Fréttablaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 80
48 12. september 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
>ÓSÁTT FYRIRSÆTA
Fyrirsætan Tyra Banks sat nýlega
fyrir svörum í viðtali við Cynth-
iu McFadden fyrir sjónvarpsþátt-
inn Nightline. McFadden spurði
Banks út í illdeilur hennar og fyrr-
verandi dómara í þáttunum Am-
erica´s next top model. Banks
brást ókvæða við og svaraði: „Ég
myndi ekki spyrja þessarar spurn-
ingar ef ég væri þú.“
„Hann er týndi hlekkurinn sem
vantaði í bandið,“ segir Jón Þór í
hljómsveitinni Dynamo Fog um
Sindra Eldon, sem nú hefur geng-
ið til liðs við sveitina. „Við náðum
satt að segja aldrei almennilega
saman með Axel, en nú er tríóið
fullkomnað.“
Sindri spilaði sem kunnugt
er með Dáðadrengjum og hefur
sungið með pönkbandinu Slugs
auk þess að semja músík einn síns
liðs. Hljómsveitin Dynamo Fog
hefur vakið nokkra lukku síðustu
misserin, þá helst fyrir „Let‘s rock
and roll“, sem er svo grípandi stuð-
rokkari að það var notað í hand-
boltaauglýsingu á Ríkissjónvarp-
inu. Sindri kemur í stað Axels
„Flex“ Árnasonar, sem yfirgaf
bandið og spilar nú á trommur með
Jeff Who? - „Tja, hvað heitir það?
Listrænn ágreiningur?“ segir Jón
Þór og hlær.
Það kom sér illa að Axel gekk úr
skaftinu því hljómsveitin var búin
að taka upp níu lög af tíu fyrir
fyrstu plötuna sína. „Ég held að
þær upptökur verði nú bara að
safna ryki því Axel vill fá ákveðna
upphæð fyrir þær og hana eigum
við ekki til,“ segir Jón Þór, en
Axel er upptökumaður og rekur
sitt eigið hljóðver. „Þetta verður
bara tekið upp frá grunni enda er
bandið breytt með tilkomu Sindra,
það er miklu meira indí í gangi og
meiri groddi.“
Jón Þór segir „nýjan singúl“
væntanlegan bráðlega, bandið
verði á Iceland Airwaves og „svo
verður bara spilað á öllum sóða-
kömrum á landinu“. - drg
Sindri Eldon geng-
inn í Dynamo Fog
MEIRA INDÍ, MEIRI GRODDI! Dynamo
Fog: Sindri Eldon, Jón Þór Ólafsson og
Arnar Ingi Viðarsson. MYND/ERNIR EYJÓLFSSON
Rappsöngkonan Speech Debelle
frá London hlaut hin virtu Mer-
cury-tónlistarverðlaun á dögun-
um. Mörgum kom útnefningin í
opna skjöldu enda Debelle óþekkt
nafn í tónlistarbransanum. Skák-
aði hún þekktum flytjendum á
borð við Kasabian, Glasvegas og
La Roux sem voru einnig tilnefnd.
Debelle, sem er 26 ára, átti aftur
á móti von á sigrinum.
„Ég er sannfærð um að ég eigi
eftir að vinna,“ sagði hún degi
fyrir verðlaunahátíðina. Bætti
hún kokhraust við að fimm
Grammy-verðlaun væru næst á
dagskrá.
Áður en Debelle var tilnefnd
til Mercury-verðlaunanna í júlí
hafði plata hennar Speech Ther-
apy aðeins selst í um 1.500 eintök-
um í Bretlandi. Núna hefur talan
væntanlega hækkað upp úr öllu
valdi.
Hún hefur sjálf lýst plötunni
sem hip hop-útgáfu af Tracy
Chapman, sem sló í gegn á níunda
áratugnum með lögunum Fast Car
og Talkin ´Bout a Revolution.
Debelle fæddist í hverfinu
Crystal Palace í suðurhluta Lond-
on. Hún lenti ítrekað í vandræð-
um í skólanum og hætti að lokum.
Eftir það fór hún að nota eiturlyf
og var henni í framhaldinu hent
út á götuna af móður sinni. Aðeins
nítján ára tók harður heimur við
og þurfti hún að gista á ódýrum
farfuglahótelum og hjá vinum.
Mörg lög á Speech Therapy fjalla
um það sem hún hefur gengið í
gegnum, þar á meðal heimilis-
leysið, fjarverandi föður og kynni
sín af glæpum og leiðinlegum
störfum.
Núna eru Debelle allir vegir
færir og ætlar hún að nota Mer-
cury-verðlaunaféð, sem nemur
rúmum fjórum milljónum, til að
stofna sitt eigið útgáfufyrirtæki.
Rappsöngkona vann Mercury
SPEECH DEBELLE Debelle hlaut hin virtu
Mercury-verðlaun á dögunum og kom
útnefningin mörgum í opna skjöldu.
