Fálkinn


Fálkinn - 02.03.1964, Blaðsíða 31

Fálkinn - 02.03.1964, Blaðsíða 31
Látið blómin tala Framhald af bls. 23. þessi lönd, sagði hann, hún hefur verið veik fyrir Asíu al- veg frá því hún var í barna- skóla. Það stóð alltaf til við færum þetta saman og þess- vegna dróst þetta ár frá ári, ég komst aldrei frá. Loks stakk ég upp á því hún færi ein með þessum þýzku hjónum. Ég sá ekki fram á ég mundi nok'kurn tíma komast sjálfur — bissnissinn, skiljiði. Hins- vegar vildi ég ekki fyrir nokk- urn mun hafa af henni þessa ferð. Það sló léttri þögn á mann- skapinn við borðið vegna þess að vinur okkar var ekki vanur að halda svona langar ræður. Svo fór hagfræðingurinn að tala um Hamlet-sýninguna í Þjóðleikhúsinu og sagði að Gunnar ætti skilið að fá gull- lampa en ekki silfurlampa fyr- ir leik sinn. Og hló hrossa- hlátri. — Mér fannst sýningin held- ur billeg, sagði fasteignasalinn, og svo voru hauskúpurnar úr þ'0st’. Hafiði vitað annað eins? Hauskúpur úr plasti! Þetta ka'10 ég svindl og blöff. — Byggist ekki leikhúsið á blf' ”" spurði söngvarinn. — Og hvað veiztu nema þú sért sjá’fur með hauskúpu úr Kæn Astio, Ég er fædd klukkan 7.45 að morgni. Ég hef ekki enn fund- ið starf við mitt hæfi og er mjög gjöm á að fá leiða á vinnu. Ég þjáist mjög af minnimáttar- kennd og á því mjög erfitt með að kynnast fólki og koma frjáls- lega fram, en það langar mig bvo mjög að geta því að ég er í eðli mínu gefin fyrir skemmtanir og ferðalög. Ég var árið 1062 mjög ástfangin af manni. Hann er fæddur .... og var all náið samband á milli okkar um tíma, en svo yfirgaf hann mig og nú virðir hann mig ekki viðlits. Ég er alveg jafn hrifin af honum og ég var áður og líð he^s "°r>nR mjög. Hvernig er útliðið f ásta- málunum árið 1964 og verð ég hamingjusöm í hjónabandinu? Fæ ég tækifæri til að ferðast mikið um ævina? Bið þig vin- plasti, sagði vinur okkar og tísti m.iótt. Hver veit? Þeir hlógu dálítið að þessari einkennilegu fyndni vinar okk- ar og hann lyfti koníaksglasinu og lét dreggjarnar --nna á tunguna í sér og síðan barst talið að skákmótinu í Lídó. — Mér fannst hann Friðrik okkar Ólafsson standa sig slæ- lega, sagði fasteignasalinn og vonbrigðin leyndu sér ekki í röddinni. Hann trúði á yfir- burði íslenzku þjóðarinnar af því hann ók um göturnar í Mercedes Benz 300. — Hann Friðrik, já, enginn er spámaður í sínu föðurlandi, sagði söngvarinn sem hafði lært í Svíþjóð. — En Guðmundur Pálmason er séní, sagði hagfræðingurinn fullur ákafa og hló ekki, þarna gerir hann jafntefli við Tal. Af hverju er þessi maður lokaður inni á skrifstofu? Af hverju fær hann ekki styrk eins og landbúnaðurinn og er sendur út í heim að tefla? — Hann kærir sig ekkert um það, sagði fasteignasalinn og þóttist vita. — Hann vill náttúrlega að fjallið komi til Múhameðs, sagði óöngvarinn. Þeir höfðu borgað reikning- inn og vinur okkar var síðast- ur fram í fatageymslu; þeir kvöddust og sögðust mundu sjást á morgun og vinur okkar staldraði við á gangstéttinni og hagræddi gulum silkitrefl- inum um hálsinn á sér Hann andaði að sér fersku loftinu með velþóknun og lét augun hvarfla um Auíh”rvöll, dóm- kirkjuklukkan sló hálf-tvö. Þetta voru vinalegar bygging- ar og virðulegar þótt ekki væru þær stórar í sniðum og raunalegt til þess að hugsa að ráðhúsið í Tjai-narendanum mundi skyggja á þær, þegar það risi af grunni. Fyrir framan Alþingishúsið varð Guðríður Andréz á vegi hans, hann lyfti hattinum virðulega og brosti lítið eitt. — Ég óska þér til hamingju, sagði Guðríður Andréz og sveif andartak í fang hans með þungum ilmi og léttu brosi. Er ekki skrítið hún skuli vera næstum hinumegin á hnettin- um á brúðkaupsafmælinu ykk- ar? Jesús, hvað við söknuðum hennar í saumaklúbbnum! — Það er nú ekkert merkis- a.fmæli, sagði hann hógvær- lega. Hún biður að heilsa, ég fékk kort frá henni, — skipið lá í Alexandríu og þau höfðu skroppið til Kaíró og hún er búin að sjá píramídana og koma á bak á úlfalda. — Ég er alveg gáttuð á því hún skuli ekki senda okkur kort í saumaklúbbnum. Og mátti ekki einu sinni vera að því að kveðja. Hann brosti hægt: — Þú veizt hvað