Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1990, Qupperneq 18

Náttúrufræðingurinn - 1990, Qupperneq 18
mikið af kísilþörungum og hefur verið hægt að ákvarða um 20 mismunandi tegundir, en auk þess er í þessu grúi af brotum kísilþörunga, sem ekki er hægt að ákvarða. Allt eru þetta dæmi- gerðar ferskvatnstegundir, sem eru al- gengar á mýrum og í tjörnum um land allt. Skýringin á þessari myndun virðist í fáum orðum sagt þessi: Þegar hraun, sem er allt að 1000°C heitt rennur yfir votlendi, eins og hér virðist hafa ver- ið, verða miklar gufusprengingar, sem tæta sundur hraunið sjálft svo úr verð- ur gjall og rauðamöl og jafnvel hraun- kúlur (bombur), en í þeim ólátum tæt- ist einnig sundur undirlag hraunsins og hrærist saman við gjallið. Þetta þeytist svo upp í sprengingum og þannig hleðst hóllinn upp. Af ein- hverjum ástæðum hefur svo undirlag hraunsins tímabundið átt meiri þátt í þessu í einn tíma en annan og þannig hafa þessi lög orðið til. Þeim hallar jafnt og samsíða út frá uppvarpinu, sem verið hefur til hægri á myndinni og utan við sjálfan hólinn. Á þeim eina stað þar sem borað hefur verið gegnum Landbrotshraunið gegnt Kirkjubæjarklaustri reyndist það 22 m þykkt. Þetta var í sjálfri hraunröndinni. Því sýnist ekki ólíklegt að meðalþykkt hraunsins sé vart undir 30 m. ÚR UNDIRLAGI TIL YFIRBORÐS Ekki er þetta í fyrsta sinn sem efni úr undirlagi hrauns hefur borist upp á yfirborð þess. Mest ótvíðræða sönnun þess fékk ég fyrst á hrauninu úr Vikraborgum í Öskju 1961. Þar gat að líta ljósa vikurmola úr gosinu mikla í Öskju 1875 liggja ofan á 1961-hraun- inu, sem runnið hafði um 12 klukku- stundum áður. Snjór var yfir öllu og jörð frosin. Hraunkúlur fylltar kísilgúr hafa fundist á nokkrum stöðum í Landbroti (Jón Jónsson 1970) og eins hjá Botnum í Meðallandi en þar fyllt- ar aur og sandi, stundum lagskiptum. Við vesturenda Fljótsbotna í Meðal- landi má sjá hvernig hraun hefur verið að vefjast utan um lausagrjót þegar það storknaði (3. mynd). Fjölmörg dæmi eru til um það að hraun, sem veltur fram líkt og belti á jarðýtu getur plokkað, jafnvel stór- grýti úr undirlagi sínu og fært upp á yfirborð. Dæmi um þetta fann ég fyrst vestur af Seltjörn á Reykjanesskaga (Jón Jónsson 1976) og víðar á þeim slóðum. Sú skýring, sem ég setti fram í því sambandi kann að vera rétt, en næsta ljóst er að þetta getur orðið með a.m.k. tvennu móti. Vatnsnúna líparitmola hef ég séð inni í storku Skaftáreldahrauns við Hverfisfljót og alveg nýlega gekk ég fram á grágrýtis- bjarg ofan á Búrfellshrauni suður af Flötunum í Garðabæ. Loks skal þess til gamans getið að í gljúfri Hengifoss- ár í Fljótsdal skammt fyrir ofan sjálfan Hengifoss eru stykki af rauðum sand- steini inni í blágrýtishamrinum í vest- urvegg gljúfursins. Auðsætt er að þau eru úr sandsteininum, sem er undir þessu blágrýtislagi (hrauni). Hér hafa nú verið rakin nokkur dæmi um svona fyrirbæri, en öll eru þau ólík því, sem skoða má í Söðul- hól, hvað útlit varðar, þótt fyrirbærið í raun sé hið sama. HEIMILDIR Björn Jónasson 1974. Skaftársvæði. Jarð- fræði. Óprentuð ritgerð til B.S.prófs í jarðfrœði. Háskóli Islands. Reykjavík Jón Jónsson 1958. Landbrotshraunið. Náttúrufrœðingurinn 28. 90-96. Jón Jónsson 1970. Um hraunkúlur. Nátt- úrufrœðingurinn 40. 200-206. Jón Jónsson 1976. Grettistök á nútíma hraunum. Náttúrufræðingurinn 45. 205- 208. 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.