NORDICPHOTOS/GETTY
Sveppi er kominn með nóg
af ístrunni framan á sér.
Hann ætlar að léttast um
níu kíló undir leiðsögn
Gillzeneggers.
„Ég þarf að fara niður í 80 kíló.
Það er markmiðið. Ég er svona
88,7,“ segir sjónvarpsmaður-
inn Sverrir Þór Sverrisson, best
þekktur sem Sveppi.
Nektarmyndir af Sveppa birt-
ust í þætti hans og Audda á föstu-
daginn í síðustu viku. Myndirnar,
sem voru teknar í hótelherbergi
í Finnlandi, komu Sveppa í opna
skjöldu og hann sór þess eið að
komast í betra form.
„Ég er í mjög slæmu formi
miðað við hvernig ég var í boltan-
um í gamla daga,“ segir Sveppi.
„Ég var harður! Menn eru enn
þá að tala um snúningana mína í
hægra horninu í ÍR.“
Líkamsræktarfrömuðurinn Egill
„þykki“ Einarsson sér um að tálga
kílóin utan af Sveppa, sem er afar
ósáttur við valið. „Mér finnst hann
óþolandi,“ segir Sveppi. „Hann er
svo klikkaður, algjör steik. Ég er
í nettri tilvistarkreppu. Ég nenni
þessu ekki, síst af öllu með Gillz,
en ég verð að gera þetta! Þetta er
mjög erfitt, enda græt ég mig í
svefn á kvöldin.“
Málið reynir augljóslega á ber-
skjaldaðar tilfinningar Sveppa,
enda umvafinn glæsimennum
frá degi til dags. „Auddi er orð-
inn alveg helslimmaður og flott-
ur,“ segir hann. „Pétur grennist
og grennist. Hann er iðinn við að
fara í göngutúra og passar upp
á matarræðið á meðan Auddi er
meira fyrir að fara í ræktina og
taka skvass.“
Margir muna eftir þegar Gaui
litli fór í sams konar átak og var
vigtaður í beinni útsendingu
sjónvarpsins. Sveppi óttast ekki
að vera kallaður Sveppi litli um
ókomna tíð.
„Það eru svo mörg nöfn sem
ganga um mig að ég yrði bara
sáttur við það. Það er flott! Þegar
ég labbaði hringinn í kringum
landið var ég kallaður Sverrir
Pétur. Svo þegar ég fór að bæta
á mig fóru menn að kalla mig
krullóttu kjötbolluna. Þannig að
Sveppi litli hljómar bara ágæt-
lega.“
Sveppi verður vigtaður reglu-
lega í þætti þeirra Audda og það
er mikið í húfi. Ef honum tekst
ekki ætlunarverkið þarf hann að
hlaupa nakinn niður Laugaveginn,
en Auddi virðist sleppa létt þar
sem Sveppi hefur ekki samið við
hann um refsingu ef markmiðið
næst. atlifannar@frettabladid.is
SVEPPI KEMUR SÉR Í FORM
FYRIR ÁTAK Við bíðum spennt eftir „eftir“-myndinni.
„Landið er mjög ólíkt Íslandi
og það er alveg óhætt að segja
að ég hafi fengið nett menn-
ingarsjokk þegar ég kom
þangað fyrst. En þetta var
fljótt að venjast, enda var
fólkið svo yndislegt og hjálp-
samt. Ég held að mér hafi þótt
erfiðast að venjast matnum
þarna og er mjög fegin að geta
borðað brauð með osti aftur,“
segir Tinna Þórarinsdóttir,
sem bjó í heilt ár í Taípei, höf-
uðborg Taívans, þar sem hún
lagði stund á kínversku.
Tinna útskrifaðist úr
stjórnmálafræði frá Háskóla
Íslands fyrir einu ári og
ákvað í kjölfarið að hefja nám
í kínversku. Aðspurð segist
hún vera farin að geta bjarg-
að sér á tungumálinu en eiga
enn nokkuð langt í land áður
en hún geti talist fullnuma í
kínversku.
Tinna segir að dvölin í
Taívan hafa verið ómetanleg
reynsla þó að henni hafi þótt
erfitt að vera svo lengi í burtu
frá fjölskyldu og vinum. „Það
er margt sem við getum lært
af þeim. Þetta er menning
sem við mættum taka okkur
til fyrirmyndar. Fólk ber
mikla virðingu fyrir hvert
öðru og eigum annarra og það
er voða lítið um glæpi þarna.
Mér þótti ég til dæmis mun
öruggari í Taípei þar sem búa
2,5 milljónir manna heldur en
í Reykjavík. Gallinn væri þá
helst hvað það rennur hægt
í þeim blóðið, það tekur allt
alveg rosalega langan tíma
þarna,“ segir Tinna að lokum.
- sm
Saknaði mest íslenska matarins
ÓMETANLEG REYNSLA Tinna bjó í heilt ár í höfuðborg Taívans og ber
heimamönnum vel söguna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Innsogslyf