Náttúrufræðingurinn - 1939, Blaðsíða 9
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 101
umiiiiimiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiininiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimniininnnnimmn**n»*nmnn
á Breiðafirði, Bj arnarnesi og Dilksnesi í Homafirði og Skipholti í
Ámessýslu.
Það eru vinsamleg tilmæli mín til allra þeirra, sem vita eitt-
hvað fleira um ferðir þessara fiðrilda en hér er greint, að láta mér
þær upplýsingar í té.
Geir Gígja.
Gróður í Straumlækjargili.
Oft er vitnað í Slútnes í Mývatni, þegar rætt er um fjölbreytt-
an gróður hér á landi, og sungið um „öll landsins blóm, sem eg
fegurst veit“, er þar séu saman komin. Víst er Slútnes blómauðugt
og fagur gróður þar og fjölbreyttur. Hefir Náttúrufræðingurinn
flutt gróðurlýsingu þaðan. En víða mun mega finna smábletti jafn
fjölskrúðuga, og vil eg geta hér um einn slíkan stað, er fyllilega
jafnast á við Slútnes hvað tegundafjölda snertir. Það er blómgres-
ishvammur í Straumlækjargili, sem er norðarlega í Köldukinn.
Gilið er mjög djúpt. Hvammurinn er að sunnanverðu um 20—30
m. á hvern veg, lítið grýttur. Eg kom þar 12. ágúst 1937 og fann
þar eftirtaldar tegundir:
1. Aðalbláberjalyng (Vaccinium
Myrtillus).
2. Augnfró (Euphrasia latifolia).
3. Barnarót (Habenaria viridis).
4. Beitilyng (Calluna vulgaris).
5. Birkifjóla (Viola epipsila).
6. Bjarnarbrottur (Trofieldia palu-
stris).
7. Bláberjalyng (Vaccinium uligi-
nosum).
8. Blágresi (Geranium silvaticum).
9. Blásveifgras (Poa glauca).
10. Brennisóley (Ranunculus acer).
11. Brjóstagras (Thalictrum al-
pinum).
12. Brönugras (Orchis maculatus).
13. Bugðupuntur (Deschampsia
flexuosa).
14. Dýragras (Gentiana nivalis).
15. Finnungur (Nardus stricta).
16. Fjalldrapi (Veronica alpina).
17. Fjalladúnurt (Epilobium ana-
gallidifolium).
18. Fjallasveifgras (Poa alpina).
19. Fjallasmári (Sibbaldia procum-
bens).
20. Fjandafæla (Gnaphalium nor-
vegicum).
21. Friggjargras (Habenaria hyper-
borea).
22 Grasvíðir (Salix herbacea).
23. Grámulla (Gnaphalium supinum).