Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 42

Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 42
200 NÁT T Ú R U F RÆ ÐINGURINN DANMÖRK ÍSLAND a bi ALDURSÁR IQ II. 12 13. 14 15. BEKKUR 4. 5. I. n m EZ MÓÐURMÁL 8 8 7 6 7 6 ERLEND MAL 3 3 4 8 SAGA+LANDAFR. 4 4 4 4 2 STÆROFRÆÐI 5 6 5 4 4 3 NÁTTÚRUFRÆÐI 2 3 4 4 2 ANNAÐ 10 14 13 15 17 19 STUNDIR ALLS 29 35 36 36 36 36 a b, II. 12 13. 14 15. 16. 5. 6. I. n. m nz 8 8 6 5 5 7 4 8 9 9 4 4 5 4 5 3 5 5 5 5 5 4 2 2 2 3 4 1 16 16 12 9 8 12 35 35 34 34 36 36 TAFLA V. Almennt gagnfrceðandm. a: 2 bekkir a£ barnaskóla, bi: 4 bekkir miðskóli. Eftirtektarvert er það, að í þessum skólum er miklu minna kennt af erlendum málum í Danmörku en á ísiandi. Kemur þar fram sú staðreynd, að meira er til af nytsömum bókmenntum við alþýðu hæfi á dönsku en íslenzku, svo að Danir geta reiknað með því, að öll alþýða manna komist af með sitt móðurmál, en það getum vér Islendingar tæpast gert. Það er sýnilegt af þeim samanburði, sem hér hefur verið gerður, að sá vikustundafjöldi, sem Danir og Þjóðverjar verja til kennslu í náttúrufræðum, er talsvert meiri en sá, sem vér íslendingar verj- um til sömu kennslu, og kennsla í málum er að sama skapi meiri hér á landi. Þessi munur er samt ekki eins mikill og við hefði mátt búast. Á lengd námstímans á hverju ári var ekki gerður samanburður, enda skiptir lengd kennsluársins ekki máli við sam- anburð á skiptingu vikustunda milli námsgreina. En það var annað sem kom í ljós við öflun þeirra heimilda, er að framan var getið, og er það mun veigameira en munurinn á vikustundafjöldanum. Er hér um að ræða þann mun, sem er á kennslunni sjálfri. Munurinn á náttúrufræðikennslunni hér og í ofangreindum nágrannalöndum vorum liggur meira í eðli kennsl- unnar en magni hennar. Eðlismunurinn er þessi:

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.