Verklýðsblaðið - 10.11.1931, Síða 4
Frh. af 1. síðu.
AtviimuleysÍDgjar hefjast lianda.
að til fjárhagsnefndar, sem að alþekkt að-
ferð hjá bæjarstjórninni til að komast hjá því
að gera nokkuð í þeim málum, sem varða hags-
muni verkalýðsins. Það mun því ekki vanþörf
að atvinnuleysingjarnir fylgist vel með því sem
gerist og ýti við bæjarstjórninni við fyrsta
tækifæri.
Viðtal við forsætisráðherra.
Daginn eftir fóru tveir nefndarmenn með
kröfur þær sem atvinnuleysingjafundurinn
samþykkti til ríkisstjórnarinnar, til forsætis-
ráðherra, sem veitti kröfunum móttöku, og
kvaðst hann auðvitað skilja vel þarfir atvinnu-
leysingjanna og var reiðubúinn til þess að
gera allt, sem hann „gæti“ til þess að bæta
úr atvinnuleysinu. Um fyrstu kröfuna um at-
vinnubætur kvað hann ekki hafa komið nein-
ar umsóknir frá bænum um atvinnubótastyrk,
en hjá bæjarstjórninni stendur aðallega á því,
að hún hefir ekki fengið fé frá ríkinu, og er
þetta ein af' þeim aðferðum, sem auðvaldið,
ríki og bæjarstjórnir nota til að blekkja verka-
lýðinn. Atvinnuleysisstyrk kvaðst hann vera
reiðubúinn að veita, en það stæði nú svoleið-
is á fyrir að að hann væri yfirleitt á móti því
að veita atvinnubótastyrki (!!). Um útbýtingu
fiskjar á kostnað bankanna kvaðst hann ekki
geta orðið við, því að þó ríkið í raun og veru
eigi bankana, þá geti hann ekki undir þessum
kringumstæðum (þ. e. þegar verkalýðurinn á
í hlut) þvingað bankana til að láta af hendi
fisk til atvinnuleysingja, og er þá ofurskiljan-
legt að undir þessum kringumstæðum eru
bankarnir algjörlega „sjálfstæðir“. Hinsvegar
kvað hann í ráði að senda „Þór“ til að veiða
fisk, sem síðan yrði útbýtt til atvinnulauss
verkalýðs, hann kvaðst ennfremur hafa talað
við Knút borgarstjóra um almennar matgjaf-
ir ríkis og bæjarstjórnar. Og Knútur var
auðvitað reiðubúinn til að gefa fátækum með-
bræðrum sínum mat, en hann þurfti bara
fyrst að athuga málið, láta ræða það í bæjar-
stjórninni og í nokkrum nefndum og svo aftur
í bæjarstjórninni og svo þarf hann auðvitað
að tala við Tryggva aftur og svo framvegis,
svo það ætti að vera nokkurnveginn tryggt
að atvinnuleysingjarnir svelti ekki í vetur.
Fjórðu kröfuna, um að sjómönnum verði
greiddur síldartollurinn upp í hlut sinn, er það
um að segja, að Síldareinkasalan hefir ekki
greitt neitt af síldartollinum ennþá, en hann
nemur með tunnutolli 2 kr. á hverri tunnu,
svo Síldareinkasalan hefir þess vegna í raun
og veru ekki greitt neitt fyrir síldina ennþá.
Þegar verkalýðurinn vaknar og fer að gera
kröfur til valdhafanna, kröfur, sem eru svo
háværar, að ekki er hægt að ganga fram hjá
þeim, þá byrjar hið borgaralega ríkisvald,
ríkisstjórnir eða bæjarstjórnir að íhuga og
ræða málið á fundum, í stjórnum, á nefndar-
fundum, síðan eru gerðar áætlanir, þeim
breytt og gerðar aðrar áætlanir, lærðir verk-
fræðingar fengnir til þess að rífast um ýms
aukaatriði, síðan þarf að útvega fé, og til
þess þarf miklar umræður og síðan umleitan-
ir um lán og svo umræður aftur. Allri þess-
ari skriffinnsku og kjaftæði er þyrlað upp til
þess að slá ryki í augu verkalýðsins, til að
reyna að telja honum trú um, að eitthvað sé
verið að gera fyrir hann. Þessi skrípaleikur
borgaranna er svo endurtekinn hvað eftir ann-
að og kratarnir eru síðan notaðir til þess að
telja verkalýðnum trú um að alltaf sé verið
að vinna fyrir hann og bráðum muni rakna
úr atvinnuleysinu, jafnframt predika þeir þol-
inmæði og lítillæti fyrir verkalýðnum og kúska
hann til blindrar hlýðni við hina svonefndu
verklýðsforingja.
Fyrir verkalýðinn er atvinnuleysisbaráttan
ekki neinn leikur, heldur barátta við hungur
og örbyrgð, verkalýðurinn verður þessvegna
að herða og skipuleggja baráttuna ennþá bet-
ur, sýna valdhöfunum að honum er alvara, uð
Jens Á. Jóhannesson
læknip
liefir opnað lækningastofu í Aðalstræti 18,
(Uppsalir, sama stað og Árni Pétursson
læknir). — Viðtalstími kl. 10—12 og kl. 6*4
—7!/2. — Sími 317.
