Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1992, Síða 17

Skinfaxi - 01.02.1992, Síða 17
LYF OG / Þ R Ó T T I R Hetjur og hormónalyf Pétur Pétursson læknir skrifar Á undanförnum árum hefur dægurmálaumræðan á íslandi öðru hverju snúist um lyfjamis- notkun I íþróttum. Er það yfir- leitt í kjölfar frétta af íslenskum iþróttamönnum, sem fallið hafa á lyfjaprófum. Því er samt sem áður þannig varið, að eftir tiltölulega skamman tíma logn- ast umræðan út af, svo halda mætti, að hér hafí verið um einhver undantekning- artilfelli að ræða. Því miður gefa upp- lýsingar, sem landlæknisembættið hefur undir höndum, ástæðu til þess að ætla, að lyfjamisnotkun íþrótta- og vaxtar- ræktarfólks sé töluvert almenn á íslandi, °g er það í fullu samræmi við reynslu annarra þjóða af þessum vanda. Jafn- framt hefur á síðustu árum komið í ljós, að mýmörg innlend og erlend dæmi eru um skaðleg áhrif þessarar lyfjamisnotk- unar. Af þessu tvennu leiðir, að hér er Skinfoxi um heilsuvá að ræða, sem berjast verður gegn af fullri alvöru. Auk hinna læknis- fræðilegu sjónarmiða mæla siðferðileg, lagaleg og fjárhagsleg rök einnig gegn því, að heilbrigt fólk sé að nota þessi lyf, en á íslandi virðist einkum vera um misnotkun karlhormóna (“stera”) að ræða. Neysla sterkra verkjalyfja, lyfja sem verka örvandi á geð og miðtauga- kerfi og hjarta- og æðakerfi virðist lítil hérlendis. Sama er að segja um lyf með verkun stýrihormóna heiladinguls, en misnotkun þeirra og blóðaukandi horm- óns færist í vöxt erlendis og eru lyfin mjög dýr. í grein þessari mun ég reyna að velta fyrir mér ástæðum þessarar misnotkunar og afleiðingum hennar. Hverjar eru ástæður lyfjamisnotkunar? íslendingar virðast alltaf hafa haft sérstaka þörf fyrir hetjur. Ef til vill má segja slíkt hið sama um flestar þjóðir. Hetjumar þurftu að vera rammar að afli og ókvalráðar, vel íþróttum búnar og vígfimar og helst einnig hagmæltar og með dulræna hæfileika. Alþýða manna og einkum unglingar dáðu þessar hetjur og lifðu sig inn í afrekssögumar og sam- sömuðu sig þeim í ímyndun sinni og hlutu af sæla en skammvinna hugar- vímu. A þeim tímum, sem lítið úrval var af hetjum, vom þær einfaldlega búnar til, enda mörkin stundum óglögg milli hugarburðar og raunvemleika. Sagna- menn seinni tíma, fjölmiðlafólkið, eltist ötullega við hetjur, sem ósjaldan em að hluta til tilbúningur. í sjónvarpinu er urmull af fyrirmyndum, sem við fáum aðeins að sjá yfirborðið á. Með bættum samgöngum og virkari fjölmiðlun hefur hetjuútgerð orðið spennandi og oft gjöfull atvinnuvegur. Helst em það popparar og íþróttafólk, sem brúklegt er til slíks. Þetta hefur 17

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.