Morgunblaðið - 12.07.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.07.2008, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is UM 70% borgarbúa vilja helst búa í sérbýli en þegar tekið er tillit til efnahags telja 29% að þeir flytji næst í einbýlishús. Flestir vilja búa í Vesturbænum, miðbænum og Háaleiti, en Ár- bær/Grafarholt, Kjalarnes og Hlíðar hafa auk- ið mest vinsældir sínar frá því 2003. Þetta kemur fram í könnun Bjarna Reyn- arssonar, skipu- lagsfræðings hjá Land-ráði sf., á húsnæðis- og búsetuóskum Reyk- víkinga 2007, sem hann gerði fyrir skipulags- og byggingasvið Reykja- víkurborgar. 79% svarenda búa í eigin hús- næði og 9% hjá foreldrum eða ætt- ingjum. 71% býr í 3-5 herbergja íbúðum. Á um 60% heimila búa tveir eða færri. Fram kemur að flestir sníði sér stakk eftir vexti í húsnæðismálum, en Bjarni vekur athygli á að svarendur vilji hafa sem mest sér. „Fólk vill hafa góð- an garð eða stórar svalir, hafa góða aðstöðu til að grilla og vill ekki heyra í nágrönnunum. Eigi fólk næga peninga vill það búa í einbýlishúsi en væntingarnar lækka mjög þegar spurt er miðað við efnahag.“ Gróið og nýtt Almennt má segja að fólk búi þar sem það vilji búa. Bjarni telur að vinsældir Vesturbæjarins og miðbæjarins megi helst rekja til þess að fólk vilji vera í grónu um- hverfi í nánd við miðbæinn, gömlu höfnina og háskólastofnanir. Fólk leggi mesta áherslu á fjöl- skylduvænt og friðsælt umhverfi en útsýni, skjól og útivistarmögu- leikar sé mikilvægustu umhverf- isþættirnir. Vatnsmýrin og Úlfarsárdalur eru vinsælustu nýbyggingarsvæðin, en aðeins 4% nefna Örfirisey. Bjarni bendir á að Úlfarsárdalur hafi vax- ið mikið að vinsældum frá könn- uninni 2003. Gera megi því skóna að fyrir fimm árum hafi fólk ekki almennilega gert sér grein fyrir því hvar hann væri en nú sé sagan önnur. Einnig veki athygli að mið- bærinn hafi ekki vaxið mjög mikið í vinsældum miðað við aukið fram- boð nýs húsnæðis þar. Lág fjölbýlishús eftirsótt „Menn eru mjög hlynntir lágum fjölbýlishúsum, tveggja til þriggja hæða,“ segir Bjarni og vísar til þess að um 65%, sem ætluðu að flytja næst í fjölbýlishús, vildu að það væri tvær til þrjár hæðir. „Svarendur eru ekki mjög hrifnir af háhýsum,“ heldur hann áfram, en um 47% voru á móti fjölgun há- hýsa í borginni, um 66% vildu ekki háhýsi í sínu hverfi og 55% vildu ekki búa í háhýsi. Húsnæðisóskir miðaldra og eldra fólks eru mun fjölbreyttari en þeirra sem yngri eru og vill nokk- ur fjöldi þeirra búa í háhýsum. Þegar spurt var um hvernig hús- næði vantaði helst í borginni svör- uðu flestir eða um fjórðungur lág fjölbýlishús, tæpur fimmtungur nefndi hæðir og því næst komu einbýlishús og raðhús. Vinsældir raðhúsa virðast hafa minnkað nokkuð frá 2003. Í könnuninni kemur fram að svarendur töldu að háhýsi væri að minnsta kosti sjö til átta hæðir. Bjarni bendir á að fram hafi komið í rannsóknum að þegar komið sé upp fyrir fimm hæðir missi fólk jarðtengsl en fái aftur á móti aukið útsýni. Tæpur helmingur sagðist vera hlynntur þéttingu byggðar og rúm- ur þriðjungur var fylgjandi byggð á landfyllingum við ströndina. Æskilegustu þéttingarsvæðin voru Vatnsmýri, Ártúnshöfði og Elliða- árvogur/Geirsnef. „Það sem kom mér einna mest á óvart er að svarendur eru hlynnt- ari en áður hreinlegri atvinnu- starfsemi í íbúðahverfum,“ segir Bjarni. Nýtist borginni Um netkönnun í október 2007 var að ræða. Leitað var til um 1.600 borgarbúa og bárust svör frá um 700 þeirra á aldrinum 18 til 75 ára. Þátttakendur svöruðu 34 spurningum og mátu 29 myndir af húsum og umhverfi út frá búsetu- skilyrðum. Könnunin og talnaleg flokkun var unnin af Miðlun ehf. en Land-ráð sf. hafði umsjón með könnuninni og sá um úrvinnslu. Bjarni telur að mikilvægt sé að fylgja þessari könnun eftir, t.d. með rýnihópavinnu, til að fá betri þekkingu á hvers vegna sum hverfi eru vinsælli en önnur og hvernig húsagerðir og umhverfi er eft- irsóttast af borgarbúum. „Þá væri skynsamlegt að endurtaka könn- unina á fárra ára millibili því sam- félag og húsnæðismarkaður breyt- ast hratt. Niðurstöður þessar rannsóknarinnar munu nýtast skipulagsyfirvöldum Reykjavíkur við skipulag nýrra hverfa í borg- inni í framtíðinni,“ segir Bjarni. Væntingar og veruleiki  Um 70% vilja búa í sérbýli en að teknu tilliti til efnahags telja 29% að þeir flytji næst í einbýlishús  Vesturbærinn og miðbærinn eru enn vinsælustu hverfi borgarinnar en önnur hverfi sækja á Bjarni Reynarsson Morgunblaðið/RAX Nýbyggingarsvæði 22% svarenda í könnuninni nefndu Úlfarsárdal þegar fólk var spurt á hvaða nýbyggingarsvæði viðkomandi vildi búa. Í HNOTSKURN » Hönnun íbúðar er mik-ilvægasti þátturinn við val á húsnæði, samkvæmt könnuninni. Síðan sér- inngangur í íbúð, gæði innréttinga og næg bíla- stæði. » 16% svarenda vilja mat-vöruverslun og aðra verslun í göngufæri fá heim- ilinu. Um 13% nefna grunn- og leikskóla. Aðrir mikil- vægir þættir eru heilsu- gæsla, útivistarsvæði, íþróttamiðstöð, sundlaug og sjoppa. » Að meðaltali vildu svar-endur hafa aðgang að þremur bílastæðum við heimilið. 