láru og Karls eru: 1) Sig- urður f. 1939 í sam- búð með Unni Lauf- eyju Jónsdóttur f. 1938. 2) Ásmundur f. 1943, maki Guðbjörg Alfreðsdóttir f. 1952, sonur þeirra er Axel f. 1981, unn- usta hans er Brynja M. Dan Gunn- arsdóttir f. 1985 og er þeirra sonur Máni Snær f. 2008. 3) Guðríður f. 1948, maki Guðni R. Eyjólfsson f. Elskuleg móðir mín Lára J. Sig- urðardóttir lést 24. apríl á sumardag- inn fyrsta. Hún var fædd 16. júní 1910 á Skammbeinsstöðum í Holtum í vesturbænum og þar ólst hún upp í stórum systkinahópi. Hún var árs- gömul þegar hún missti föður sinn og amma gekk þá með sjöunda barnið. Þetta voru erfiðir tímar og var hún sett í fóstur til föðurömmu sinnar í Neðra-Seli rúmlega ársgömul. Hún talaði mikið um það síðustu árin sem hún lifði að hennar fyrsta minning væri þegar mamma hennar sótti hana og amma hennar og hún grétu mikið yfir að missa hvor aðra. Þegar svo var komið var ekki algengt í þá daga að börnin fengju að alast öll upp með einstæðri móður. Seinna gerðist Árni Guðmundsson ráðsmaður hjá þeim. Þau eignuðust saman einn son. Einnig ólst upp hjá þeim Benedikt Björnsson og var amma þá komin með níu börn. Allir þurftu að taka til hendinni en hún minntist æskuár- anna með hlýhug. Hún sagði okkur oft söguna þegar þau systkin fóru upp á Heklu. Lagt var af stað upp um nóttina til að vera komin upp áður en kæmi ský á fjallið. Þetta var mikið ævintýri. Um tvítugt fluttist hún til Reykja- víkur. Hún var þénandi eins og kallað var í gamla daga og vann við að breiða skreið og í Hampiðjunni. Hún giftist föður mínum árið 1938. Líf þeirra einkenndist fyrst af mikilli vinnu við að koma sér upp heimili. Þau hófu búskap fyrst á Reynimel og voru seinna hjá ömmu á Seljavegin- um. Síðan byggðu þau í samvinnu við annan Kirkjuteig 31 og þar var okkar heimili og þar ólumst við systkinin upp. Eftir að mamma átti okkur systkinin vann hún aldrei úti, hún helgaði líf sitt og krafta fjölskyld- unni, vafði okkur ást og umhyggju og var ávallt til staðar þegar við þurft- um á henni að halda. Hún var vinnu- söm kona sem drýgði tekjur heimilis- ins m.a. með því að prjóna lopapeysur. Einnig áttu þau lítið sumarhús við Hlíðarvatn í Selvogi en faðir okkar var þaðan. Þar áttum við góða tíma saman. Þau fóru fyrst til útlanda 1973 og eftir það fóru þau næstum því á hverju ári til útlanda. Á síðustu ár- unum fóru þau þó mest til Spánar þar sem þau nutu sín í sólinni og hitan- um. Árið 1985 fluttu þau síðan í Ból- staðarhlíð. Þar stunduðu þau dans, spiluðu og fóru í sund. Pabbi var þá hættur að vinna, en hann lést í nóv- ember 1990. Í febrúar 2004, þá 94 ára gömul, fór hún á hjúkrunarheimilið Skóg- arbæ, þar sem hún naut umhyggju starfsfólksins. En árið 2005 þurfti að taka af annan fótinn hennar og upp úr því dansaði hún ekki meira. En hún gafst ekki upp. Hún var ótrúlega dugleg að nota hjólastólinn til að koma sér áfram og sagði: „Maður þarf nú aðeins að hreyfa sig.