Fálkinn


Fálkinn - 02.03.1964, Blaðsíða 3

Fálkinn - 02.03.1964, Blaðsíða 3
9. tölublað. 37. árgangur. 2. marz, 1964. GREINAR: Reikað um Reynisfjöru: Séra Gísli Brynjólfsson segir frá syðsta bæ á ís- landi og hellinum, sem eldpresturinn, séra Jón Steingrímsson, bjó I, fyrsta vetur sinn á Suður- landi ............................... Sjá bls. 16 Minkana veiðir Jóliannes Arason. Jóhannes útvarpsþulur er mikill minkabani í frí- stundum og Jökull Jakobsson brá sér á veiðar með honum um daginn og ræddi um leið við Carlsen minkabana............................Sjá bls. 18 Sjónvarp á næsta leiti. Sveinn Sæmundsson heimsækir sjónvarpsstöð í Vestur-Berlín og skrifar um sjónvarp almennt. Sjá bls. 24 Þættir úr ævi Kennedys forseta: (Síðasta grein) .................... Sjá bls 14 SÖGUR: Látið blómin tala. 6 Ný og óvenjuleg smásaga ur iieykjavík, eftir Jökul Jakobsson, rithöfund og blaðamann. Látið hana ekki framhjá ykkur fara. ........... Sjá bls. 22 Kona, sem ekki getur elskað. Löng smásaga eftir Pearl S. Buck, um konu. sem ekki gat elskað manninn sinn ....... Sjá bls. 10 Búið í blokk. Annar hluti íslenzku framhaldssögunnar eftir Ingi- björgu Jónsdóttur. Myndskreytt af Ragnari Lár. Sjá bls. 8 Paradís fyrir tvo. Litla sagan eftir Breinholts ...... Sjá bls. 30 ÞÆTTIR: Kristjana Steingrimsdóttir skrifar um kvenþjóðina á bls. 34 og 35 og þar er einnig stjörnuspá vikunn- ar, krossgátan er á bls 33, kvikmyndaþátturinn á bls. 29. Astró spáir í stjörnurnar á bls. 31. og svo eru fjórar myndasögur. FORSlBAN: Forsíðumyndin er tekin út yfir Mýrdalinn, en í þessu blaði er grein eftir sr. Gísla Brynjólfsson um helli í Mýrdalnum, sem Eldpresturinn, Jón Steingrímsson, bjó í fyrsta vetur sinn á Suður- landi. Ljósm.: Guðlaugur Lárusson. Otgefandi: Vikublaðið Fálkinn h. t. Ritstjóri: Magnús Bjarnfreðsson (áb.). Framkvæmdastjóri: Hólmar Finnbogason. — Aðsetur: Ritstjórn, Hallveigarstíg 10. Afgreiðsla og auglýsingar, Ingólfsstræti 9 B. Reykja- vík. Símar 12210 ög 16481 (auglýsingar). Pósthólf 1411. — Verð í lausasölu 25.00 kr. Áskrift kost ar 75.00 kr. á mánuði á ári kr. 900.00. — Setning: Félagsprentsmiðjan h. f. Prentun meginmáls: Prent- smiðja Þjóðviljans. ,Suður um höfin, að sólgylltri strönd' Kanarieyjar ■ Majorka - London Páskaferðin 25. marz - 8. apríi Sunnufarþegar í páskaferð á Kanarieyjum, 1963. ic Dvalið í heila viku í sólskinsparadís Suðurhafa á Kan- aríeyjum, sem Fornrómverjar gáfu nafnið „Paradísar- eyjar“, vegna hins óviðjafnanlega loftslags. ★ Fjórir heilir dagar á Majorka, sem árlega er sótt heim af meira en milljón ánægðra gesta. Kanarieyjar og Majorka eru tveir eftirsóttustu staðir Evrópu til skemmtiferða og sólskinsdvalar, Mikil nátt- úrufegurð, og fjölbreytt skemmtanalíf. ★i Dvalið á beztu hótelum, með einkaböðum og sólsvölum, með eigin sundlaugar í blómagörðum með pálma og og bananatrjám, svo sem Tenerite Playa og Valle-Mark á Kanaríeyjum, Bahia Palace og Sant Ana á Majorka. ic Efnt til fjólbreyttra skemmtiferða fyrir þá sem ekki vilja alltaf liggja í sólinni, um fagurt landslag á dag- inn og skemmtistaði að kvöldinu. ic Dvalið í sólarhring í London á heimleið. ★ Flogið með nýjustu millilandaflugvél Flugfélags Islands h.f., sem bíður suðurfrá meðan dvalið er þar. Lækkar það ferðakostnaðinn að mun. ic Dragið ekki of lengi að tilkynna þátttöku, því aldrei hafa allir komizt með sem vildu. Verð: Flugferðir, hótel og 3 máltíðir á dag kr. 13.900,00 — 15.800,00. FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA BANKASTRÆTI 7 — SlMI 16400.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.