27% vildu fjögur eða fleiri stæði. » Um 34% svarenda teljamjög líklegt að þeir flytji innan fimm ára.                                                         !" #$!# # !# #$!% #"!& #%!& !' ##!  $!( ! !" "! #!" ! $!% &! !" !$ Eftir Andra Karl andri@mbl.is HÆSTIRÉTTUR hefur enn á ný framlengt farbann yfir fyrrverandi framkvæmdastjóra Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna, en hann er grunaður um stórfelld efnahagsbrot. Málið er talið mjög alvarlegt en framkvæmdastjórinn er talin hafa gefið út tilhæfulausa ábyrgðar- yfirlýsingu upp á nærri 15 milljarða króna (200 milljónir bandaríkjadala). Hann sætir farbanni til 9. september nk. Maðurinn sem er á fimmtugsaldri var upp- haflega úrskurðaður í gæsluvarðhald 13. apríl á síðasta ári og hefur það verið framlengt alls átta sinnum. Mál hans er afar umfangsmikið og teygir anga sína til sex landa. Í dómi Hér- aðsdóms Reykjavíkur frá 9. júlí sl. segir að málið hafi þokast nokkuð áfram frá uppkvaðn- ingu síðasta dóms Hæstaréttar, fyrir tveimur mánuðum. Meðal annars hafi skýrslur verið teknar af nokkrum einstaklingum í Bandaríkj- unum og beðið er eftir endurritum af þeim. Þá er von á frekari gögnum vegna málsins. Ljóst þykir að meðferð beiðna sem sendar voru til Bandaríkjanna og Bretlands muni taka tölu- verðan tíma til viðbótar og því sér ekki enn fyr- ir endann á rannsókn málsins. Á meðan á rannsókninni stendur er talin hætta á að framkvæmdastjórinn fyrrverandi reyni að flýja hugsanlega saksókn. Bendir rík- islögreglustjóri í því sambandi á að maðurinn hafi verið búsettur í Bandaríkjunum þar sem hann á ættingja. Reksturinn seldur í október Í greinargerð ríkislögreglustjóra segir að málið sé mjög alvarlegt og ábyrgðir geti fallið á Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna, í það minnsta vegna 200 milljóna dollara – rekstur VSP var raunar seldur Byr sparisjóði í október sl.. Fjöldi einstaklinga virðist tengdur brotun- um og eru þeir flestir búsettir erlendis. Í sam- tali við Morgunblaðið í maí sl. sagði Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahags- brota, að það gæti haft áhrif á málsmeðferð hversu mörg erlend vitni koma að því. Farbannið framlengt á ný Í HNOTSKURN »Forráðamenn Verðbréfaþjónustusparisjóðanna tilkynntu saksóknara efnahagsbrota um meint brot fram- kvæmdastjórans 11. apríl á síðasta ári. »Framkvæmdastjóranum var um leiðsagt upp störfum og tveimur dögum síðar var hann úrskurðaður í farbann. »Frá því að mál framkvæmdastjóranskom upp hefur margt gerst hjá Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna. »Reksturinn var seldur út úr VSP íoktóber sl., til Byrs sparisjóðs. Lög- aðilinn VSP er hins vegar í þrotameð- ferð. »Komi til fjártaps vegna meintrabrota framkvæmdastjórans fellur það á lögaðilann, þrotabúið. RÚSSNESKUR bloggari, Savva Terentiev, var nýlega dæmdur til fangelsisvistar í eitt ár í heimlandi sínu. Hann vann sér til sakar að birta athugasemdir á vefsíðu sinni um lög- gæsluvaldið í heimabæ sínum, Syktyvkar. Athygli vakti að verjandi hans vísaði til fordæmis sem Mannréttindadómstóll Evrópu setti í máli Þorgeirs Þorgeirsonar gegn Ís- landi. Hæstiréttur dæmdi Þorgeir til sektar fyrir harkaleg ummæli sín um íslenska lög- reglumenn. Mannréttindadómstóllinn komst á hinn bóginn að þeirri niðurstöðu að ummæl- in hefðu ekki verið níðandi úr hófi fram. Ekki var tekið tillit til þessara upplýsinga og Terentiev dæmdur til fangelsisvistar fyrir að hvetja til haturs á lögreglunni. Þetta er í fyrsta skipti sem rússneskur bloggari þarf að dúsa bak við lás og slá fyrir ummæli sín. Hann sagði á bloggi sínu að lögreglumenn bæjarins væru „hópur fábjána“ og „verst menntuðu fulltrúar dýraríksins“. Hann stakk einnig upp á að dag hvern yrðu haldnar „löggubrennur“ á aðaltorgi Syktyvkar .haa@mbl.is Vísað til máls Þor- geirs gegn Íslandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.