Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Page 97

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Page 97
I Síðasta... hefði eitthvað bilað og brotnað ofandekks hefðu sennilega allir farist. Þeir, sem ekki komu upp, voru 1. vélstjóri, sem var að reyna að forða frá ketil- sprengingu, því sjórinn gekk niður um skorsteininn, og svo loftskeytamaðurinn, sem þeg- ar fór að senda út neyðar- skeyti. Adolf loftskeytamaður þurfti aö fá aðstoð til að halda sér i stólnum, því skipið hentist svo mikið til. Friðrik Magnússon var valinn til þessa og voru þeir niðri i skipinu allan tím- ann þangað til kom að þeim að fara i land. Adolf hefur alltaf verið með krepptan handlegg síðan, og margir af þessum mönnum fóru ekki á sjó eftir þetta strand. Eftir þessar fyrstu hamfarir barst skipið nær landi upp á svokallaðar miðgrynningar og þar stóð það blýfast. Þegar strandið varð, vantaði 2 tíma á fjöru og um fjöru gátu skips- menn farið að hugsa til björg- unar. Það var byrjað að hnýta lóðabelg viö tvinnarúllu og þannig voru látnar út rúllur hver af annarri og svo belgir á sverari tóg. Þetta rak að landi en bar langt af leið. Þegar eftir strandið sendi „LEIKNIR" út neyðarkall og heyrðu það bæði togarar, sem voru að veiðum fyrir sunnan land, og svo loftskeytastöðin í Reykjavík, sem þegar hringdi austur í Álftaver og bað Álft- verja að fara sem skjótast á strandstaðinn og reyna að bjarga áhöfn „LEIKNIS" í land. Var Gísli Magnússon, hreppstjóri, í Noröurhjáleigu, vakinn upp og beðinn að safna liði á bæjunum. Kvaddi Gísli með sér til standar þá menn, sem til náðist fljótlega, og lét síðan hafa símasam- band við aðra bæi og bað menn að hraða sér niður á sanda. Álftverjar leituðu skipsins fyrst austur að Kúða- ós, en fundu það ekki. Meöan á þeirri leit stóð, dreif að menn úr sveitinni, og mælti Gísli hreppstjóri svo fyrir, aö leitinni skyldi haldið áfram vestur með ströndinni. Gerðu Álft- verjar sér vonir um að skipið hefði losnað af sjálfsdáðum og væri farið af staðnum. Svo reyndist þó ekki. Um kl. hálf tíu um morguninn fundu þeir Jón Gislason i Noröurhjáleigu og Brynjólfur Oddsson á Þykkvabæjar- klaustri skipið, þar sem það var strandað á Þykkvabæjar- fjöru, miklu austar en fyrr var talið. Þegar að var komiö stóð „LEIKNIR" á sandrifi um 500 metra frá landi og braut yfir skipið. Engin linubyssa var hand- bær, hvorki í landi eða í skip- inu, og því ekki hægt að koma á sambandi milli lands og skips á annan hátt en að skip- verjar létu reka i land. Nú var belgina, sem áður er getið um, farið að reka á land og gátu þá björgunarmenn náð þeim og drógu línuna á móts við skipið. Var því næst dregin sver lína i land og á hana var settur hringur til að hengja björgunarstólinn í, en stóllinn var gerður eftir fyrirsögn Dav- íðs Davíðssonar þótt veikur væri, en ég útbjó björgunar- tækin. Svonatæki höfðu aldrei sést áður við björgun við is- landsstrendur, þó var þeim í mörgu ábótavant við það sem nú er. Nú var farið að falla að, og farið að brjóta meira á skipinu aftur, og mjakaðist það alltaf nær og nær landi. Á meðan flæddi að dreif að leitarmenn úr Álftaveri og var kominn nægur mannafli á staðinn. Björgun gat hafist. En nú losn- aði „LEIKNIR" af sandrifinu og barst nær landi. Kastaðist þá skipið sitt á hvað og þótti ekki ráðlegt að festa björgunarlín- una. I stað þess röðuðu menn í landi sér á línuna og ýmist gáfu eftir eða strektu á. Björgun var hafin og 8 menn að vali skipstjóra komust í land. Drógust þeir talsvert mikiö í sjó, en hetjurnar Jón Gíslason og Brynjólfur Odds- son, sem stóðu í sjó upp undir hendur, gripu mennina í stóln- um og báru þá upp á sandinn. Nú kom skeyti frá varðskip- inu „Ægi“ um að það væri á leiðinn á strandstaö og myndi verða komið eftir skamma stund, en það átti á móti stór- sjó og roki að sækja og gekk þvi ferðin mjög seint hjá því. Skipstjóri hafði þá samband við okkur og bað okkur að bíöa þar til „ÆGIR“ kæmi. Allir töldu björgun frá „ÆGI“ útilok- aða sökum brims og óveðurs, en ég og Árni buðumst til að Adolf loftskeyta- maöurþurfti aö fá aöstoö til aö halda sérístólnum, því skipiöhentistsvo m ik iö til. Engin línubyssa var handbær, hvorki í landi né ískipinu, og þvíekki hægt aö koma á sambandi milli lands og skips ... VÍKINGUR 97
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.