Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1933, Page 10

Andvari - 01.01.1933, Page 10
6 Klemens Jónsson ráöherra. Andvarl Oddeyrar. Var þefta hin mesta framför frá þm sem áð- ur var. En ekki munu þessar vatnsveitur hafa verið gerðar svo vel sem skyldi, og hafa þær kostað miklar umbætur. Fyrir framkvæmdir sínar og stjórnsemi í Eyja- firði hlaut Klemens miklar og langvarandi vinsældir. fiafa margir bændur, er voru honum samtímis sagt, að síðan er hann Iét af embætti, hafi þeir ekkert yfirvald haft, er jafnast hafi við hann. Sjálfur sagði Klemens oft við þann er þetta ritar, að embættisstörf hans í Eyja- firði væri sá þáttur í æfistarfi hans, er honum væri kærastur, og að hvergi yndi hann sér betur en í því héraði. Ást hans á Eyjafirði kom líka í ljós í hinum miklu rannsóknum, er hann gerði um sögu og ættartölur Eyfirðinga, eins og síðar verður skýrt frá. Hann var einkar heppinn í allri þátttöku sinni í héraðsmálum á þessum árum, og hann lét það í ljós á efri árum sín- um, að það mundi hafa verið misráðið að yfirgefa sýsl- una, þótt hærra embætti væri í boði. Þá kemur annar þátturinn í æfistarfi Klemens, stjórn- málin. Ktemens bauð sig fram til þings í Eyjafjarðarsýslu 1893, og var kosinn ásamt ]óni í Múla. Var hann síð- an jafnan endurkosinn þingmaður, þangað til hann varð landritari, og varð að Ieggja niður þingmennsku vegná ambættisins. Var hann svo rótgróinn í sæti, að engum þýddi að keppa við hann um kosningu. Hann sat ekki á þingi 1894, því að þá var hann settur amtmaður í norð- ur- og austuramtinu og þurfti að sitja amtsráðsfund, er haldinn var um þingtímann. Klemens varð brátt atkvæðamaður á alþingi, enda var hann prýðilega máli farinn og starfsmaður góður. En þó naut hann sín ekki eins vel sem þingmaður og sem embættismaður. Hann þótti nokkuð fljótráður og

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.