Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 32

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 32
78 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Eðlisfræði og aktualitetsprinc'ip í framhaldi af þessu er ekki ófróðlegt að kasta fram þeirri spurn- ingu, liversu djúpt eðlisfræði geti gripið inn í jarðfræði. Allir þeir kraftar, sem eru að verki í náttúrunni og skapa þau efni, sem jarð- fræðingur fæst við, lúta eðlisfræðilegum og efnafræðilegum lög- málum og eðlisfræðingur kynni þá að freistast til að álykta, að jarð- fræði væri angi af hagnýtri eðlisfræði og hinn rétti grundvöllur hennar væri því eðlisfræði. En þá hefði honum yfirsézt grundvallar- atriði. Að vísu er það rétt, sem að ofan var sagt unr verkun eðlis- fræðilegra lögmála, en því meginatriði verður að bæta við, að yfir- leitt hafa hinir eðlisfræðilegu þættir verið svo margir og samspil þeirra svo margbrotið, að með öllu er óhugsandi að meðhöndla þetta samspil eftir eðlisfræðilegum aðferðum eða að leiða út árangurinn á þann hátt. Hin raunverulega atburðarás verður aðeins rakin á grundvelli leifa eftir hin ýmsu stig, en það jafngildir jrví að segja, að jarðfræðin sé í innsta eðli sínu söguleg fræðigrein. Við þetta eru rannsóknaraðferðir hennar miðaðar. Reynslan hefur kennt, hvaða leiðir séu í höfuðatriðum færar, en þær felast í kennisetningunni um nútímann sem lykil að fortíðinni. Þetta er þannig skilið, að athuganir á nútímanum séu grundvöllurinn. Hér gæti eðlisfræði þó átt meiri þátt í könnunum en hún á yfirfeitt. Tökum sem dæmi þessa spurningu: Getur fjallshlíð orðið svo brött, að fyllur falli fram úr henni? Ut frá stöðugleikasjónarmiðum er óhætt að fullyrða, að þetta geti gerzt, en tæpast mun lögð áherzla á slíka reikninga í jarðfræðikennslubók, heldur er leitað að dæmum í náttúrunni og þau lögð til grundvallar. Annað dærni væri t. d. spurningin um útbreiðslu ösku. Veðurfræðingur gæti lagt fram útreikninga byggða á svifgetu, vindhraða, tíðleika vind- stefnu o. II. um mögulega útbreiðslu. Þetta væru ekki aðeins upp- lýsingar varðandi það, sem getur gerzt í nútímanum, heldur einnig í fortíðinni, Jrar sem það er byggt á afgildum lögmálum. Og mér er spurn: Væri ekki safn af t. d. 100 reiknuðum módelum góð mynd af því, sem getur gerzt, jafnvel á ýmsan lrátt fullkomnari en sú mynd, sem fengist af athugun t. d. 5 raunverulegra tilfella? Með þessu er ég auðvitað ekki að véfengja gildi athugana heldur að undirstrika, að til séu tvær mismunandi feiðir að markinu og að til samans gefi Jnær fyllri mynd en hvor aðferðin fyrir sig. Ég gæti

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.