Skinfaxi - 01.02.1992, Side 34
V I Ð T A L
ákveðinn fjölda greina, en bæta ekki sí-
fellt við. Það eru takmörk fyrir því hvað
margar greinar félögin geta stundað. Ég
álít t.d. að of margar sundgreinar séu á
Landsmótunum, en það verður að vera
jafnræði nrilli karla og kvenna, þ.e.a.s.
að hafa jafnmargar greinar fyrir bæði
kynin. Svo verðum við að gæta okkar á
því að hafa ekki lágmörkin of ströng
vegna þess að maður veit að marga ung-
linga dreymir um að komast á Landsmót
ungmennafélaganna. Þá kunna sumir að
segja að litið verði á Landsmótin sem
léleg sveitamót, en það er ekki það sem
skiptir mestu máli, heldur það að við
eigum fyrst og fremst að vera ánægð ef
fjöldinn er með. í hlaupum á t.d. að hafa
undanrásir, milliriðla og úrslitahlaup, en
ekki láta klukkuna ráða. Með því móti
getur fjöldinn verið með og þá er líka á-
reiðanlegt að sá sem vinnur er best
þjálfaður.
Mér finnst það ekki keppikefli að
hafa einhverjar erlendar stjömur á
Rannsóknir á upp-
hafi skógræktar-
starfs ungmenna-
félaga
í janúar síðastliðnum var Bjöm B.
Jónsson, fyrrvemdi formaður HSK,
fenginn til að gera úttekt á skógrækt
ungmennafélaga í landinu. Stefnt verð-
ur að því að öll úttektarvinna fari fram
sumarið 1992, en úrvinnsla gagna
haustið og veturinn 1992-1993.
Bjöm er þegar byrjaður að undirbúa
verkefnið og hafa bréf verið póstlögð til
félaga í því sambandi.
Miðað við fystu athuganir Bjöms þá
hafa sem næst 30 félög hafið skógrækt
1916 og um 1940 eru þau orðin um 70,
en vitað er að fleiri hafa bæst í þennan
hóp eftir það. Það má því ljóst vera að
það krefst allmikillar vinnu að komast
yfir úttektina á einu sumri.
Aðalmarkmiðið með þessari úttekt er
að fá heildarsýn yfir skógrækt í félögum
UMFI og skrá merkan þátt í sögu ung-
mennafélaganna.
Allar upplýsingar um skógrækt ung-
mennafélaga eru því vel þegnar og eru
menn vinsamlegast beðnir að senda þær
til þjónustumiðstöðvar UMFÍ, Öldugötu
14, 101 Reykjavík.
34
Landsmótunum, því þá verður unga
fólkið okkar feimið. Það er fólkið sjálft
sem keppir innbyrðis og verkar hvetj-
andi hvert á annað, en ekki stjörnur utan
úr heimi.
Við eigum að taka inn sem flesta
þætti úr starfi ungmennafélaganna,
starfsíþróttir hafa gefið Landsmótunum
mikið gildi og við eigum að leggja á-
herslu á þær. Jurtagreiningin getur t.d.
orðið til þess að fleiri ungmenni komi
saman og fari út í náttúruna til þess að
læra að þekkja jurtir og við eigum ekki
að hlusta á þá sem gera grín að þessu.
Stór þáttur og tákn mótanna er inn-
gangan á mótssvæðið. Það er erfitt að
æfa inngönguna, en það er hægt að
segja fólki hvemig eigi að ganga, hvern-
ig eigi að halda á merkinu og fánanum
og hvernig eigi að bera sig. Það sem við
þurfum að halda í er burðurinn á fánan-
um og merkinu, og að fólk beri sig vel
og með virðingu. Og eins að fólk sé í fé-
lagsgöllum sínum og snyrtilegt og haldi
röðinni. Uppsetningu á vellinum er hægt
að breyta á ýmsa vegu. Þessi atburður
má ekki verða of hversdagslegur og ég
held að við megum alveg huga að breyt-
ingum. Þar sem aðstaðan er góð mætti
t.d. hugsa sér að að allar raðimar stað-
næmdust þversum á brautunum fyrir
framan áhorfendur og gengju síðan sam-
síða fram eða að fánamenn og merkis-
berar gengju sér í gegnum þvöguna. Ég
er undrandi á því hvað inngangan hefur
tekist vel í gegnum árin og hvað þetta
hefur mælst vel fyrir.
Hver maður þarf að eiga sína íþrótt,
en það er ekki nauðsynlegt að hægt sé
að stunda allar greinar á öllum stöðum
og það þarf ekki að taka upp allar þær í-
þróttagreinar sem komast í tísku, en ég
er samt ekki á móti fjölgun íþrótta-
greina,” sagði Þorsteinn Einarsson, fyrr-
verandi íþróttafulltrúi ríkisins. Hann er
enn að, fer í gönguferðir, skoðar náttúr-
una og vinnur af kappi við íþróttarann-
sóknir.
Þrír jjóði r á v öxtunarkostir
u. mtlMDRfíK fyrif þá sem vilja góða ávöxtun en vilja jafnframt
^ inummun^ geta gengið að sparifé sínu hvenær sem er.
•S
| nm/PPIPnni/ f^r,r sem v^ia binda sparifé sitf til ávöxtunar.
UKI (juIoDUK Ávöxtun sparífjár á Öryggisbók veitir alltaf sama
1 öryggi og verdtrygging.
Vt
•>.
RnUhinrl ^ mánaða reikningur fyrir þá sem vilja njóta
* '\JU hagstæðustu ávöxtunarkjara hjá sparisjóðnum.
Innstæða er undanþegin eignaskatti.
Gagnkv&mt traust
Þeir njóta trausts hjá sparisjóðnum sem ávaxta fé sitt á Trompbók,
Oryggisbók eða Bakhjarli. Þeim opnast ýmsar leiðir hjá spari-
sjóðnum til hagsbóta fyrir sig og sína.
Komdu í sparisjóðinn
Sparisjóður Mýrasýslu býður ekki einungis sömu jbjónustu og sömu
kjör oq aðrar peningastofnanir í landinu, heldur nýtur jbú jbess að
við þekkjum okkar heimafólk, þarfir jbess og aðstæður. Þess vegna
er Sparisjóður Mýrasýslu jb/nn sparisjóður.
íS
SPARISJÓÐUR MÝRASÝSLU
■er þinn sparisjóður
7
i