“ Nú er komið að leiðarlokum, langri og hamingjusamri ævi er lokið. Hún var orðin óskaplega þreytt og þráði að komast til pabba. Það er alltaf erf- itt að kveðja en það eru forréttindi að hafa fengið að hafa hana svo lengi hjá okkur. Elsku mamma mín, hafðu þökk fyrir allt sem þú gafst mér og mínum og ég segi að lokum eins og þú sagðir alltaf þegar þú kvaddir: Ég bið að heilsa. Blessuð sé þín minning. Þín dóttir, Hólmfríður. Elskuleg tengdamóðir mín er nú látin eftir mjög langa ævi en hún hefði orðið 98 ára í júní nk. Það er ómetanlegt fyrir okkur og afkomend- ur okkar að hafa haft hana svo lengi hjá okkur og það er alltaf eins og maður hafi misst af einhverju þegar svo öldruð mannekja yfirgefur þenn- an heim, með alla þá visku, sem hverfur. Lára var fríð kona og hafði góða nærveru. Hún og Kalli, eiginmaður hannar, sem lést 1990, voru mjög samrýnd hjón en hún missti hann fyrir næstum 18 árum. Þau voru myndarhjón og eignuðust fjögur börn sem öll eru á lífi. Ég kynntist henni og þeim hjónum fyrst þegar við Ási fórum að vera saman eða 1971. Á þessum tíma bjuggu foreldrar mínir erlendis og ég var ennþá í menntó og seinna í Háskólanum. Og hún hugs- aði vel um mig. Það voru ófá skiptin sem ég tók strætó í hádeginu til að borða heitan mat og oft ein hjá henni. En reglan var að á þessum tíma var heitur matur í hádeginu og það brást ekki á þessu heimili og þótti henni alltaf jafnsjálfsagt að ég kæmi. Seinna þegar við Ási bjuggum í Danmörku komu þau að heimsækja og það var mjög ánægjulegt. Við ferðuðumst um Þýzkaland og Dan- mörku og voru þau þakklátir sam- ferðamenn. En þau hjón fóru fyrst að ferðast erlendis á efri árum. Árið 1985 seldu þau eign sína á Kirkjuteignum sem þau höfðu sjálf reist af miklum skörungskap. Þá leið rúmlega hálft ár þangað til þau fluttu í Bólstaðarhlíðina. Á þessum tíma bjuggu þau hjá okkur Ása og var það mjög ánægjulegur tími ekki síst fyrir Axel son okkar sem þá var 4 ára. Lára hefur um alllangt skeið þráð að fá hvíldina en ýmis lasleiki hrjáði hana síðustu 3-4 árin. Hún sagði oft að gott væri að fá hvíldina en það þýddi ekkert að hugsa um það, mað- ur yrði bara að vera rólegur. Þannig var hún hógvær, æðrulaus og alltaf glöð. Hún var í Skógarbæ síðustu 4 árin og fór vel um hana þar. Starfs- fólkið þar á þakkir skilið fyrir að- hlynningu hennar. Dæturnar hugs- uðu líka sérstaklega vel um hana og þakka ég þeim það. Ég kveð tengda- móður mína með þakklæti í huga og veit að henni líður vel núna. Guð blessi þig. Guðbjörg. Elsku amma mín. Loksins ertu komin til afa. Hann hefur áreiðanlega verið mjög glaður að fá þig, enda búinn að bíða eftir þér í sautján ár! Elsku amma, þú komin hátt á tí- ræðisaldurinn eins og þú talaðir svo oft um. Það á örugglega engin kyn- slóð eftir að lifa jafnmiklar breyting- ar og þín kynslóð hefur gert. Enda skildirðu ekkert í öllum þessum sím- um og fjarstýringum sem lágu á borðum allra heimila. Þegar ég hugsa til baka eru þær stundir sem við áttum saman í Sel- voginum í „slotinu“ okkar minnis- stæðastar. Þótti okkur báðum svo gaman að fylgjast með kríunum, skoða hornsílin sem ég hafði veitt og fá okkur gott nesti. Ég held að þér hafi líka fundist gott að vera í Selvog- inum þar sem þú fannst svo sterkt fyrir nærveru afa, þetta var hans uppáhaldsstaður. Í Bólstaðarhlíðinni varstu manna duglegust að fara í leikfimi, taka þátt í spilamennskunni og dansa sem þér fannst svo skemmtilegt. Sérstaklega þótti þér gaman að mæta í dansinn þegar að þú fékkst að dansa við hann Sigvalda sem sagði þig alltaf svo fína. Fljótlega eftir að þú fluttir á Skóg- arbæ þurfti að fjarlægja annan fót- inn. Þá var mikið tekið frá þér. Þá gastu ekki lengur dansað um og hrakaði þér þá ansi mikið. Alltaf tókstu þó brosandi á móti öllum sem komu til þín svo fín og sælleg. Bauðst öllum sælgæti úr nammiskúffunni og þakkaðir svo fallega fyrir heimsókn- ina. Þig var farið að langa til að komast til afa og þar ertu nú. Kveð