MUNIÐ að ÞÓRS-MALTÖL er nú bragð-
betra og næringarríkara en annað maltöl
og því odýrara en annað maltöl.
DREKKIÐ ÞÓRS-MALTÖL.
ykkur vantar bíl, þá hringið í síma 1954.
Bílliim.
hann er reiðubúinn til að beita samtökum sín-
um til hins ítrasta, til þess að knýja fram
með illu eða góðu kröfur sínar um að fá að
lifa sæmilegu lífi.
Ráðstefna K. F. I.
Ráðstefna Kommúnistaflokksins hófst þriðju-
daginn 3. nóv. og mun verða lokið í dag. Eru
þar mættir fulltrúar frá deildunum í Reykja-
vík, Vestmannaeyjum, Eyrarbakka, Borgar-
nesi, ísafirði, Akureyri og Húsavík.
Miklar umræður hafa orðið þar um þau
vandamál, sem íslenzkur verkalýður nú þarf við
að etja, og úrlausnar krefjast hið bráðasta.
Ilafa allir fulltrúar tekið þátt í umræðum þess-
um og ákvörðun starfshátta flokksins fram-
vegis. Verða ákvarðanir ráðstefnunnar birtar
síðar. En víst er að allmikið starf hefir verið
unnið á ráðstefnunni að því að skýra kreppu-
ástandið, frekari þróun kreppunnar og ráðstaf-
anir auðvaldsins til að velta afleiðingum henn-
ar yfir á herðar verkalýðsins. Jafnframt hafa
verið ákveðnar baráttuaðferðir verkalýðsins
móti þessum ráðstöfunum og vörn hans og
sókn í kreppunni.
HÓTEL BORG.
Nú þegar leppur Jóhannesar, Bjöm Björns-
son bakari, tók við rekstri Hótel Borg, urðu
nýjar deilur milli þjóna og eiganda.
Jóhannes vildi útiloka einn þjóninn, sem
staðið hafði framarlega í ákærunni á hendur
honum og neita honum um atvinnu. En þjón-
amir neituðu að taka til starfa, nema að þessi
starfsbróðir þeirra fengi vinnu líka. Ennfrem-
ur kröfðust þeir, að svokallaðir „glasapening-
ar“ yrðu numdir úr gildi. „Glasapeningar“
þessir voru eitt hinna svívirðilegu fjárdráttar-
aðferða Jóhannesar og var hver þjónn sam-
kvæmt fyrirkomulagi þessu skyldur að greiða
50 aura daglega í „glasapeninga“, en þegar
glas brotnaði voru þeir látnir greiða eina krónu
i að auki í hvert skipti.
j Deilu þessari lauk þannig að samtök þjón-
anna sigruðu og varð Jóhannes & Co. að ganga
að öllum kröfum þeirra.
Er gleðilegt hversu góð samtök þjónanna
eru orðin, þar sem þeir á örskömmum tíma
félagsbundinnar starfsemi hafa komið fram
mörgum nýtum hagsmunakröfum sínum. X.
vihna
áætlnxi
Verklýdsblaðsiiis
Árangur fyrstu vikunnar (31. okt. til 7.
nóv.):
Reykjavík: 21 áskrifendur, 9 krónur í blað-
sjóðinn.
Akureyri: 12 áskrifendur, 5 krónur í blað-
sjóðinn.
Vestmannaeyjar: 6 áskrifendur, 10 krónur í
blaðsjóðinn.
Siglufjörður: 5 áskrifendur, 62 krónur í
blaðsj óðinn.
Áætlun 150 áskrifendur Áætlun 200 krónur
Árangur 44 áskr. Árangur 86 kr.
Áætlun 1. viku: 30 áskrifendur
Árangur 1. viku: 44 áskrifendur.
Áætlun 1. viku: 40 kr. í blaðsjóð.
Árangur 1. viku: 86 kr. í blaðsjóð.
Framkvæmdarst j órar:
Reykjavík: Haukur Björnsson.
Akureyri: Sverrir Thoroddsen.
Siglufirði: Steinþóra Einarsdóttir.
Isafirði: Ingólfur Jónsson.
Vestm.eyjar: Guðmundur Gíslason.
Um framkvæmdastjóra á öðriun stöðum er
ennþá ófrétt.
Félagar vitji söfnunarlista hjá framkvæmdar-
stjórunum.
Áfram nú með söfnunina félagar.
Árangur lausasölunnar verður ekki birtur
fyr en með úrslitunuih.
Félagar, náum markinu og förum fram úr
því, eins og bolsévikkum sæmir!
Utbreiðslu- og fræðslunefnd K. F. I.
5 Yikna áætlnn Verklýðsblaðsíps.
Undirritaður óskar að gerast kaupandi
Verklýðsblaðsins. Sendi hérmeð kr............í
blaðsjóðinn. Óska að mér verði send .... eint.
af blaðinu til útsölu.
Nafn...........................................
Heimili
Ný slátrað
N autakjöt
0.40 pr. Vg kg.
Verzlimín Kjöt & Grænmeti
Bergstaðastræti 61 -- Sími 1049
Prentsmiðjan Acta.