Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Blaðsíða 118
Verður kallinn
Samskipti við
land verða öll
mjög auðveld. Við
munum sjá
sjónvarpssíma,
sjómenn munu
sinna erindum
sínum i banka í
gegnum tölvu.
Framtíð fræðimanns
í fyrsta lagi: Um borö verður
öflug tölva sem getur veitt gríö-
arlegar upplýsingar. Á geisla-
diski veröur landgrunn íslands
til í heilu lagi, öll gil og festur.
Viö getum sagt aö áriö 2000
munum viö geta geymt á einum
geisladiski um hálfa milljón
Morgunblaöa. Viö munum
einnig hafa aögang aö almenn-
um upplýsingum í fiskifræði.
Þessi vitneskja veröur senni-
lega sameiginleg fyrir öll skipin
og Hafrannsóknarstofnun get-
ur haft eftirlit meö henni: Tölv-
an mun þekkja hegðun svifs,
strauma, hitastig á hverjum
stað eftir árstíma og allar þær
upplýsingar um umhverfið sem
viö höfum þá aflað okkur. Auk
þess mun hún geyma upplýs-
ingar um fyrri höl og allar aðrar
upplýsingar sem því fylgja. Allt
þetta munum viö sjá í mynd-
rænu formi í þrívídd. Viö sjáum
skipið sjálft, hreyfingu nótar-
innar, hreyfingu torfunnar,
strauma og hafsbotninn í smá-
atriðum. Tölvan mun einnig sjá
um kostnaðar- og hagkvæmn-
isútreikninga og segja hvar
hentugast sé að veiða á hverj-
um tíma og einnig hvaö skal
veiða.
í öðru lagi: Allar vélar og tæki
verða tölvustýrö meira en er í
dag nema sjálfsögö öryggis-
tæki einsog gýrókompás og
jafnvel radar.
I þriöja lagi: Notkun tölva til
eftirlits mun aukast og þær
munu bregðast viö vanda. Sem
dæmi má nefna eftirlit meö vél
og togvírum. Ef þrýstingur
eykst mun tölvan sjálf sjá um
aö bregðast við eöa ef nótin
nálgast botninn of mikið þá
mun tölvan sjálf sjá um að lyfta
henni upp.
í fjórða lagi: Samskipti viö
land veröa öll mjög auðveld.
Viö munum sjá sjónvarpssíma,
sjómenn munu sinna erindum
sínum í banka í gegnum tölvu.
Samskipti útgeröar, skipa og
markaöa veröa miklu betri og
auðveldari.
í fimmta lagi: Vinnslan verö-
ur í höndum vélmenna. Tæki
munu flokka fiskinn, gera aö
honum, setja hann í kassa,
flaka hann, hreinsa hann og
pakka honum. Allt sjálfvirkt".
Niðurlag
Viö skulum alltaf hafa þaö
hugfast aö tæknin er aðeins við
annan enda borðsins. Viö hinn
endan situr útgerðin, skipstjór-
inn og áhöfn hans. Spurningin
er: hversu langt vilja menn
ganga ? Við keppumst við aö
setja sem fullkomnust tæki um
borö í skipin. Þegar viö einu
sinni höfum kynnst plotter með
16 litum þá lítur enginn viö 8 lita
plotter. Til baka verður ekki
snúiö.
Verður þorskurinn ekki alltaf
gulur, eöa hvaö ?
Morgunbæn danskra fiskimanna
Er þetta ef til vill einnig
væntanleg útgáfa ís-
lenskra fiskimanna af
„Faðirvorinu". Við lögð-
um ekki í að þýða vers-
ið, en bjóðum hagyrð-
inga velkomna með
góða þýðingu.
Fader vor, du som er i datamaten,
Helliget vorde dit operativsystem,
Komme dit flerforbrugssystem.
Ske din vilje som pá skærmen,
Sáledes ogso pá printeren.
Led os ikke i systemfejl,
Men fri os for de lange svartider.
Giv os idag vor daglige udskrift,
Og tilgiv os vore tastefejl,
selvom vi aldrig tilgiver nogen for programfejl.
Thi dit er systemet
Og magten over personalet.
I evighed.
Enter.
118 VIKINGUR