ég þig því með frið í hjarta og bros á vör. Þín Unnur. Móðursystir mín Lára Sigurðar- dóttir fæddist á Skammbeinsstöðum í Holtahreppi og var sjötta dóttir hjónanna Guðríðar Þorsteinsdóttur og Sigurðar Jakobssonar sem þar bjuggu. Þegar Lára var ársgömul missti hún föður sinn af slysförum. Þá var ófæddur eini albróðirinn; seinna eignaðist Guðríður son með Árna Guðmundssyni sem var ráðs- maður hjá henni. Lifir hann systkini sín öll ásamt uppeldisbróður. Tvíbýli var á Skammbeinsstöðum og mörg börn á báðum bæjum. Ólust þau upp við leik og störf. Bjart var yfir bernskuminningum þeirra systkina og ættartengslin sterk. Lára eignaðist frábæran eigin- mann, Karl Vilhjálmsson frá Vogsós- um í Selvogi, þau bjuggu lengst af á Kirkjuteignum og ólu þar upp börnin sín fjögur, sem annast hafa móður sína af alúð. Þegar ég var barn að aldri minnist ég þess er Lára og Kalli komu í heim- sókn, mér finnst þá alltaf hafa verið sól. Þau voru einstaklega samlynd hjón. Ég heimsótti Láru síðast í fyrrasumar, hún var létt og kát og góð heim að sækja þó öldruð væri og farin að kröftum. Við systkinin frá Árbakka og fjöl- skyldur kveðjum hana með söknuði og vottum börnum hennar og fjöl- skyldum þeirra samúð okkar. Hvíl þú í friði. Guðríður Bjarnadóttir. Sumardaginn fyrsta, þegar vor- boðinn ljúfi þýtur yfir okkar fagra land Ísland og smáfuglarnir syngja og byggja sér hreiður á Skamm- beinsstöðum í Holtum, kvaddi þenn- an heim Lára J. Sigurðardóttir. Ég átti því láni að fagna að kynn- ast henni síðustu 17 árin af hennar löngu ævi. Minningarnar hrannast upp og af mörgu er að taka, en fátt eitt verður talið upp hér. Mér verður hugsað til þess þegar við keyrðum Hvalfjarðargöngin á öðrum degi sem þau voru opin. Hún gat varla trúað því að hægt væri að keyra undir sjóinn. Þá sagði hún: Ég held að það geti bara ekki orðið örari breytingar en ég er búin að upplifa á minni löngu ævi. Henni þótti mjög gaman að dansa og ófá sporin átti hún á dansgólfinu með Sigvalda danskennara, hinar kellurnar á öldrunarheimilinu öfund- uðu hana oft hvað hún var vinsæl hjá Sigvalda. Sigvaldi kom inn og sagði: Hvar er Lára? Þá svaraði hún að bragði: ég er hér og tilbúin í dansinn. Ég get ímyndað mér að oft hafi verið glatt á hjalla á Skammbeins- stöðum þegar systurnar sex voru all- ar samankomnar þar. Mannkærleik- ur, jákvæði og létt lund voru Láru aðalsmerki og höfðu mannbætandi áhrif á alla sem henni kynntust. Starfsfólkið í Austurbæ í Skógarhlíð naut líka hlýju hennar og kærleika. Ég færi því góða fólki þakklæti fyrir einstaklega góða umönnun sem henni var sýnd í Skógarbæ. Við töluðum oft um dauðann sem er jú partur af lífinu – hann er ekki það versta, það er illskan í mannfólk- inu sem er verri, sagði hún. Það var alltaf stutt í glettnina. Einu sinni sagði hún: Þið megið dansa þegar ég er farin. Minning um stórbrotna alþýðu- konu Láru J. Sigurðardóttur lifir í hjarta mér. Ég er guði þakklát fyrir að hafa kynnst henni. Að lokum til- einka ég Láru þetta ljóð: Hjá vöggu minni mamma söng í myrkum nætur skugga. Þín kvæðin voru ljúf og löng og lögnust mig að hugga. Á hvítum svæflum svaf ég rótt, og sveif í draumalöndin. Þá signdi mig svo milt og hljótt Þín milda kærleikshöndin. Ó elsku góða mamma mín. þín mynd í hug mér ljómar. Er ljúfa vögguvísan þín, svo viðkvæmt til mín hljómar. (Höf. ókunnur.) Ég votta börnum hennar, tengda- börnum og öllum afkomendum mína dýpstu samúð. Unnur Laufey. Lára