Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 15

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 15
UR STARFINU framboð bæði hóp og einstaklings- íþrótta fyrir alla aldursflokka barna og unglinga undir stjórn hæfra þjólfara. Þessi ókvörðun var tekin í kjölfar þess að krakkar í Snæfellsbæ komu illa út í óformlegri könnun ó holdafari og hreyfingu skólabarna. Það hefur tekist að fó börn ó æfingar sem ekki æfðu íþróttir óður. Erfiðlegast hefur gengið að höfða til unglingsstúlkna 14-16 óra. Þeim hefur þó fjölgað í blaki og frjólsum íþróttum og það er von manna að kvennaknattspyrna nói sér ó strik ó ný í Snæfellsbæ. Fjármagn og framtíðin Þetta átak í íþróttamálum Snæfellsbæjar hefur gert það að verkum að íþróttahúsið iðar af lífi, tímataflan er þétt og nánast sprungin. Nýr upphitaður spark- völlur var tekin í notkun í haust og mun vonandi létta álagið á íþrótta- húsinu þegar hann kemst í fulla notkun. Kostnaður við starfið hefur aukist til muna og vilja ungmenna- félögin draga það í lengstu lög að hækka æfingagjöld en þau eru 9.000 kr. fyrir hverja 3 mánuði á barn óháð fjölda íþróttagreina sem það stundar. Systkinaafslættir og fleiri afslættir eru síðan veittir af æfingagjöldum. Því hefur verið leitað í auknum mæli til fyrirtækja varðandi styrki og fjáraflanir s.s. dósasafnanir, pappírssala og fisksala hafa gengið framar vonum. Meiri stuðningur þyrfti þó að koma frá opinberum aðilum. Að fá fleiri krakka til að taka upp íþróttir sem hluta af sínum lífsstíl er ekki bara forvörn gegn heilsu- og umkomuleysi heldur sókn sem gefur af sér sterka og sjálfstæða einstaklinga sem eru líklegri en ella til að gefa af sér og skapa sínu bæjarfélagi og umhverfi tekjur og framfarir. Næsti áfangi í starfi ungmenna- félaganna í Snæfellsbæ verður hugsanlega sameining þeirra. Gagnvart íþróttastarfinu þá verður lögð meiri áhersla á skemmtun samfara íþróttaiðkun. Þetta á að vera gaman og þar leggjum við átakalínurnar á komandi misserum. Guðni Gunnarsson. Formaður Umf. Víkings í Ólafsvík Mikill uppgangur í frjálsum Mikill uppgangur hefur verið í frjálsum íþróttum hjá Héraðs- sambandi Suður-Þingeyinga síðustu ár og er það mikið fagnaðarefni. HSÞ hefur vakið athygli síðustu ár fyrir mikið og gott starf og góða framkomu keppenda á mótum. Um 70 börn og unglingar eru nú að æfa og eru mörg þeirra komin í hóp þeirra bestu á landinu í sínum aldursflokki. Foreldrar hafa verið mjög duglegir að hvetja sín börn og fylgja þeim á mót og skiptir það mjög miklu máli. Arangur ársins hefur verið mjög góður og mýmörg héraðsmet og nokkur íslandsmet hafa fallið á þessu ári sem þeim síðustu. HSÞ hefur um þessar mundir eitt af 4 bestu keppnisliðum landsins bæði í flokkum 12-14 ára og 15-22 ára. Því er það keppikefli okkar að halda þessu starfi áfram og geta mætt með geysiöflugt lið á Unglingalandsmótið 2006 sem HSÞ hefur verið úthlutað og verður á Laugum. Það er mikil viðurkenning fyrir HSÞ að stjórn UMFÍ skuli hafa valið Laugar sem keppnisstað. En það þurfa margir að koma að undirbúningi mótsins svo allt gangi vel. HSÞ keypti í sumar fullkomin rafmagnstímatökutæki og fékk tii þess styrk frá Þingeyjarsveit. Tækin voru notuð á Laugum í sumar og spara þau marga starfsmenn við tímatöku auk þess sem nákvæmni er mæld uppá 1/100 úr sekúndu. Síðan gaf Jóhann Guðni Reynisson sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Lauga- velli kastbúr sem vígt var á Héraðsmóti HSÞ í ágúst. Hér með þakkar frjálsíþróttaráð fyrir góðar gjafir og auðveldar HSÞ að takast á við krefjandi verkefni í framtíðinni. Anita Karin Guttesen Framkvæmdastjóri HSÞ www.umfi.is 15 SKINFAXI - tímarit um íþróttir

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.