Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Blaðsíða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Blaðsíða 8
VÍKINGUR En er þá ágreiningur innan nefndar- innar eða hefur dregið úr samstarfs- vilja meðal nefndarmanna? „Það hefur verið ágreiningur í ýmsum málum.“ Er hann meiri nú en áður? „Ég hef ekki orðið var við það.“ Er það ekki rétt að úrskurðirnir í þessum málum sem ég nefndi hafi orðið til þess að samstarfsvilji minnk- aði? „Ég veit ekki við hvað þú átt. Það er búið að fjalla um nokkur mál og úr- skurðirnir hafa stundum verið sam- hljóða, stundum hefur formaður verið sammála útgerðarmönnum og stund- um sjómönnum. Það hefur verið uppi ágreiningur; ef nefndin er ekki sam- mála þá er ágreiningur. 1 öðrum þessara úrskurða voru sjómenn í minnihluta og í hinum voru útgerðar- menn í minnihluta. Eins og þú orðar spurninguna þá má ætla að dregið hafi úr samstarfsvilja útvegsmanna í öðru tilfellinu og sjómanna í hinu. En ég hef ekki orðið var við það. Ég get skilið að menn séu ekki ánægðir þegar þeir lenda í minnihluta," sagði Svavar Ármannsson, formaður samstarfs- nefndarinnar. Útgerðarfélag Akureyringa hefur á síðasta áratug keypt skip og varanlegar aflaheimildir fyrir rúmar: Tvö þúsund milljónir þá er ótalin leiga á kvóta Frá árinu 1983 hefur Útgerðar- félag Akureyringa keypt skip og varanlegar aflaheimildir fyrir rúma tvo milljarða króna. Á sama tíma hefur ÚA greitt fjögur til fimm hundruð milljónir króna vegna leigu á kvóta. Samtals hefur félagið því greitt um 2.500 milljónir fyrir skip og aflaheimildir þau tíu ár sem liðin eru frá því kvótakerfið kom til, eða frá árinu 1983. Það skal tekið fram að kaupin á Svalbaki EA 2 eru ekki með í þessum tölum, ef kaupverðinu á honum er bætt við fer upphæðin yfir þrjá milljarða króna. Af þessu má sjá að árlega hefur ÚA greitt um 200 milljónir króna á ári til kaupa á skipum og varanlegum aflaheimildum og milli 40 og 50 milljónir fyrir leigukvóta á ári. Björgólfur Jóhannsson, fjármála- stjóri ÚA, segir að framleiðsla fyrir- tækisins hafi aukist á síðustu árum og sem dæmi má nefna að aldrei hefur verið unnið meira af afurðum hjáÚAen 1993. Á þessum tíu árum hefur ÚA keypt eftirtalin skip: Bjarna Herjólfsson ÁR sem nú er Hrímbakur, Dagstjörnuna KE sem varð Sólbakur sem nú hefur verið seldur úr landi til niðurrifs, Baldur KE sem var endurseldur og Aðalvík KE sem er Sólbakur. Þá var Árbakur keyptur frá Grænlandi og kvóti keyptur í Vestmannaeyjum. Síðar bættist Svalbakur við. ÚA gerir út sjö togara og á einn að auki, gamla Svalbak, en hann hefur ekki heimild til að fiska í íslenskri lögsögu. „Við mælum með Mörenót“ JtlrilM,* # NETANAUST <$> 'kmJJJU Skútuvogi 13,104 Reykjavík, sími 91-689030, Jón Eggertsson símar 985-23885 - 92-12775
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.