J. Sigurðardóttir Elsku Villi. Mig langar að minn- ast þín með örfáum orðum. Við að hugsa til þín, elsku Villi, minnist ég þín sem prúðmennis og kurteisi var ávallt í þínu fari. Á meðan ég skrifa þessar fátæklegu lín- ur skil ég ekki alveg að þú sért farinn, við söknum þín. Og eins og þú vildir alltaf hafa það þá var ávallt heiðar- leikinn í fyrirrúmi. Ég þakka Guði fyrir að fá að kynnast þér. Hittumst í Valhöll eins og við göntuðumst oft ✝ Vilhjálmur Rún-ar Vilhjálmsson fæddist á Egils- stöðum 31. desem- ber 1966. Hann lést 22. mars síðastlið- inn og var jarðsung- inn frá Egilsstaða- kirkju 31. mars. með. Megi allir englar vaka yfir þér. Ég votta fjölskyldu þinni mína dýpstu sam- úð. Þín vinkona Soffía. Okkur langar að minnast bekkjarbróð- ur okkar Vilhjálms Rúnars Vilhjálmssonar með örfáum orðum, en hann lést 22. mars sl. Villi Rúnar var bor- inn og barnfæddur á Egilsstöðum og hluti af þeim barna- hópi sem óx þar úr grasi á sjöunda og áttunda áratugnum. Í þá daga voru Egilsstaðir þorp og hæð. Nýjahverfið og túnið voru í uppbyggingu. Krakka- skarinn skiptist í flokka eftir búsetu og stundum voru erjur milli Þorpara og Hæðara. Fyrstu minningar okkar um Villa Rúnar eru einmitt tengdar slíku stríði þar sem barist var með heimatilbúnum trésverðum og skjöld- um. Villi Rúnar gekk glaðbeittur fram í sínum flokki til orrustu enda íþrótta- maður mikill. Deilurnar ristu ekki djúpt og gert var matarhlé þar sem menn bjuggu um sárin, nærðu sig og mættu síðan aftur til leiks. Í minning- unni snerist lífið um að eltast um hverf- in í hópum, vera í leikjum á vorin og gera at í þorpsbúum í haustmyrkrinu. En við vorum líka bekkjarsystkini í skólanum í 10 ár. Á þeim tíma kom glögglega í ljós hversu góður íþrótta- maður Villi Rúnar var. Hann var leik- inn með boltann, góður hlaupari og náði góðum árangri í íþróttum sem hann stundaði. Hann var mikill Man- chester United-aðdáandi og í farar- broddi þess hóps innan bekkjarins. Daglega var rætt um frammistöðu leikmanna Liverpool og Manchester United í skólanum og hart tekist á. Villi Rúnar dró hvergi af sér í þessum rökræðum og var duglegur að færa í stílinn og oft var skemmtun að. Villi Rúnar er næstyngstur í stórum bræðrahópi og var í meiri snertingu við unglingamenningu en flest okkar hinna. Þegar líða tók á unglingsárin lagði hann sig fram um að vera snyrtilega til fara og smart klæddur og skar sig nokkuð úr hópi bekkjarbræðra sinna að þessu leyti. Fæstir þeirra spáðu nokkuð í þessa hluti, kvenpeningnum í bekknum til nokkurrar armæðu. Villi Rúnar var myndarlegur ungur maður, fljótur að komast á fast og með þeim fyrstu í bekknum að stofna fjölskyldu og eignast barn. Hann eignaðist tvo drengi á lífsleiðinni. Eftir grunnskólann skildi leiðir og hópurinn tvístraðist í ólíkar áttir. Þó svo að leiðir hafi skilið þá hefur bekk- urinn okkar haldið vel saman, hist reglulega og við fylgst hvert með öðru í gegnum fjölskyldur og vini. Lífshlaup Villa Rúnars var stundum þyrnum stráð en nýlega flutti hann aftur hing- að austur til að vera meira samvistum við syni og fjölskyldu. Sá tími reyndist þó skemmri en nokkurn óraði fyrir. Við bekkjarfélagar Villa Rúnars úr Egilsstaðaskóla vottum drengjunum hans, Dúnu og fjölskyldunni allri okk- ar dýpstu samúð á þessum sorgartím- um. Fyrir hönd bekkjarfélaga úr Egils- staðaskóla, Anna María og Ruth. Vilhjálmur Rúnar Vilhjálmsson Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.