Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1968, Qupperneq 52

Náttúrufræðingurinn - 1968, Qupperneq 52
98 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN myndun, nema þá þar, sem sprungukerfi eru fyrir hendi. Þetta stafar af því, að á löngum tíma hafa fallið út steintegundir í holur og sprungur í blágrýtinu sjálfu og millilögum þess og gert bergið þétt. Aðallega eru það geislasteinar (zeolítar), silfurberg (kalsit) og kvarts af mismunandi gerð og útliti. Allt öðru máli gegnir um yngri berglög eins og t. d. grágrýtið kringum Reykjavík og á Sléttu. Það eru hraun runnin á hlýviðris- skeiði — eða skeiðum milli ísalda — og hafa ekki náð að ummyndast svo teljandi sé. Lítið virðist vera um millilög í grágrýtinu. Er því svo að sjá sem hvert hraunið hafi runnið á annað ofan, án þess að slík lög hafi fengið tíma til þess að myndast. Milli hraunlaganna sjálfra verða þá þunn lög úr gjallkenndu lirauni með skútum og göngum. Gott dæmi um þetta má sjá í norðurvegg Almannagjár á Þingvöllum. Auðsætt er, að slík myndun getur geymt mikið vatn, enda hafa boranir eftir neyzluvatni í grágrýtið við Reykjavík gefið mjög góðan árangur og sama gildir um boranir á Raufarhöfn. Þess má þó geta, að bæði við Reykjavík og á Sléttu er megin grunn- vatnsstraumurinn tengdur tektoniskum sprungum í berggrunnin- um, en nánar verður ekki farið út í það hér. Hraun runnin eftir ísöld eru á sama veg. Vatn hripar gegnum Jiau og því verður yfirleitt ekki náð svo nokkru nemi fyrr en undir hraununum. b) Þess er áður getið, að á blágrýtissvæðunum væru litlir mögu- leikar til meiri háttar vatnsvinnslu úr föstu bergi. A Jreim svæðum er því vænlegast að vinna vatn úr lausum jarðlögum, sem eru ofan á berggrunninum, og má raunar heita að það sé þar eini möguleik- inn. í því sambandi koma fyrst og fremst til greina sand- og malarlög mynduð af framburði straumvatna. Oft má fá nokkuð vatn úr jökulurðum, sem nægt getur einu heimili eða svo, en meiri háttar vatnsvinnsla er þar ekki möguleg. Til þess að vinna megi mikið og gott neyzluvatn úr lausum jarð- lcigum þurfa þau að fullnægja ákveðnum skilyrðum. Mjög er æski- legt að taka neyzluvatn á nokkru dýpi undir yfirborði, og ætti Jrað að vera a. m. k. 10—15 m, en Jrví dýpra J)eim mun betra. Þetta fer þó að sjálfsögðu eftir Jjví, hvernig jarðlögin eru. Ef t. d. þétt leirlög eru ofan á þeim lögum, sem vatnið er tekið úr, má dýpið vera minna. Jarðlögin verða að vera Jaað þétt, að þau hindri óhrein-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.