Samvinnan - 01.09.1927, Page 68
242
SAMVINNAN
Því fer fjarri. Hver, sem heldur slíkum firrum fram, van-
helgar minning'u Skúla Magnússonar.
Hver hefir orðið árangur af starfi Skúla Magnússon-
ar í þágu lands og lýðs? Áreiðanlega hefir hann orðið
mikill og meiri en margan grunar. Skúli hefir ugglaust
átt mestan þátt í því beinlínis og óbeinlínis, að einokunin
féll. En eg held að nútíðarkynslóðin eigi honum mest að
þakka fyrir það, að hann hefir vakið sjálfstæðistilfinn-
ingu og mannslund með þjóðinni. Hann hefir hvatt hana
til framtaks. Hann hefir kent almenningi, að vera sjálfur
á verði og fylgjast með því, sem gjörist. Hann hefir kent
íslenskum bændum það, að ef þeir vilja að unnið sé að
þeirra heill, eiga þeir að gjöra það s j á 1 f i r. Þeir eiga
enga kúgun að þola og engan að biðja. Þeim ber að vera
eigin húsbændur og k r e f j a s t þess, sem þeirra er.
Með þetta fyrir augum geta íslenskir samvinnumenn
með réttu kallað Skúla læriföður sinn og brautryðjanda.
— „Ellin hallar öllum leik“. Skúli Magnússon hlaut
að hníga í valinn eins og aðrir dauðlegir menn. En merki
hans er varðveitt, þótt foringinn félli. Ennþá vísar það
þjóðinni leiðina fram. Og enginn þarf að vera í vafa um,
hvar merkisins er að leita. Það blaktir yfir fylkingu þeirra
fslendinga, sem vilja gera verslunina frjálsa og þjóðlega
almenningseign — yfir íslenskum samvinnumönnum.
Gísli Guðmundsson.