Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Side 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Side 52
Telji eftirlitsmiðstöðin að ástæða sé til eftirgrennslunar, leitar eða björgunar skal hún þegar gera nauðsynlegar ráðstafanir. Á undanförnum árum hefur verið unnið að merkri tilraun á vegum samgönguráðu- neytisins en það er sjálfvirkt til- kynningarkerfi fyrir íslenska fiski- skipaflotann. 52 VÍKINGUR Tilkynningarskylda... sinni á sólarhring svo og viö brottför og komu úr höfn. Til- kynningar bárust til eftirlitsmið- stöðvar sem í upphafi var til húsa í Slysavarnafélagshúsinu við Grandagarð í Reykjavík, um fjarrita frá strandarstöðvum Landssímans. Fljótlega var farið að huga að sólarhringsvöktum í eftirlits- miðstöðinni og tveimur skyldu- timum á sólarhring þannig að aldrei liðu meira en 12 tímar milli tilkynninga frá skipum. Lög um tilkynningarskyldu íslenskra skipa voru sett 13. maí 1977 og Slysavarnafélagi íslands falin áframhaldandi framkvæmd hennar. Með til- kynningarskyldunni eiga öll skip og bátar með fjarskipta- búnað að láta vita um ferðir sín- ar tvisvar á sólarhring og komu til hafnar svo og bröttför úr höfn. Hafsvæðinu í kring um landið er skipt í ákveðna reiti, sem markaðir eru á kort í þessu augnamiði auk þess sem fylgst er með skipunum á siglingu til og frá erlendum höfnum. Telji eftirlitsmiðstöðin að ástæða sé til eftirgrennslunar, leitar eða björgunar skal hún þegar gera nauösynlegar ráðstafanir og hafa um þær samráð við alla þá er aðstoð geta veitt við eftir- grennslan, leit eða björgun. Það varö fljótlega Ijóst að erf- itt yrði að sinna eftirliti með öll- um þeim fjölda skipa sem nú eru að veiðum við landið, án þess að taka í notkun tölvur til aö auðvelda eftirlitið og gera það markvissara. Árið 1983 var hafist handa við gerð forrits, sem nota skyldi í þessu skyni. Keypt var tölva og hafin tilraunakeyrsla, sem því miður mistókst vegna þess að tölvan reyndist vera lengur að vinna úr tilkynningum heldur en vanur maður ásamt því að ekki reyndist unnt að fá fjarrita. Hugmyndin að baki notkunar á tölvu var sú að skeyti til eftir- listmiðstöðvarinnar frá strand- arstöðvum Landssímans færu um fjarritann beint til skráning- ar á tölvuna án þess að starfs- maður á vakt þyrfti að koma þar nærri. Eins og áður sagði gekk þetta ekki upp í fyrra skiptið, en nú hafa verið fengin ný tæki og tilraunakeyrsla staðið yfir í tæp- an mánuð. Sú tilraunakeyrsla lofar meiru en menn áttu von á og eru likur á að fljótlega verði endanlega hægt að leggja handvirku aðferðina á hilluna. Þess í stað gefist aukinn tími til að gera skylduna nákvæmari og hefjast fyrr handa en verið hefur til aukins öryggis fyrir sæfarendur. Slysavarnafélag íslands stendur í mikilli þakkarskuld við þá aðila, sem lagt hafa þessu máli lið, svo sem Oddfellow stúkuna Þorfinn karlsefni en stúkan gaf SVFÍ mjög fullkom- inn fjarrita. Án hans hefði ekki verið unnt að ná þeim árangri, sem nú er að koma í Ijós. Enn- fremur Hewlett packard á ís- landi sem gaf tölvu þá, sem notuð er við tilkynningarskyld- una. Þá hefur ýmislegt verið gert til að rekstur eftirlitsmið- stöðvarinnarog björunarstjórn- stöðvarinnar veröi sem örugg- astur. Komið hefur verið fyrir fullkominni Ijósavél í SVFÍ-hús- inu ásamt sérstöku kerfi til að tryggja áfallalausan rekstur tölvunnar og í talsverðan tíma án þess að rafmagn sé á hús- inu og Ijósavél í gangi. Enn- fremur hefur mjög fullkomnu símakerfi ásamt vönduðu fjar- skiptakerfi verið komið fyrir, til að tryggja að reksturinn verði sem áfallaminnstur. Daglegar tilkynningar hafa mestar orðið um 1870 og fer þeim sífellt fjölgandi með stækkun fiskiskipaflotans. Fyrirsjáanlegt er að á næsta ári fari þær yfir 2000. Ekki hefði verið unnt að sinna svo mörg- um tilkynningum ööruvísi en að fjölga starfsfólki, en með notk- un tölvunnar verður engin breytinga á fjölda starfsmanna, en hinsvegar gefst meiri tími til að sinna eftirgrennslan eftir skiþum. Ef tilkynningu vantar frá skipi hefst fljótlega eftirgrennslan og er þá fyrst hringt í líklegar ver- stöðvar miðað við fyrri tilkynn- ingar. Jafnframt er auglýst í út- varpi og strandarstöðvar beön- ar um að spyrjast fyrir um viðkomandi bát eða báta. Til- kynningaskyldan hefur notið aðstoðar fjölda fólks sem ekki hefur talið eftir sér að leita í höfnum og spyrjast fyrir ef að- stoðar hefur verið leitað. Því er sérstök ástæða að færa öllum þeim er myndað hafa hina sterku keðju umhverfis landið álúðarþakkir fyrir ósérhlífna að- stoð. í þeim hópi er fjölmargt björgunarsveita- og slysa- varnafólk auk lögreglu, hafnar- varða og annarra starfsmanna hinna ýmsu hafna. Starfsmenn Tilkynningar- skyldu íslenskra skipa eru nú 5, allir skipstjórnarlærðir menn með mikla starfsreynslu til sjós. Auk þeirra er alltaf maður á bakvakt vegna björgunarmið- stöðvarinnar til útkalla í neyðar- tilvikum, þar erjafnframt stjórn- stöð hinna margþættu verk- efna SVFÍ, neyðarsíminn er þar staðsettur og beinar línur eða fjarskiptasamband við nánustu samstarfsaðila. Á undanförnum árum hefur veriö unnið að merkri tilraun á vegum Samgönguráðuneytis- ins en það er sjálfvirkt tilkynn- ingarkerfi fyrir íslenska fiski- skipaflotann. Það er verkfræð- istofnun Háskólans, sem unnið hefur að þessu verkefni undir stjórn dr. Þorgeirs Pálssonar prófessors. Það er ánægjulegt að vita að unnið sé að slíku verkefni af hálfu íslenskra vís- indamanna og sá árangur, sem fengist hefur nú þegar, gefur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.