Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1958, Page 95

Andvari - 01.01.1958, Page 95
ANDVARI Andvari 91 sem Andvari hefir flutt, enda geta menn glöggvað sig nokkuð á því, með því að kynna sér efnis- og höfundaskrá Andvara 1915—1958, sem birt er í þessu hefti ritsins. Þegar litið er til þess, sem nú var sagt, og jafnframt í huga haft, hver verða muni viðfangsefni Andvara í framtíðinni, er augljóst, að hér er um að ræða efnisþætti, sem hvert þjóðlegt tímarit íslenzkt hlýtur alltaf að hafa á efnisskrá sinni. Saga landsins, landið sjállt og bókmenntir þjóðarinnar að fornu og nýju eru sígild viðfangsefni. Sama gildir urn atvinnu- og fjár- efni þjóðarinnar í nútíð og framtíð. Andvari mun hér eftir sem hingað til láta sér annt um allt þetta. En hér kemur að sjálf- sögðu margt fleira til greina. Á okkar dögurn varðar miklu að menn eigi þess kost að kynnast margvíslegum nýjungum á sviði tækni og náttúruvísinda. Við eigum nú á að skipa vel mennt- uðum mönnum í slíkum fræðum, langt um fram það sem gerðist fyrrum. Andvari mun líka framvegis gera sér far um að fá ritgerðir urn slík efni til birtingar, eftir því sem föng verða til. Hér má einnig nefna mál, sem varða samskipti þjóða og sam- vinnu í ýrnsum greinum, sem fáir vita lull skil á, en er eitt af markverðustu táknurn vorra tíma. Þátttaka Islendinga í alþjóða- samvinnu fer nú sívaxandi og varðar því ekki litlu, að þjóðin geri sér sem fyllsta grein fyrir þeim skyldum, er þessu fylgja, og þá líka fyrir því hagræði, sem hér mætti af hafa. Þar sem Andvari er og verður tengdur stærsta bókafélagi landsins og útgáfufyrirtæki, er eðlilegt og í rauninni sjálfsagt, að hann láti bækur og bókaútgáfu til sín taka eftir því sem föng verða til og rúm leyfir. íslendingar eru hneigðir til bóka og bóklestrar, svo sem ráða má af því, hversu rnikið er prentað af bókum á landi hér ár hvert. Lætur því að líkum, að þörf sé á því, að menn eigi kost á nokkru yfirliti um bækur, sem út konra, svo að þeir eigi hægra með að átta sig á því, hvað í boði sé, og nokkrum fróðleik um bækur og höfunda, þótt líklega verði hér frernur um ritfregnir að ræða en reglulega ritdóma. Gömlu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.