Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1957, Qupperneq 32

Náttúrufræðingurinn - 1957, Qupperneq 32
78 NÁTTÚRUFRFÆÐINGURINN suður með ströndum Evrópu og inn í Biskayaflóa. Við austurströnd Ameríku nær hún frá Labrador og suður að Hatterashöfða í Norð- ur-Karolína. Kúffiskur hefur óvíða verið notaður til matar, en er þó sæmilegur matfiskur. Ameríkumenn, sem nefna skelina Ocean quahog, hafa þó ofurlítið veitt af henni; nota þeir fiskinn einkum saxaðan í jafning. Helzta tilraunin, sem hér hefur verið gerð með hagnýtingu kúffisks til manneldis, fór fram árin 1952 og 1953, þeg- ar Samband íslenzkra Samvinnufélaga flutti út full 5 tonn af fisk- inum frystum. Æskilegt væri, að frekari tilraunir væru gerðar í þessa átt, svo og að veiða skelina til hagnýtingar til manneldis hér á landi. Hér við land eru fleiri skelfisktegundir, sem hægt væri að mat- búa, en órannsakað er, hvort þær finnast í svo ríkum mæli, að það borgaði sig að stunda veiði á þeim. Má t. d. nefna í því sambandi öðu, báruskel og hörpudisk. Hörpudiskurinn (Pecten islandicus) er hér í allríkum mæli í kalda sjónum, einkum við Vestfirði; er því helzt þar að leita miða. Fiskur hörpudisksins er mjög ljúffengur, eins og svo margra tegunda af diska-ættkvíslinni. Eru það aðallega Banda- ríkjamenn, sem veiða tegundir af ættkvísl þessari. Svo sem P. irradi- ans, er þeir nefna Bay Scallop, og P. magellanicus, er þeir hafa skírt Large Sea Scallop. Hvorug þessarra tegunda á lieima í íslenzkum sjó. Bay Scallop lifir á fremur grunnu og er auðvelt að veiða hann, enda hefur hann gengið mjög til þurrðar upp á síðkastið. Verð- mæti þess, er veitt var af honum árið 1945, var ríflega 872.400 dollarar. Large Sea Scallop er stærri tegund og heldur sig dýpra; af henni veiddist þetta sama ár fyrir 1.387.200 dollara. Enn er ein diska-tegund, P. diegensis, nefnd Butterfly Scallop. Heimkynni hennar er Kyrrahafið á grunnsævi úti fyrir ströndum Kaliforníu. Þar er skepnan veidd og etin, en þeir góðu menn þarna vestur í Kaliforníu Oeygja öllum fiskinum nema dráttarvöðvanum, hann eta þeir. Bandaríkjamenn veiða nokkrar fleiri tegundir matskelja. Merkastar þeirra eru Hard clam (Venus mercenaria) og Soft clam (Mya arenaria). Hvorug þessara skeltegunda er íslenzk, en sú síðar- talda er sama ætternis og smyrslingur og líkist honum stundum svo mjög, að þessum 2 tegundum hefur verið ruglað saman. Annars er M. arenaria vel kunn frá austurströnd Atlantshafsins og líka úr Kyrrahafi. Hard clam eða quahog eins og hún er stundum kölluð, er nauðalík lítilli kúfskel fljótt á litið, en liturinn er ljósari. Verð-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.