hún er pennalöt — og utan við sig. — En hún hefur það gott? — Hún hefur það guðdóm- legt, svaraði hann og brosti — eins og fugl mundi brosa. — Þú manst að skila kveðju frá okkur næst þegar þú skrif- ar, sagði Guðríður Andréz, frá öllum klúbbnum. Þú getur sagt henni að Lúlla eigi von á barni 0" Bagga sé tekin aftur saman við Ameríkanann og þau séu að hugsa um að flytja i sum- ar og læknirinn hafi sagt að magasárið hennar Huldu verði alveg gott ef hún bara fer vel með sig og þú verður að segja að við séum alveg öskureiðar yfir því hún skuli ekki skrifa. Hann kvaddi Guðríði Andréz með hlýju handabandi og tók ofan virðulega og hún brosti aftur þessu létta brosi sem rétt virtist tylla niður tánum á andliti hennar og svo var hún svifin brott umlukin sínum þunga ilmi. Hann lagði lykkju á leið sína og gekk hægum skrifum yfir gamla Bæjarfógetagarðinn þar sem Skúli fógeti stóð á stalli og hvessti augun í suður eins og síðasti Móhíkaninn. Það var krökt af fólki inn i Vesturveri og vinur okkar oln- bogaði sig af varkárni upp stigann þar sem blómabúðin er. Hann litaðist um nokkra stund og dró hanzkann af vinstri hönd og hélt á honum Framhald á bls 39. samlegast að sleppa öllum tölum innan sviga og helzt að stytta bréfið mest.. Lóló. Svar til Lóló, Þú fæddist þegar Sólin var 8o30’ í mei-ki Fiskanna. Það er því mjög eðlilegt að þér finnist oft örðugt að koma fram fyrir aðra sakir minnimáttarkenndar. Þetta mundi þó lagast mikið ef þú reyndir að tjá þig á þann hátt, sem þér er eðlilegastur. Það er í sambandi við störf á vegum góðgerðastofnana. Hjúkr- unarstörf mundu t. d. henta þér mjög vel þar sem þú gætir auð- sýnt öðrum samúð og hjálpfýsi. Þar eð Sólmerki þitt er Fisk- arnir, þá ertu miög tilfinninga- næm fyrir umhverfinu og þeim persónum, sem umhverfis þig eru. Þú rettir að varast að taka inn mikið af deyfilyfjum, nema undir læknishendi og einnig helzt ekki að reykja, né neyta áfengra drykkja. Þú þarft að drega þig út úr skarkala heims- ins helzt eina stund á dag og endurnýja lífsþrótt þinn. Þú ert ekki fallin til að stjóma öðrum, en hentar vel að starfa undir stjórn annarra. Þú hefur sex plánetur í hin- um svonefndu loftmerkjum, sem standa fyrir hugsunina. Þú átt því auðvelt með að nálgast hlut- ina frá sjónarmiði raunhyggj- unnar og ættir raunar að leggja fyrir þig að mennta þig sem allra mest í þessari jarðvist, því slíkt liggur auðveldiega fyrir þér, hvað hæfileikana snertir nú. Menntun á sviði hjúkrunarinnar mundi liggja mjög létt fyrir þér. Einnig er þér ráðlegt að afla þér sem fjölbreyttrastar menntunar. Þú hefur Marz og Satum í öðru húsi, þannig að litlar iíkur eru fyrir því að veraldlegir sjóðir þinir hrúgist upp og ryk- falli. Þín auðæfi eru ekki í þessa heims, eins og sagt var eitt sinn. Sólmerki piltsins, sem þú gazt um áðan myndar mjög óhag- stæða afstöðu við sólmerki þitt, enda kom á daginn að pilturinn fór á brott. Þér mundi vegna vel með manni sem fæddur væri undir merki Krabbans á tímabil- inu 22. júní til 23. júlí eða und- ir merki Sporðdrekans á tíma- bilinu frá 24. okt. til 22. nóv. Ég mundi því ráðleggja þér að vera ekkert að hugsa um Boga- mannsmerkinginn, því það verð- ur þér bara til ama. Neptún í sjöunda húsi bendir til löngunar eftir hinu fullkomna hjónabandi, en ávallt veldur hann einhverjum blekkingum svikum og prettum. Venjum makans kann oft að vera tals- vert óbótavant því tilhneigingar eru til drykkjuskapar, neyzlu nautnalyfja, kynferðislegrar fpill ingar eða annarra venja sem verða að teljast óæskilegar. Það er sem sagt nauðsynlegt fyr- ir þig að gæta fyllstu varúðar í vali maka og þú ættir að graf- ast nákvæmt fyrir um fortíð V.ans, því verra er að gaílarnir komi ekki í ljós fyrr en allt er um garð gengið cg of seint að snúa við. Vog á geisla sjöunda húss bendir til þess að þér sé mjög nauðsynlegt að elska og vera elskuð og yfirleitt að vera í góðum félagsskap við einhvern af hinu kyninu. Aðstæðurnar á sviði ástarmálanna lagast mjög mikið eftir tvö til þrjú ár og eru ágætar þegar þú e>-t um 24 ára. FÁLKINN 31

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.