Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Side 19
Viðtal
„Ég hef óskaplega gaman af
þeim. Ég hef veriö vitlaus í
knattspyrnu alveg frá því ég var
ungur maöur i Garðinum og lék
þá sjálfur knattspyrnu. Viö vor-
um meö lið í Garöinum þegar
ég var ungur og kepptum. En
viö vorum svo fáir, enda aðeins
um 400 íbúar þá í Garðinum, að
þetta gekk aldrei almennilega.
Nú gengur þetta betur hjá
þeim, enda íbúatalan kominn
yfir eitt þúsund. Mér þótti sárt
aö sjá á eftir Víöi niður í 2. deild í
sumar. Mér þótti liðið svo vax-
andi aö þaö var eiginlega
ósanngjarnt aö þeir skyldu
falla. Og hugsaðu þér, þaö
munaöi einu marki!“
— Er þaö rétt sem ég hef
heyrt Eggert, aö þú hafir á
síldarárunum átt það til að fá
leiguflugvél til aö sækja þig
austur á firði til að komast á
spennandi leik?
„Þetta er nú þjóðsaga, eöa
eigum viö aö segja hálfur sann-
leikur? Ég var einu sinni stadd-
ur austur á Stöövarfiröi og fékk
flugvél til aö flytja mig til Ólafs-
fjaröar, þar sem ég ætlaði aö
eyða nokkrum frídögum. Ég
samdi viö flugmanninn um aö
millilenda á Akureyri svo ég
gæti horft á Akureyringa og
Keflvíkinga leika. Keflavík var
þá mitt lið, þar sem Víöir var
ekki kominn í 1. deild. Eftir leik-
inn flugum við svo áfram til Ól-
afsfjarðar. Þetta er nú sannleik-
urinn í málinu. Þaö vantaöi ekki
áhugann og ég heföi alveg
veriö tilbúinn til aö gera þetta
aftur, en þaö var bara ekki
hægt.“
Af Selvogsbanka til
að horfa á landsleik
„Ég hef líka afskaplega gam-
an af aö horfa á handknattleik.
Ég var einu sinni aö veiöum hér
austur á Selvogsbanka og
sigldi í land til aö sjá landsleik
milli íslands og Danmerkur.
Þegar viö svo komum í Höllina
var allt uppselt. Ég sagöi aö
mér þætti þaö helvíti hart aö
vera búinn aö sigla austan af
Selvogsbanka í land til að sjá
leikinn en komast svo ekki inn.
Vinur minn einn sem var dyra-
vörður hvíslaði aö mér aö koma
bakdyramegin og ég sá leikinn.
Þaö var verst aö íslendingar
töpuöu honum. Nú fer ég á
flesta leiki, enda hægara aö
komast en áöur fyrr. Ég læt mig
aldrei vanta ef ég mögulega
kemst á leiki. Svo horfi ég að
sjálfsögðu á ensku knattspyrn-
una í sjónvarpinu, þaö væri nú
annaö hvort".
Gott líf á Njáli
Eggert var spurður hvort
hann ætlaði ekki að fara að
hvíla sig og hætta
sjómennsku:
„Ég veit þaö ekki. Þaö er
alltaf veriö aö spyrja mig aö
þessu og ég get aldrei svarað
því. Þetta er annars þokkalegt
líf á Njáli og viö höfum þaö
gott“.
— Er það rétt að gömlu há-
setarnir af Gísla Árna séu
með þér á Njáli?
„Þessir strákar sem voru
með mér eru allir vinir mínir og
þeir koma meö ööru hverju"-.
Skipstjórarnir á Njáli,
Eggert Gíslason og Ás-
geir Baldursson, sem
leysir Eggert af.
VÍKINGUR 19