Fálkinn - 20.12.1946, Page 41
JÓLABLAÐ FÁLKANS 1946 41
vatnið inn um þakið, svo og
um austurgafl fyrir ofan
múrverkið, og um turninn.
Einnig revndist þaksteinninn,
sem hingað hafði verið send-
ur, óvatnsheldur. En þá vant-
aði bæði nothæfan trjávið og
kalk, og lítil von um að fá
þetta frá Kaupmainnahöfn
fvrr en kæmi fram á sumar.
Þótti því auðsætt, að varl
yrði smíðinni lokið á þessu
ári.“
Nú hófst langl karp og nudd
um að fá úr þessu hætt. Höfð-
ingjarnir í kóngsins Kaup-
mannahöfn vildu ekki láta sér
segjast, þegar þeim var sagt, að
það eina, sem dygði, væri að
setja nýtt þak á hina nýju
kirkju. Þeir liirtu lítt um, þótl
karlarnir þarna úti á Seltjarn-
arnesi vöknuðu eitthvað við að
hlýða á gott orð.
Ekki hætti það úr skák, að
Laugarneskirkja lagðist nú nið-
ur, sökum elli. Skipaði konung-
ur þá, að Laugarnessókn skyldi
leggjast við dómkirkjusókn-
ina. Áttu því tveir söfnuðir að
sækja i þennan liripleka kirkju
skrokk við Austurvöll.
Enn stóð kirkjan ófullgerð.
Gert var við þakið eftir því
sem menn kunnu best. Stjórn-
arherrarnir sátu við sinn keip
og nýja þakið félckst ekki, við-
gerðin varð að duga.
Qg loks vígði Markús Magn-
ússon stiftprófastur i Görðum
kirkjuna 6. nóv. 1796, eins og
sagt var frá í upphafi. Loks
gátu Reykvikingar farið i
kirkju.
Háll' öld leið. Þá var gefin
úl konungleg tilskipun um að
gera stórbreytingar á dóm-
kirkjunni í Reykjavík. Hún
skvldi hækka, hyggja skyldi
heila hæð ofan á, selja kór-
stúku við austurgafl. Ný altar-
Dómkirkjan og Alþingishúsið.
istafla átti að koma í kirkjuna
og stundaklukka í turninn.
Nú virðast skárri menn hafa
unnið við kirkjuna, enda réðu
nú Islendingar málum sínum
nokkru betur, þeim fór fjölg-
andi, sem vissu hvað þeir vildu.
— Árið eftir að tilskipunin um
lagfæringuna var gefin út, var
lokið smíði kirkjunnar. 28. okt-
óher 1848 var hún vígð. Það
gerði herra Helgi l’Jiorlacius
með aðstoð dómkirkjuprests
pg forstöðumanns prestaskól-
ans (dr. Péturs Péturssonar
síðar hiskups).
Síðan hefir dómkirkjan ver-
ið með sama sniði. Hún er jafn-
an og verður virðulegt guðs-
Iiús, þótt háreistari hús rísi allt
umliverfis lnma. En fleiri eru
þeir nú og marglyndari nábú-
ar liennar en var fyrir hálfri
öld. rjóh.
t
♦
l
t
t
♦
♦
Veiðarfæri
? Útgerðarvörur
Vélaþéttingar — Verkfæri
Málningavörur
Fatnaður fyrir sjómenn og verkamenn.
Verzlun O. Ellingsen h.f.
Símnefni: ELLINGSEN, Reykjavík.
REDEX SNYRTIVÖRUR
hinna vandlátustu
Heildsölubirp;ðir:
SIGURÐUR ÞORSTEINSSON H.F.
Umboðs- og heildverslun.
Grettisgötu 3. Símar 5774 & 6444.
♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